Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hrafn hæðist að nýjasta útspili Miðflokksins

„Bara ein­hver random biss­nesskall á jeppa sem rúllar inn af golf­vell­inum og er strax mættur í sígilda hlað­varpas­hring­rúnks­hring­inn að tala um að breikka götur, drepa borg­ar­lín­una og töfra fram nýtt leik­skóla­starfs­fólk.“

Hrafn hæðist að nýjasta útspili Miðflokksins
Ari Edwald Hrafn dregur Ara og Mið­flokk­inn sundur og saman í háði Mynd: Facebook

Hrafn Jónsson, starfs­maður á miðl­un­ar­sviði ASÍ og fyrr­ver­andi blaða­maður, gerir kald­hæðna og harða atlögu að hug­myndum um að Ari Edwald verði nýtt and­lit í borg­ar­málum. Í Facebook-færslu veltir Hrafn fyrir sér nýlegu útspili Mið­flokks­ins og þeirri ímynd sem þar er dregin upp af Ara sem mögu­legum leið­toga í sveit­ar­stjórn­ar­málum.

Hrafn lýsir í upp­hafi eigin dagdraumum um að hefja nýtt líf í nýju bæj­ar­fé­lagi, án þess þó að verða strax mið­punktur athygl­innar.

„Stundum dagdreymir mig líka um að pakka öllu ofan í tösku, vippa fjöl­skyld­unni í bíl­inn og hefja nýtt líf í nýju bæj­ar­fé­lagi. Stinga niður djúpum rótum; ganga í kór­inn, kannski vera í rótarý­klúbb. Nikka nýja granna á morg­un­göng­unni í algjör­lega nýjum takti.“ Hann segir hins vegar að í sínum villt­ustu draumum verði hann ekki „bæj­ar­stjóra­efni dag­inn sem ég stíg inn í bæinn,“ en við færsl­una birtir Hrafn skjá­skot af frétt Vísis þar sem fram kemur að Ari hafi flutt til Reykja­víkur í dag en und­an­farið hefur hann verið bæði skráður í Portúgal og í Garðabæ.

Í færsl­unni dregur Hrafn upp ýkta mynd af Ara Edwald sem nýjum leik­anda á póli­tíska svið­inu og gagn­rýnir þá hug­mynd að hægt sé að flytja rekstr­ar­hugsun úr við­skipta­líf­inu beint yfir í borg­ar­stjórn. „En ég er heldur ekki stór­huga við­skipta­maður sem er mættur til að láta verkin tala; sópa göt­urnar, mála yfir veggjakrotið, mæta sjálfur á mal­bik­un­ar­vél­inni til að bæta nýjum akreinum við stofnæðar.“ Hann bætir við að Ari sé „alvöru biss­ness­maður“ og jafn­framt „heims­borg­ari. Með fætur í tveimur heimum; þeim garð­bæska og hinum portú­galska,“ og stingur jafn­framt upp á því, með kald­hæðni, að slíkt teng­ist „djúpum fjöl­menn­ing­ar­legum áhuga frekar en ein­hverju svoköll­uðu skatta­hag­ræði.“

Hrafn segir útspil Mið­flokks­ins vekja kátínu fremur en sann­fær­ingu. „Ég verð að við­ur­kenna að þetta útspil Mið­flokks­ins er smá fyndið.“ Hann telur aug­ljóst að hér sé um til­raun að ræða til að fylgja ákveðnu póli­tísku mynstri. „Aug­ljós­lega er þetta ein­hvers­konar til­raun til að fara í frum-trumpíska mód­elið (eða bara gamla Sjálf­stæð­is­mód­elið) að grafa upp ein­hvern nokkurn veg­inn random mann úr við­skipta­líf­inu því að TIL AÐ REKA BORG ÞARF ALVÖRU REKSTRARMANN.“

Í fram­hald­inu líkir hann kynn­ing­unni á Ara Edwald við raun­veru­leika­þátt. „Meira að segja tea­s­er­inn sem Mið­flokk­ur­inn setti út í gær var eins og ein­hver bastarð­is­eruð sena úr The Apprentice.“ Hann segir þó að ákveðnir grund­vall­ar­þættir slíkrar svið­setn­ingar hafi vantað. „Það gleymd­ist alveg að búa til hæpið, búa til raun­veru­leika­þátt­inn. Ekki einu sinni ræt­inn Twitter aðgangur að gagn­rýna borg­ar­yf­ir­völd.“

Hrafn lýsir einnig undrun sinni á því hversu lítið Ari Edwald hafi verið sýni­legur í sam­fé­lags­um­ræðu fram til þessa. „Það er eng­inn á Íslandi búinn að hugsa um Ara Edwald í ára­tug, og Ari er ekk­ert búinn að setja sjálfan sig inn í þjóð­fé­lags­um­ræð­una heldur (nema gegn sínum vilja, ahem).“ Hann dregur upp mynd af manni sem birt­ist skyndi­lega á vett­vangi. „Bara ein­hver random biss­nesskall á jeppa sem rúllar inn af golf­vell­inum og er strax mættur í sígilda hlað­varpas­hring­rúnks­hring­inn að tala um að breikka götur, drepa borg­ar­lín­una og töfra fram nýtt leik­skóla­starfs­fólk.“

Að lokum spyr Hrafn hvort hugs­unin hafi náð dýpra en dag­legt pirr­ings­efni. „Ætli hann hafi eina sek­úndu pælt í borg­ar­skipu­lagi að öðru leyti en að vera pirr­aður í umferð­inni á leið­inni úr Garða­bænum?“ Hann lýkur færsl­unni með því að segja: „Það kemur vænt­an­lega í ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum