Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytandi vikunnar: „Ég kaupi ekki hluti á afborgunum heldur legg fyrir og staðgreiði“

Neytandi vikunnar: „Ég kaupi ekki hluti á afborgunum heldur legg fyrir og staðgreiði“

Neytandi vik­unnar er Álf­heiður Eymars­dóttir odd­viti Pírata í Suð­ur­kjör­dæmi. Hún er búsett á Selfossi ásamt börn­unum sínum tveimur sem eru 15 og 18 ára og kisu. Yfir­leitt eru þau því þrjú á mat­máls­tímum en það kemur fyrir að tengda­sonur Álf­heiðar bæt­ist í hóp­inn. Álf­heiður er stjórn­mála­fræð­ingur að mennt og hefur starfað nær ein­göngu í tengslum við stjórn­mál og störfum tengdum þeim frá árinu 2017. Fyrir þann tíma starf­aði hún mest­megnis innan tölvu­geirans, við stjórn­un­ar­störf og verið sjálf­stætt starf­andi.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst?

„Ég myndi gróf­lega áætla að við eyðum að með­al­tali um 120 þús­und krónum á mán­uði í mat og rekstr­ar­vörur. Þetta rokkar þó á milli mán­aða, fer eftir því hvað mikið er að gera og hversu margir eru í húsi. Ef mjög mikið er að gera þá nýti ég þjón­ustu “Eldum rétt” og fæ sent heim nákvæmt magn í kvöld­verði vik­unnar. Þetta er aðeins dýr­ara en að versla en tíma­sparn­aður og minni mat­ar­sóun vegur sterkt upp á móti. Við eyðum um 30 þús­und í netteng­ingar, far­síma og áskriftir að efn­isveitum því tengdu. Hiti og raf­magn eru um 18 þús­und á mán­uði. Ég er leigj­andi þannig að ég greiði bara inn­bús­trygg­ingu til við­bótar leigu. Við verslum helst í Krónunni og Bónus, notum Nettó og Kram­búð­ina fyrir smott­erí sem þarf, sér­stak­lega á ókristi­legum tímum“.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

„Ég reyni að velja ódýrasta kost­inn fyrir alla mat­vöru ef ég tel gæðin ekki skipta öllu máli. En það eru ákveðnir hlutir sem ég spara ekki í, svo sem kaffi­baunir og kló­sett­pappír. Einnig vel ég vörur frá minni fram­leið­endum til að efla nýsköpun og fjöl­breytta fram­leiðslu. Ég myndi vilja geta keypt mat­vör­una á net­inu og fá heim­sent. Þessu vand­ist ég í Bret­landi og það er afskap­lega þægi­legt. Það væri líka ósk­andi að okkur sem neyt­endum væri gert kleift að meta gildi líf­rænna kosta sem boðið er upp á, án þess að leggj­ast í tíma­freka rann­sókn­ar­vinnu. Sumir aug­lýsa rang­lega að varan sé líf­ræn, vist­væn o.s.frv. og ég sem neyt­andi hef tak­mark­aðar for­sendur til að meta mis­mun­andi gæða­vott­anir og stimpla og læt því oft blekkj­ast. Þá vildi ég að verð á hollri mat­vöru, líf­rænum kostum, græn­meti og ávöxtum væri lægra. Það er hálf­fúlt að það sé alltaf ódýr­ast að kaupa óholl­ari kost­ina“.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er?

 „Ég legg fyrir þegar ég get. Ég nota sparn­að­ar­reikn­ing og sér­eign­ar­sparnað, nota helst ekki greiðslu­kort. Mér leið­ist að vera eftir á í bók­hald­inu. Ég vand­ist því í Bret­landi að eyða í raun­tíma og áætla fram í tím­ann. Ég kaupi ekki hluti á afborg­unum heldur legg fyrir og stað­greiði. Þetta er stress­laus­ara heim­il­is­bók­hald fyrir mig. Ég var föst í víta­hring greiðslu­korta og yfir­drátt­ar­heim­ilda en sá tími er löngu lið­inn og kemur von­andi aldrei aftur! “.

 Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu?

 „Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvort álagn­ingin sé sann­gjörn svo ég er hik­andi við að dæma. Ég sakna þess að hafa ekki yfir­sýn yfir gjöld frá hinu opin­bera á vör­urnar. Á verð­mið­anum sé ég vaskinn en ég sé ekki tolla og inn­flutn­ings­gjald o.fl. sem ég veit að er oft til staðar. Ég geri verð­sam­an­burð og versla kaffið þar sem það er ódýr­ast o.þ.h. Þetta er þó ekki kerf­is­bund­inn sam­an­burður og örar verð­breyt­ingar gera mér oft erfitt fyrir“.

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán?

 „Engin lán. Ég er leigj­andi. Ég var hús­eig­andi með verð­tryggð 40 ára lán og sá þau hækka frá ári til árs. Ég sé ekki fram á að verða hús­eig­andi aftur í bráð. Mér líður vel eigna- og skuld­laus. En ef ég fjár­festi aftur í fast­eign þá myndi ég velja óverð­tryggt lán. Verð­trygg­ingin leggst ofan á höf­uð­stól láns. Vextir leggj­ast svo ofan á verð­trygg­ing­una sem er komin á höf­uð­stól­inn, þannig að verð­trygg­ing eru vaxta­vextir. Þetta er okur­lána­starf­semi að mínu mati“.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli?

„Umhverf­is­vernd skiptir mig miklu máli. Við reynum að minnka mat­ar­sóun og erum með afganga- bixí-mat á föstu­dögum. Við veljum umhverf­is­væna kosti ef við erum örugg með að þeir séu í raun umhverf­is­vænni og ekki of dýrir fyrir budd­una. Ég hætti alveg að kaupa ný föt fyrir tveimur árum og kaupi núna bara föt af fata­mörk­uðum. Ég kynnt­ist þessu í Bret­landi og hef alltaf notað Rauða Krossinn og fleiri staði sem selja notuð föt en er farin að gefa meira í núna. Mér finnst með­vit­undin mik­il­væg­ust þegar kemur að umhverf­is­vernd. Við erum t.d. löngu hætt að kaupa óþarfa dót. Ein­fald­ari lífs­stíll þar sem við kaupum aðeins það sem við þurfum og það sem veitir okkur ómælda gleði. Við mæðgur neitum einnig að taka þátt í snyrti­vöru­sam­sær­inu gagn­vart óör­yggi kvenna. Við kaupum lítið af snyrti­vörum. Erum nægju­samar. Svo finnst okkur mál að linni með pakkn­inga­farganið. Stundum erum vörur í þre­földum umbúðum: Pappír, ál og plast. Umhverf­is­vænar pakkn­ingar, fram­leiðslu­að­ferðir og flutn­inga mætti bæta. Mig langar oft að snið­ganga fyr­ir­tæki og vörur sem ég tel vera í rugl­inu en stundum neyð­ist ég til að kaupa óum­hverf­is­vænar vörur þar sem ekk­ert annað er í boði. Það væri ósk­andi að neyt­endur gætu sett meiri þrýst­ing á fram­leið­endur neyslu­varn­ings að taka sig á í umhverf­is­vernd. En það er hæg­ara sagt en gert þegar úrvalið er fábrotið og fákeppni á mörgum mörk­uðum“.

Annað sem þú vilt taka fram ?

„Það er erfitt að vera full­upp­lýstur neyt­andi á Íslandi. Upp­lýs­ingar og gagn­sæi er ekki nóg. Hvað þýða hinar og þessar vott­anir ? Hvaða vott­un­ar­að­ilum er hægt að treysta? Hvaða gjöld eru hirt af hinu opin­bera af hvaða vörum (þetta mætti til­taka á umbúðum eða á verð­miða úr versl­unum). Sam­an­burður á verði í raun­tíma væri einnig mjög góður“.

Hvaða mál og málaflokka telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á ?

„Það þarf vel valdar grund­vall­ar­breyt­ingar til að kippa okkur inn í 21. öld­ina. Við erum enn föst í fyr­ir­greiðslu­sam­fé­lagi 20. ald­ar­innar. Það er ekki væn­legt til árang­urs inn í fram­tíð­ina. Við þurfum að fá nýja stjórn­ar­skrá. Við þurfum að tryggja vel­sæld og heil­brigði allra, barna, ung­menna, náms­manna, barna­fjöl­skyldna, öryrkja og eldra fólks. Það þarf kerf­is­breyt­ingar á Almanna­trygg­inga­kerf­inu, í sjáv­ar­út­veg­inum, í heil­brigð­is­þjón­ustu í víðum skiln­ingi (geð­heil­brigði, fíkni­sjúk­lingar, heilsu­gæsla o.fl.), og í mennta­kerf­inu. Við þurfum að tryggja öllum fram­færslu og hús­næði. Og svarið við þessu öllu er bar­áttan gegn spill­ingu. Til að geta útrýmt fátækt og tryggt vel­sæld allra, þá þurfum við að sjá til þess að allir spili eftir sömu leik­reglum. Það er nóg til. Úrelt fyr­ir­greiðslu­kerfi, sér­stak­lega þegar kemur að skatt­kerfi og auð­linda­nýt­ingu, aukin sam­þjöppun og fákeppni gera það að verkum að auð­söfnun fárra nýt­ist ekki þjóð­inni. Þessu ætla Píratar að breyta“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina