Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust vegna framkvæmda

Nettó­fjölgun plássa á árinu verður því 119

Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust vegna framkvæmda
Ráðhús Reykja­víkur. Talsverð fjölgun verður á leik­skóla­plássi á árinu Mynd: Víkingur

Ekki verður inn­ritað í fjóra leik­skóla í Reykja­vík á þessu ári vegna fram­kvæmda og við­halds, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg. Um er að ræða leik­skól­ana Hagaborg, Sæborg, Borg og Vina­gerði. For­eldrar eru hvattir til að yfir­fara og upp­færa leik­skólaum­sóknir sínar fyrir 2. mars 2026.

Úthlutun leik­skóla­plássa fyrir haustið 2026 hefst 2. mars og fer fram í kenni­tölu­röð, þar sem elstu börnin fá boð fyrst í þá skóla sem valdir voru í umsókn. Samtals detta 169 leik­skóla­pláss tíma­bundið út vegna fram­kvæmda, en á móti er gert ráð fyrir að 277 ný pláss bæt­ist við á árinu. Nettó­fjölgun plássa á árinu verður því 119.

Af nýju pláss­unum eru 25 þegar komin í Kletta­borg. Þá er gert ráð fyrir nýjum eða end­ur­nýj­uðum plássum í Árborg, Brák­ar­borg, Huldu­heimum og Selja­borg, auk nýs leik­skóla við Raf­stöðv­a­veg. Fram­kvæmdir eru mis­langt komnar, en áætlað er að starf­semi geti haf­ist í nýjum leik­skóla við Raf­stöðv­a­veg í lok árs 2026.

Fjölgun leikskólaplássa fyrirhuguð 2027

Reykja­vík­ur­borg gerir ráð fyrir veru­legri fjölgun leik­skóla­plássa árið 2027. Um mitt ár 2027 er áætlað að 372 ný pláss verði komin til sög­unnar með nýjum leik­skóla á Foss­vogs­bletti og við­bót­ar­húsum við Vest­ur­borg, Granda­borg, Jörfa, Mar­íu­borg og Hólaborg.

Bent er á að inn­ritun í ný pláss fari fram í áföngum þar sem tíma tekur að manna störf og koma starf­semi í fullan gang.

Hagaborg flytur í Grandaborg

Ákveðið hefur verið að flytja starf­semi Haga­borgar í nýupp­gert hús­næði Granda­borgar við Boða­granda í lok febr­úar. Með flutn­ingnum verður starf­semi Haga­borgar sam­einuð undir eitt þak. Leik­skól­anum Hagaborg verður lokað tíma­bundið frá 1. sept­em­ber vegna umfangs­mik­illa við­halds­fram­kvæmda og verður því ekki inn­ritað þar fyrir næsta skólaár. Öll börn með vistun í Hagaborg fær­ast sjálf­krafa yfir í Granda­borg.

Sæborg, Borg og Vinagerði

Í Sæborg þarf að fækka plássum á meðan stækkun stendur yfir og verður því ekki inn­ritað þar í haust. Í Borg verður heldur ekki inn­ritað vegna flutn­ings starf­semi og við­halds­fram­kvæmda. Leik­skól­inn Vina­gerði hefur verið lok­aður vegna ástands hús­næðis og verður ekki inn­ritað þar.

Fram kemur í til­kynn­ingu frá borg­inni að for­eldrar barna sem hafa valið Hagaborg, Sæborg eða Borg í umsóknum sínum, eða óskað eftir flutn­ingi þangað, þurfa að breyta umsóknum sínum fyrir 2. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi