Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hænsnahvíslarinn Júlíus er óhress: „Eitt hanagal heyrist og allt verður vitlaust“

Hænsnahvíslarinn Júlíus er óhress: „Eitt hanagal heyrist og allt verður vitlaust“
Júlíus í hópi hana sem eiga undir högg að sækja – Skjáskot / RÚV

„Fuglag­lensan kom bara í and­legum skiln­ingi til Íslands árið 2006. Það hef ég oft sagt en í það skiptið voru margir alveg við að tromp­ast yfir því að flensan væri að koma og fólk drap bara fugl­ana sína,“ segir Júlíus Már Bald­urs­son, hænsa­bóndi í Þykkvabæ, um fárið í kringum fuglaflens­una fyrir fáeinum árum síðan.

„Það var mikið fár í þjóð­fé­lag­inu á þessum tíma, þó flensan leggð­ist aðal­lega á sund­fugla og eng­inn vildi fá flens­una. Sjálfur tók ég við hænum frá fimmtán stöðum víðs­vegar um landið því fólk vildi bara losna við fugl­ana strax. Nú er fólk til allrar ham­ingju rólegra“.

Hann segir að meiri yfir­vegun og ró hafi ríkt meðal hænsna­bónda nú í vetur meðan reglu­gerðir MAST kváðu enn á um algera ein­angrun fið­ur­fén­aðs sökum hættu á fuglaflensu. „Fólk var jú beðið um að loka fugl­ana sína inni í vetur, en þeir fuglar sem búa við byrgi eða búr fyrir utan hús hafa kom­ist út,“ segir Júlíus jafn­framt. „Það ætti, sam­kvæmt reglu­gerð MAST, að vera heilt þak en ekki net yfir búr­inu. Þetta er gert svo fljúg­andi fuglar geti ekki dritað ofan í búrin og borið þannig mögu­lega fuglaflensu í fið­ur­fén­að­inn. Hænur mega fara út að degi nú um þessar mundir, en aðeins þær sem búa við yfir­byggt aðhald. Og þetta gildir um allt landið, líka höf­uð­borg­ar­svæðið.“

Íslensk land­náms­hæna sem búsett er í Þykkva­bænum hjá Júlíusi á góð­virð­is­degi

Innivera sökum fuglaflensu ekki hættuleg fiðurfénaði

Og hænsna­bónd­inn í Þykkvabæ segir fuglaflens­una ekki hafa sett bústofn íslensku land­náms­hæn­unnar í neina hættu.

„Inni­veran hefur í sjálfu sér engin áhrif á fugl­ana að öðru leyti en því að hæn­urnar fá ekki að spáss­era frjálsar úti þar sem þær geta étið það sem nátt­úran býður þeim. Hreinn og þurr spænir, lokuð búr og byrgi geta orðið hæn­unum úti um smá­vægi­lega úti­vist á hverjum degi en um leið og öllum tak­mörk­unum léttir hjá MAST mega hæn­urnar fara aftur út að viðra sig. Þessir fuglar fara aldrei langt frá hús­inu og halda sig í nágrenni við heim­ilið, því þar er öryggi og skjól að finna gegn yfir­vof­andi hættu.“

Svona á góður aðbún­aður fið­ur­fén­aðs að vera; íslenskar land­náms­hænur í Þykkvabæ

Umfram hönum fargað

Stofn íslensku land­náms­hæn­unnar blómstrar í Þykkvabæ en yfir þús­und hænu- og hanaungar klekj­ast út hjá Júlíusi á hverju ein­asta vori.

„Ég kyn­greini fugl­ana þegar þeir eru fimm til sex vikna gamlir og ég sel ung­ana til lífs. Margir panta sér hænur í þétt­býli og yfir­leitt fæ ég pant­anir gegnum tölu­vpóst.“ Því miður kveða reglu­gerðir þó á um að ekki er leyfi­legt að vera með hana í þétt­býli og segir Júlíus það miður. Umfram­hönum sé því miður fargað þar sem þeir gangi ekki út, en þetta merkir að ýmist má ekki hafa hana með sökum háreysti eða ekki er rými fyrir karl­fugl­ana. „Fólk til sveita er hins vegar að panta sér tíu til tólf hænur og tvo hana en ég er kannski að láta fimm hana á móti hverjum hund­rað hænum. Það þarf ekki nema einn hana í stóran hænsna­hóp. En hana­hald í þétt­býli er því miður alveg bannað“.

Hanagal þykir ótækt

Júlíus er gagn­rýn­inn á núgild­andi reglu­gerðir sem þó hafa rýmkað tals­vert und­an­far­inn ára­tug, en nú er leyfi­legt að vera með hænur í lok­uðu garð­rými í þétt­býli.

„Ég stóð lengi vel í fundum ofan í fundi með yfir­dýra­læknum, bæj­ar­yf­ir­völdum og borg­ar­stjórnum hingað og þangað um landið. Þetta virt­ust á sínum tíma vera pest­ar­geml­ingar upp til hópa þegar að hænum kom en sömu nefndum þótti hins vegar í lagi að vera með hunda og ketti í þétt­býl­is­kjörnum“.

Að lokum hafi þó sam­komu­lag legið fyrir og reglu­gerð fædd­ist: Hanar væru ekki leyfi­legir en hænur hins vegar vel­komnar.

„Þessar leyf­is­veit­ingar fóru að lokum í svip­aðan far­veg og hunda- og katta­leyfi. Þú mátt vera með þrjár til fjórar hænur en engan hana í þétt­býli. Það þykir mér skjóta svo­lítið skökku við. Fólk er að fara í vinnu og til skóla að morgni og eftir situr ein­hver teg­und hunds, stór eða lít­ill og hann er lok­aður inni í bíl­skúr eða íbúð allan dag­inn,“ segir Júlíus. Hann er hins vegar og er ósáttur við núgild­andi laga­gerðir.

„Það er alveg sama hvað hund­ur­inn geltir, hávað­inn sá telst ekki ónæði gagn­vart nágrönnum en gali hani í næsta húsa­garði verður allt vit­laust. Haninn, á sam­kvæmt reglu­gerðum, að valda mesta ónæð­inu“.

Kyn­grein­ing unga er auð­veld í fram­kvæmd en erfið þar sem fæstir vilja eiga hana

Þekkja ekki íslensku húsdýrin

Neikvætt við­horf gagn­vart hana­gali segir Júlíus gegn­um­gang­andi í öllum þétt­býl­is­kjörnum lands­ins.

„Fólk í dag og sér­stak­lega yngra fólkið er komið svo langt fram úr sjálfum sér. Þetta fólk er komið svo langt frá upp­runa sínum. Yngra fólkið hefur margt hvert aldrei verið í sveit og hefur aldrei kynnst íslensku hús­dýr­unum. Eitt hana­gal heyr­ist og allt verður vit­laust í hverf­inu. Þetta var nú umræðan á fund­unum meðan verið var að meta hvort leyfa ætti hænu­hald í þétt­býli og nið­ur­staðan varð þessi; hænur eru leyfðar en hanar ekki.“

Júlíus harmar þau nei­kvæðu við­horf sem bæj­ar­yf­ir­völd víðs­vegar um landið hafi gagn­vart karl­kyns hænsnum og háværu hana­gali.

„Mér þykir þetta svo rangt við­horf. Við sem höfum kynnst sveita­lífi og sveita­störfum erum alin upp við að heyra hunda gelta og hana gala. Það pirrar sveita­fólkið ekk­ert í dag­legum störfum sínum, en margt borgar- og bæj­ar­fólkið fer alveg úr jafn­vægi um leið og hani galar að morgni“.

Fiðraðar fjölskyldur

Að fram­an­greindu sögðu er því ekki annað að ætla en að óger­legt sé að reisa hænsna­kofa fyrir fiðr­aða fjöl­skyldu nema han­inn sé und­an­skil­inn, rísi litla búið í þétt­býli. Hanagal er aðeins leyfi­legt á lands­byggð­inni og þar við situr um stund.

„Fyrstu ung­arnir mínir koma hins vegar í heim­inn um einni viku fyrir páska og fyrstu fugl­arnir mínir þetta árið eru farnir til nýrra eig­anda, þeir voru til­búnir til afhend­ingar um miðjan maí. Fólk er mikið að end­ur­nýja hjá sér stofn­inn, sumir eru að hætta og aðrir eru að byrja. Eft­ir­spurnin er nokkuð þétt og stöðug.“

Hænsna­hvísl­ar­inn Júlíus segir þó hæn­urnar ekki fara á hvaða heim­ili sem er.

„Þetta eru nátt­úru­lega lif­andi dýr með til­finn­ingar og þessu má líkja við að finna hundi eða ketti nýjan sama­stað. Það skiptir öllu máli að vel sé farið með dýrin“.

Hanar eru þó ekki leigðir út til sum­ar­bónda þar sem galið veldur að sögn þétt­býl­is­búa of miklu ónæði í nágrenni og stendur sú reglu­gerð óhögguð, ekki skal hafa fleiri en tvo hana í hverju hænsna­búi og þá aðeins í dreif­býli. Hvað koma skal er erfitt að segja til um en Júlíus seg­ist binda veika von við aflétt­ingu hafta, sem snúi að líf­tíma hana ekki síður en rýmk­andi hag þeirra hænsna sem njóta þess að vera úti við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina