Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Herdís Storgaard hjúkrunarfræðingur: „Skelfilegar afleiðingar vinnuslysa hjá börnum“

Herdís Storgaard hjúkrunarfræðingur: „Skelfilegar afleiðingar vinnuslysa hjá börnum“

„Þetta ger­ist á hverju vori og blasir á aug­lýs­inga­töflum í búðum og upp spretta aug­lýs­ingar  í hverfa­hópum. Ég sendi inn grein á MBL nú fyrir nokkrum dögum. Mér þótti mjög athygl­is­vert að sjá við­brögð les­enda og hversu kjána­leg ein­hver ummælin voru. Fjöl­margir full­orðnir rit­uðu og sögðu að þeir hefðu nú aðeins verið um sex ára gamlir að passa börn. Engum hefði nú orðið meint af því,“ segir Herdís Storgaard, hjúkr­un­ar­fræð­ingur hjá Slysa­vörnum barna um við­brögð almenn­ings við nýbirtri grein, en í skrifum sínum áréttar Herdís að börnum yngri en 15 ára sé óheim­ilt að gæta sér yngri barna og þiggja fyrir laun.

Yngri en fimmtán ára mega ekki gæta ann­arra barna

Ekki er langt síðan MANNLÍF fjall­aði um tíma­kaup það sem for­eldrar telja ásætt­an­legt að bjóða barnapíum í sumar, en hæfi­legur aldur til starfans að mati þeirra for­eldra sem tóku til máls í umræðu­hóp nú fyrir skemmstu spannar ald­urs­skeiðið 12 til 17 ára. Samkvæmt Herdísi hafa for­eldrar þó ekki heim­ild til að bjóða börnum sem enn er í gagn­fræða­skóla, launað starf við barnapössun nú í sumar, þar sem reglu­gerðin kveður á um að ung­lingur skuli hafa náð fimmtán ára aldri og þar með lokið grunn­skóla.

Ekki í lagi

„Það þykir allt í lagi að bjóða litlu barni upp á þessar aðstæður,“ áréttar Herdís í við­tali við blaða­mann og bendir á nauð­syn þess að gæta öryggis allra. „Börnin eru bara þarna. En börn ber að vernda, því barnið sjálft sem er jafn­vel tíu ára gam­alt þegar það býður fram þjón­ustu sína við gæslu sér yngri barns, er ekki komið með nægan þroska til að gæta sjálfs síns. Þar erum við einnig að tala um skyn­færi lík­am­ans og hvernig heil­inn bregst við boðum. Það er ekki fyrr en barnið er orðið tólf ára gam­alt sem það er orðið nægj­an­lega þroskað til að sýna næg við­brögð til að geta verndað sjálft sig, hvað þá aðra.“

Barnapíur með hærri laun en ung­lingar Vinnu­skól­ans

Fyrstu við­brögð

Reglu­gerðin fellur undir Vinnu­eft­ir­litið að sögn Herdísar sem segir athygl­is­vert að taka púls­inn á þjóð­arsál­inni gegnum opin­bera umræðu og sífræðslu. „Þá eru margir búnir að gleyma því að reglu­gerðin sem ég vísa til hér kom fram á sjón­ar­sviðið árið 1995 gegnum lög­boðna til­skipun frá Evr­ópu­sam­band­inu. Þegar reglu­gerðin barst fyrst til Íslands mátti lesa afmörkun á því hversu þungum byrðum börn mættu lyfta við vinnu til að hindra bak­verki og stoð­kerf­is­vanda seinna á ævinni. Það var þá sem ég fór að hugsa um barnapí­urnar og setti mig í fram­hald­inu í sam­band við Félags­mála­ráðu­neytið.“ Viðbrögð ráðu­neytis á þeim tíma segir Herdís hafa ein­kennst af vand­ræða­gangi. „Þetta var allt saman frekar pínu­legt og við­brögð ráðu­neyt­is­starfs­manna komu mér virki­lega á óvart. Menn þar á bæ brugð­ust illa við og sögðu sam­fé­lagið alltaf hafa verið svona, að börn hefðu alltaf passað börn og að reglu­gerðin ætti því ekki að ná yfir barnapíur.“

Evr­ópu­sam­bandið hneykslað

Herdís, sem var sjálf í miklum sam­skiptum við stjórn­sýslu sökum starfa sinna á þeim tíma lagð­ist í fram­hald­inu yfir reglu­gerð­ina með Umboðs­manni barna og sendi að lokum erindi út til Evr­ópu­sam­bands­ins. „Þarna kom ekk­ert fram um barnapössun en aðeins þau störf sem snúa að því að lyfta þungu eða hafa óskerta athygli á eigin störfum. Þarna kom til að mynda fram reglu­gerð um aldur þeirra barna sem mættu vinna með vélar, en á þessum tíma höfðu hræði­leg slys átt sér stað þar sem börn misstu útlimi við fisk­vinnslu og sveita­störf.  Að hafna í slíku vinnu­slysi sem barn merkir ævi­langa örkumlum. Þessi reglu­gerð þótti mér eiga við um barna­gæslu líka og hafði því sam­band út. Ég man enn við­brögð Evr­ópu­sam­bands­ins, undrun og hneyksli var und­ir­tónn­inn. Þessi börn eru enn bara börn á umræddum aldri. Nið­ur­staða Evr­ópu­sam­bands­ins var þó skýr, börn fimmtán ára og eldri mega sinna gæslu sér yngri barna.“

Efni í lög­boðna til­kynn­ingu

Í nýlegri grein sinni bendir Herdís einmitt þannig á að brot á fimmtán ára ald­urs­reglu sé í raun einnig efni í lög­boðna til­kynn­ingu til barna­vernd­ar­yf­ir­valda. „Það myndi ég halda, þar sem skýrt er kveðið á um slíkt sam­kvæmt vinnu­vernd­ar­lög­gjöf­inni. Gera for­eldrar barna sér grein fyrir því, þegar þau eru að ráða sig í þetta starf, hver það er sem axlar ábyrgð­ina ef illa fer? Af því að þú heim­ilar barn­inu þetta brot, þetta reglu­gerð­ar­brot. Ef um væri að ræða vinnu­stað yrði sá aðili sem ræður til sín ung­linga í hættu­lega vinnu sam­stundis sektaður.“ Þá bendir Herdís á að um tvö­falt öryggi sé að ræða. Þess sem gætir og þess sem er gætt. „Hér eigum við að hugsa um lík­ama þess sem er að passa og lyftir þungum hlutum í starfi. Við eigum líka að hugsa um öryggi barns­ins sem er verið að gæta“.

Vill fræða og upp­lýsa

Aðspurð segir Herdís fræðslu mik­il­væg­asta alls. „Ég er nú ekki mikið gefin fyrir boð og bönn,“ svarar hún þegar blaða­maður spyr hvort hún hvetji til slíkra til­kynn­inga sem hér eru til umræðu. „Ég er mikið gefin fyrir að fræða fólk og fræðsla er af hinu betra. Þess vegna var þetta nú sett inn á Facebook síðu Mið­stöðvar um slysa­varnir barna fyrir stuttu síðan. Mér fannst umræðan vera orðin svo mikil á Facebook síðum hverf­anna að mér þótti full ástæða til að árétta um reglu­gerð.“

Ekki á skrá sem launa­greið­endur 

Slík til­felli ættu einnig að rata á borð Vinnu­eft­ir­lits­ins, þar sem um  hreint brot á vinnu­vernd­ar­lög­gjöf er að ræða. „Mál sem þessi heyra undir Vinnu­eft­ir­litið. Launa­greið­endur barna­gæslu­að­ila eru ekki að reka fyr­ir­tæki og því er erf­ið­ara viður­eignar að ráða við þar sem for­eldrar eru að öllu jöfnu ekki á skrá hjá Vinnu­eft­ir­lit­inu sem launa­greið­endur. Þá er sú fram­för sem hefur átt sér stað hjá Vinnu­skól­anum alger­lega til fyr­ir­myndar fyrir ung­linga. Þeir eru í við­eig­andi hlífð­ar­bún­aði í starfi, fá fræðslu og kennslu. Allt þetta hefur gert að verkum að við erum ekki að horfa á þessi hroða­legu slys sem voru hér áður fyrr“.

Börn misstu útlimi í vinnu­slysum 

Slysin sem Herdís vísar til eru að sögn hjúkr­un­ar­fræð­ings flestum gleymd í dag en voru reglu­bundnir við­burðir hér á landi fyrir fáeinum ára­tugum. „Ég var sjálf að vinna á Slysa­deild á ára­bil­inu 1978 og fram til 1981 og í starfi mínu sá ég með eigin augum skelfi­legar afleið­ingar vinnu­slysa hjá börnum. Þetta voru bara smá­krakkar. Þau voru jafn­vel ferjuð með sjúkra­flugi utan að landi og voru búin að missa útlim vegna vinnu við afhausun­ar­vélar í fisk­vinnslu. Við erum hér að tala um mjög unga krakka.“ Stór séu því orðin sem látin eru falla á sam­fé­lags­miðlum þessa dag­ana og tíðni alvar­legra vinnu­slysa hjá börnum og ung­lingum hér á landi fyrir örfáum ára­tugum síðan virð­ast með öllu gleymd. Að end­ingu bendir Herdís á að for­eldrar axli alla ábyrgð á mögu­legum slysum sem komi fyrir barn í umsjá barns sem er að passa og gæti lög­fræði­legt álita­efni hæg­lega komið til, þó sem betur fer hafi ekk­ert slíkt mál enn komið til hér á landi. „Þetta er þó vel þess virði að velta fyrir sér og eitt­hvað sem allir for­eldrar ættu að hafa hug­fast,“ segir Herdís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina