Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnar Smári : „Björn Bjarnason getur oft verið sorglega vitlaus“

Gunnar Smári : „Björn Bjarnason getur oft verið sorglega vitlaus“

Gunnar Smári Egilsson fram­bjóð­andi Sós­í­alista­flokks­ins tók ummælum Björns Bjarna­sonar er snéru að honum,  sann­ar­lega ekki þegj­andi og hljóða­laust. Björn skrif­aði pistil inn á vef­síðu sína, Bjorn.is um Gunnar Smára og var hann óvægin í garð hans í skrifum sínum. Mannlíf fjall­aði um pistil Björns. Gunnar Smári svar­aði Birni fullum hálsi inn á Facebook hóp Sós­í­alista­flokks­ins,

hér má sjá færsl­una

.

Hér má sjá frétt Mannlífs um ummæli Björns Bjarna­sonar.

„Björn Bjarna­son getur oft verið sorg­lega vit­laus, eins og oft hentir ofstopa­menn. Hér er hann að fabúlera að vanda og mis­les allt; heldur að þar sem breyt­ingar voru sam­þykktar á skipu­lagi Sós­í­alista­flokks­ins á Sós­í­alista­þingi um helg­ina að þar með hafi ekk­ert af sam­þykktu skipu­lagi verið til áður. Hann sér því þarna stór­kost­lega svið­setn­ingu mína, að ég hafi dregið slembivalda kjör­nefnd upp úr hatti, nefnd sem síðan hafi haft sam­band við mig og ég svo svarað, allt á sama augna­blik­inu. Hið rétta er að kjör­nefnd hefur verið í skipu­lagi flokks­ins frá haustinu 2017 og rað­aði t.d. á lista flokks­ins fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ingar 2018, bæði í Reykja­vík og Kópavogi“.

Á þessum orðum hefst svar Gunnars Smára við ummælum Björns Bjarna­sonar.

Björn mik­ill dellu­kenn­inga­smiður

Gunnar segir Björn vera mik­inn dellu­kenn­inga­smið og hefur hann grun­aðan um að hafa fundið upp hug­takið Baug­spenni og þar á hann við það að Björn hafi reynt að draga úr vægi sínu og ann­ara starfs­manna á rit­stjórn Frétta­blaðs­ins á meðan þeir voru að leggja þá

„dóm­kirkju sem Moggin var, og sem hefði gert Björn að kar­dinála“

.

Studdi sprengjuregn og gróf undan mann­úðasinnum

Gunnar Smári heldur svari sínu áfram:

„Síðan hefur Moggi þessi verið nið­ur­setn­ingur á bæjum kvóta­greifa, æru­laus áróð­ur­spési. Í hug­ar­heimi Björns voru þetta hins vegar kalda­stríðs­á­tök, Baugur orð­inn að komm­ún­ista­flokki Sov­ét­ríkj­anna og Björn sjálfur brjóst­vörn lýð­ræðis, eins og þegar hann studdi sprengjuregn Banda­ríkja­hers í Víetnam og valda­rán Banda­ríkja­stjórnar í Chile og víða um heim. Og eins og Björn hafði grafið undan mann­úð­ar­sinnum sem mót­mæltu morðum Banda­ríkja­stjórnar, þannig vildi hann grafa undan blaða­mönnum á Frétta­blað­inu, óvinum sínum og auð­valdsklíkunnar sem hann til­heyrir.“

Gekk burt með fúlgur fjár

Svar Gunnars Smára endar svo á þessum orðum:

„Björn skiptir auð­vitað engu máli í íslenskri sam­fé­lags­um­ræðu, hann hefur bara áhrif á fáeina kjána sem hanga í bak­her­bergjum Val­hallar. Ég sá einn slíkan vitna óbeint í þessa þvælu um kjör­nefnd­ina á Facebook áðan og reyndi að átta mig á hvaðan þetta rugl gæti verið komið, hefði átt að fatta strax að þvælan átti upp­tök sín í við­brenndum kalda­stríðs-litla­heila Björns Bjarna­sonar.

Björn er á fóðrum hjá rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur eins og aðrir áróð­ur­skar­lar Val­hallar, Hannes Hólm­steinn og aðrir þesslags. Um dag­inn gekk Björn burt með fúlgur fjár fyrir að hafa sett saman dæma­laust grunn­hyggna skýrslu um land­búnað, maður sem hefur ekki einu sinni verið í sveit. Mikil guðs blessun verður það þegar alþýða manna þarf ekki bera kostn­að­inn við að halda svona mykju­dreif­urum að störfum. Þá verður betri lykt í sam­fé­lag­inu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina