Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Sumir eru búnir að vera svo lengi við völd að þeim þykir óþarfi að svara íbúum borgarinnar“

„Sumir eru búnir að vera svo lengi við völd að þeim þykir óþarfi að svara íbúum borgarinnar“
Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks – Skjáskot / Við­skipta­blaðið

„Þetta er því miður orðin lenska í borg­ar­kerf­inu, að svara ekki, að afgreiða ekki [innsk. blm. erindi og fyr­ir­spurnir almennra borg­ara] og að biðj­ast ekki afsök­unar,“ svarar Eyþór Arnalds borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks hjá Reykja­vík­ur­borg blaða­manni vegna þess sem verður að segj­ast nær ótrú­legt við­bragða­leysi borg­ar­yf­ir­valda við ítrek­uðum fyr­ir­spurnum rit­stjórnar um verk­lok raf­rænnar vökt­unar í Graf­ar­vogi. „En þetta þrennt þurfa menn að geta gert og að geta tekið af skarið. Sumir eru búnir að vera of lengi við völd og þykir óþarfi að svara íbúum. Menn bregð­ast ekki lengur við fyr­ir­spurnum almenn­ings. Það er vand­inn í mörgum mála­flokkum.“

Verkefni úthlutað 33 milljónum krónum en liggur óhreyft á borði borgarritara

Íbúar í Graf­ar­vogi hafa marg­sinnis reynt að afla upp­lýs­inga hjá borg­ar­yf­ir­völdum vegna fyr­ir­hug­aðra örygg­is­mynda­véla um helstu akst­ursleiðir hverfis, en til­lagan hlaut yfir­gnæf­andi kosn­ingu í Betri Reykja­vík árið 2018. Met­þát­taka var í hverfa­kosn­ingu íbúa borg­ar­innar það sama ár og hafn­aði til­lagan í öðru sæti og hlaut í fram­hald­inu 33 millj­óna króna fram­kvæmda­styrk sem ekki enn hefur verið nýttur og hefur féð legið óhreyft á borði borg­ar­rit­ara síðan 1. nóv­em­ber á síð­asta ári.

Reyndi að ræna sjö ára stúlku: „Fór að gráta og spark­aði í pung­inn á honum“

„Þetta er því miður orðin lenska í borg­ar­kerf­inu, að svara ekki, að afgreiða ekki og að biðj­ast ekki afsök­unar“

Borgaryfirvöldum svarafátt og fyrirspurnir falla milli þilja

Rit­stjórn Mannlífs slóst í hóp áhuga­samra höf­uð­borg­ar­búa um áætluð verk­lok og upp­setn­ingu raf­rænnar vökt­unar í Graf­ar­vogi nú í þess­ari viku en ábyrgir hjá Reykja­vík­ur­borg hafa litlar upp­lýs­ingar gefið. Blaða­maður hefur reynt að ná í upp­gefna tengiliði hjá borg­inni nú í tvo daga en virð­ist hafna milli þilja í upp­lýs­inga­leit hjá borg­inni. Í þeirri leiðu stöðu hafa íbúar hverfis einmitt mátt dúsa und­an­farna mán­uði. Þó svar­aði skrif­stofa mann­rétt­inda- nýsköp­unar og lýð­ræði­ráðs Reykja­víkur fyr­ir­spurn borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í upp­hafi mars á þessu ári og sagði málið til með­ferðar. Ekkert hefur bólað á fram­kvæmdum síðan.

Reyndi að ræna sjö ára stúlku: „Fór að gráta og spark­aði í pung­inn á honum“

Eðlilegar áhyggjur almennra borgara þar sem ekkert bólar á svörum

Fáeinir dagar eru síðan ókunnur karl­maður reyndi að nema sjö ára gamla stúlku á brott með sér af leik­svæði í Folda­hverfi og fjall­aði Mannlíf um málið. Meðal efnis sem blaða­maður sendi borg­ar­yf­ir­völdum í spurn­ar­formi gegnum tölvu­póst í gær sneru að því alvar­lega atviki sem átti sér stað á leik­vell­inum í Folda­hverfi; íbúar væru eðli­lega ugg­andi og að ekk­ert bólaði á svörum við beiðni um raf­ræna vöktun. Þá lagði blaða­maður einnig fram þá spurn­ingu hvað í raun stæði fyrir fram­kvæmdum og hvenær mætti reikna með að borgin réð­ist í upp­setn­ingu örygg­is­mynda­véla. Að lokum var borgin innt eftir því hvort ein­ungis yrði um þrjár örygg­is­mynda­vélar að ræða, sem sýna umferð inn og út úr Graf­ar­vogi eða hvort til greina kæmi að setja upp öfl­ugri raf­ræna vöktun innan hverfis.

Ábyrgir vísa hver á annan og svör borgaryfirvalda óljós

Fyr­ir­spurn blaða­manns sem beint var til þeirra Eiríks Búa Hall­dórs­son, verk­efna­stjóra hjá Reykja­vík­ur­borg og Evu Bergþóru Guð­bergs­dóttur, teym­is­stjóra sam­skipta­sviðs á skrif­stofu Borg­ar­stjóra og Borg­ar­rit­ara Reykja­víkur í gær­dag var svarað á þann hátt að Reykja­vík­ur­borg ætti í við­ræðum við lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Neyð­ar­lín­una. Engin frek­ari svör voru gefin en blaða­manni vísað áfram. „Þú gætir mögu­lega rætt við for­mann Skipu­lags­ráðs, Pawel Bartoszek eða for­mann Mann­rétt­inda-, lýð­ræðis- og nýsköp­un­ar­ráðs, Dóru Björt Guð­jóns­dóttur,“ var loka­svar Evu Bergþóru Guð­bergs­dóttur í tölvu­pósti nú í gær.

“Íbúar borg­ar­innar eiga að láta í sér heyra í fjöl­miðlum og eiga alls ekki að gef­ast upp“

Borgarfulltrúi styður rafræna vöktun og gagnrýnir seinkun framkvæmda

Þegar útséð var um að upp­gefnir tengiliðir myndu veita frek­ari upp­lýs­ingar um fram­gang verk­efnis gegnum tölvu­póst leit­aði blaða­maður til borg­ar­full­trúa í þeirri von að afla svara. Eyþór brást vel við fyr­ir­spurn og er á þeirri skoðun að efla ætti raf­ræna vöktun svo tryggja megi öryggi almennra borg­ara enn fremur á opin­berum svæðum borg­ar­innar. Hann segir til­kostnað við upp­setn­ingu fleiri örygg­is­mynda­véla á umferð­ar­svæðum til­tölu­lega lít­inn og að hlut­verk borg­ar­innar sé að vernda eigin þegna.

Hvetur íbúa til lýðræðislegra umfjallana á opinberum vettvangi

Þá segir Eyþór opna umræðu meðal almenn­ings og lýð­ræð­is­lega þátt­töku borg­ar­búa eitt öfl­ug­asta verk­færið til að knýja fram svör og aðgerðir yfir­valda. “Íbúar borg­ar­innar eiga að láta í sér heyra í fjöl­miðlum og alls ekki gef­ast upp,“ segir hann aðspurður hvað höf­uð­borg­ar­búar eigi að gera til að knýja fram úrbætur. „Ég minni að lokum á að næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram að ári liðnu,“ sagði borg­ar­full­trúi að lokum. Ef taka á mið af orðum Eyþórs, er því lítið annað að gera fyrir höf­uð­borg­ar­búa en að halda mál­efnum á lofti á opin­berum vett­vangi og það meðal ann­ars með opinni umræðu gegnum íbúa­hópa á sam­skipta­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi