Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Örvinglaðir Íslendingar í Noregi: „Við búum í bólusetningarfangelsi“

Örvinglaðir Íslendingar í Noregi: „Við búum í bólusetningarfangelsi“

„Við búum í bólu­setn­ing­ar­fang­elsi,“ segir Marín Krist­jáns­dóttir, sem er búsett í Sarps­borg í Noregi og á þar við aðgerðir norsku rík­is­stjórn­ar­innar á fáheyrðum tímum Covid-19 far­sótt­ar­innar. „Að vísu var blaða­manna­fundur í dag en frá og með hádegi á morgun, 3. júní, mega þeir sem eru full­bólu­settir dvelja heima í tíu daga sótt­kví við kom­una til Noregs eftir frí erlendis. En aðeins ef þeir eru með norskt bólu­setn­ing­ar­vott­orð.“

Erlend bólusetningarskírtein ógild

Að sögn Marín eru erlend bólu­setn­ing­ar­skír­teini ekki álitin gild í Noregi. Aðeins norskt bólu­setn­ing­ar­skír­teini séu sam­þykkt við komu.

„Allir sem vísa fram erlendu bólu­setn­ing­ar­skírti­eini við komu til Noregs mega dvelja launa­laust heima í tíu daga, og en hinir [sem ekki hafa hlotið fulla bólu­setn­ingu] verða að sætt­ast á tíu daga ein­angr­un­ar­dvöl á sótt­varn­ar­hót­eli og borga 5000 norskar krónur fyrir.“ Þetta eru til­mæli norsku rík­is­stjórn­ar­innar, sem Marín segir frá hér og aðgerðir sem bitnað hafa ekki hvað síst á þeim Íslend­ingum sem langar að hverfa heim nú í vor og gleðj­ast með vinum og fjöl­skyldu hér á landi í fáeina daga. Marín segir það varla hægt, þar sem algert ferða­bann hafi ríkt í land­inu um langa hríð.

Forgangshópar

„Á morgun fá full­bólu­settir loks leyfi til að yfir­gefa landið en það er eng­inn mis­kunn sýnd við lend­ingu á heim­ferð. Við getum svo sem alveg farið til Íslands, það er ekk­ert mál, en við taka tíu launa­lausir dagar í ein­angrun þegar heim til Noregs kemur. Auðvitað er allt í háa­lofti hérna og fjöl­miðlar loga í Noregi. Fólk er í öngum sínum“.

Marín segir for­gangs­hópa norsku rík­is­stjórn­ar­innar hafa vakið furðu margra Íslend­inga sem eru búsettir í Noregi, en öfugt við ald­urs­hópa hér á landi var ákveðið fyrr á þessu ári að bólu­setja ein­stak­linga í félags­lega erf­iðri stöðu og minni­hluta­hópa búsetta í höf­uð­borg­inni áður en að heil­brigð­is­starfs­fólki, kenn­urum og sér­hæfðu starfs­fólk í umönn­un­ar­störfum kæmi.

Örvinglaðir Íslendingar

Sjálf hefur Marín hlotið fulla bólu­setn­ingu, þar sem hún er í áhættu­hópi vegna lík­am­legrar heilsu en hún segir marga enn bíða eftir kall­inu. Þetta kemur heim og saman við þrá­látar fyr­ir­spurnir Íslend­inga í hópum frá­fluttra á Facebook og er ekki annað að sjá en að þeir sem flust hafa á meg­in­landið skilji lítið þegar hér er komið sögu hvað varðar Covid-áform frænda okkar í Noregi.

„Þetta fer auð­vitað eftir sveit­ar­fé­lögum og þá eru það helst fólkið á lands­byggð­inni sem enn bíður. En rík­is­stjórnin ákvað að taka bólu­setn­ing­ar­á­formin úr höndum minni sveit­ar­fé­laga og flytja meg­in­magn bólu­efnis til höf­uð­borg­ar­innar þar sem minni­hluta­hópar fengu skil­yrð­is­lausan for­gang“.

Smitin blossa upp

Eðlilega bitni svo for­gangs­röð­unin á þeim sér­hæfðu starfs­mönnum sem starfa í fremstu víg­línu veirunnar og eigi í raun að sitja á fremsta bekk bólu­setn­ing­arteymis ytra. „Rík­is­stjórnin hér hefur ákveðið þessa for­gangs­röðun og mörgum þykir bara nóg komið,“ segir Marín jafn­framt en smitalda gengur nú yfir grann­ríkið og mun útskrift­ar­veislum mennt­skæl­inga mest vera um að kenna. „Smitin fóru að blossa upp aftur núna í vor og Hammers­fest, sem er lítið sveit­ar­fé­lag hérna er að fara ansi illa út úr smi­töld­unni. Þarna hafa fáir verið bólu­settir og ekk­ert smit komið upp í eitt og hálft ár. Svo kviknar líf að vori og útskrifta­tíma­bilið rennur upp og þá byrja smitin að koma upp aftur,“ segir Marín.

Það smellur allt í lás

Þó sum­arið sé komið í Noregi og flestir Íslend­ingar fagni hækk­andi sól, segir Marín stöðu frá­fluttra ansi snúna sem stendur.

„Auðvitað langar fólki heim. Það er svo sem ekk­ert mál að fara í heim­sókn til Íslands. En að koma heim til Noregs aftur með flugi er eins og að ganga inn í gæslu­varð­hald. Það smellur allt í lás og þeir sem ekki geta fram­vísað norsku bólu­setn­ing­ar­skír­teini sem sýni fram á fulla bólu­setn­ingu hér í landi, verða að splæsa út 75.000 íslenskum krónum og taka tíu daga launa­laust leyfi frá og með komu­degi. Það er rétt hægt að ímynda sér hversu margir hafi efni á svo dýru sum­ar­fríi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina