Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Verstu lög Íslands í Júróvisjón – Lögin sem við öll viljum helst gleyma

Verstu lög Íslands í Júróvisjón – Lögin sem við öll viljum helst gleyma

Þau hafa verið af ýmsu tagi, lögin sem til­nefnd hafa verið sem fram­lag Íslands í Júró­visjón í gegnum tíð­ina. Sum hafa gripið hjörtu land­ans á meðan minna hefur þótt til ann­arra koma. Sumum viljum við helst af öllu gleyma. Í til­efni af 30 ára þátt­töku­af­mæli Íslands í Eurovision fyrir fimm árum blés FÁSES, Félag áhuga­manna um söngvakeppni evr­óps­rka sjón­vars­stöðva til alls­herj­ar­kosn­ingar meðal félags­manna sinna um hvað þeim fannst um hitt og þetta í Söngvakeppni Sjón­varps­ins og þátt­töku Íslands í Eurovision.

Nið­ur­stöður eru birtar með góð­fús­legu leyfi FÁSES.

Kosn­ingin var í tveimur hlutum. Við hverja spurn­inga voru gefnir nokkrir mögu­leikar en einnig var val­mögu­leiki að setja eigið svar. Fyrri hlut­inn fjall­aði um Söngvakeppni Sjón­varps­ins og sá seinni um þátt­töku Íslands í Eurovision. Spurt var meðal ann­ars um besta og versta lagið sem keppt hefur í Söngvakeppn­inni, bestu og verstu bún­ing­ana í keppn­inni, bestu söngvakeppn­ina í heild sinni ásamt fleiru eins og besta kynn­inn og bestu þul­ina.

Nú var komið að því að fara í gegnum úrslit kosn­ing­ar­innar á FÁSES.is. Við byrjum á hörm­ung­unum (alltaf best að fá vondu frétt­irnar á undan góðu frétt­unum): Versta lag­inu sem keppt hefur í Söngvakeppni sjón­varps­ins og versta lag­inu sem keppt hefur fyrir Íslands hönd í Eurovision.

Versta lagið sem keppt hefur í Söngvakeppni sjón­varps­ins var að mati aðdá­enda Ho ho ho we say hey hey hey í flutn­ingi Mercedes Club sem keppti í Laug­ar­dags­lög­unum 2007-2008.

Ho ho ho we say hey hey hey hlaut ríf­lega 24% atkvæða en 22,6% sem svör­uðu nefndu annað lag. Um annað sætið sem versta lagið börð­ust þó Birta og Eldgos en gosið lagði birt­una ein­ungis með einu atkvæði.

Fimmtán lög voru nefnd undir annað. Það lag sem oft­ast var nefnt undir öðrum lögum var lag Önnur Mjallar og Ólafs Gauks Sjúbídú frá árinu 1996 (þó það hafi strangt til tekið ekki tekið þátt í Söngvakeppni sjón­varps­ins). Það var nefnt alls 11 sinnum. Næst á eftir kom Lítil skref nefnt 4 sinnum. Önnur lög sem fengu fleiri  en eitt atkvæði voru Til ham­ingju Ísland, Það sem eng­inn sér, Hægt og hljótt, Hvar ertu nú og Hopp abla ha.

Tvö lög voru bæði nefnd sem besta og versta lagið en það voru lögin Hægt og hljótt frá 1987 og Brenndar brýr flutt af Ingunni Gylfa­dóttur árið 1993.

Versta lagið sem keppt hefur fyrir Íslands hönd í Eurovision var valið Sjúbídú frá 1996 í flutn­ingi Önnu Mjallar.

Kosn­ingin var nokkuð afger­andi en Sjúbídú fékk tæp­lega 30% atkvæða. Annað versta lagið var kjörið Það sem eng­inn sér sem skil­aði okkar einmitt engu stigi í Eurovision árið 1989 en lagið hlaut ríf­lega 21% atkvæða í kosn­ing­unni. Í þriðja sæti var lagið Angel frá 2001 með 12,6% atkvæða. Lagið Unbroken frá 2015 var í 4. sæti með tæp­lega 7% atkvæða og loks fram­lag Silvíu Nætur frá 2006 Congratulations  í 5. sæti og hlaut 5% atkvæða.

Sérlega athygl­is­vert er að geta þess að 11 lög hlutu engin atkvæði sem versta lagið en það voru Gleði­bank­inn, Eitt lag enn, Draumur um Nínu, Nei eða já, Nætur, Minn hinnsti dans, All out of luck, Tell me, Open your heart, This is my life og Never forget.

 Við vitum öll að Daði og Gagna­magnið mun aldrei rata á þennan lista. Áfram Ísland!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina