Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eyþór Arnalds: „Þetta mál er allt saman eins og lyginni líkast“

Eyþór Arnalds: „Þetta mál er allt saman eins og lyginni líkast“
Eyþór Arnalds fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Mynd: Hallur Karlsson

Málefni mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða hafa verið í brennid­epli að und­an­förnu, en deilur hafa staðið um vænt­an­lega eða mögu­lega stað­setn­ingu hennar og flutn­ing til Hafn­ar­fjarðar. Áætlaður flutn­ingur stöðv­ar­innar til Ásvalla í Hafn­ar­firði hefur vakið upp hörð við­brögð íbúa hverf­is­ins, og virð­ast íbúar á einu máli um að þeir vilji ekki fá meng­andi verk­smiðju inn í vax­andi fjöl­skyldu­hverfi. Meðal ann­ars hefur verið settur í gang und­ir­skrift­ar­listi gegn fyr­ir­hug­uðum flutn­ingi Höfða frá Reykja­vík til Hafn­ar­fjarðar.

Mannlíf náði tali af odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, Eyþóri Arnalds.

Eyþór er spurður hvort það geti raun­veru­lega verið satt að Reykja­vík­ur­borg sé nán­ast í myrkri nætur að lauma mal­bik­un­ar­stöð bak­dyra­megin inn í Hafn­ar­fjörð, eins og haldið hefur verið fram af meiri­hlut­anum í Hafn­ar­firði sem er undir stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sóknar?

„Já, það virð­ist vera og þetta mál er allt saman eins og lyg­inni lík­ast,“ segir Eyþór og bætir við:

„Í fyrsta lagi er það  tíma­skekkja að Reykja­vík­ur­borg sé að reka mal­bik­un­ar­stöð í sam­keppni við aðila á mark­aði. Og í raun fárán­legt með öllu.“

Eyþór nefnir að „borgin er að kaupa mal­bik af sjálfri sér eins og Sam­bandið sál­uga á síð­ustu öld. Borgin hefur gerst brot­leg við lög um opin­ber útboð í ýmsum málum und­an­farið.

Það var lagt upp með að skoða sölu á Mal­bik­un­ar­stöð­inni Höfða í byrjun kjör­tíma­bils­ins en núna á að fjár­festa í að flytja rekst­ur­inn í Hafn­ar­fjörð þrátt fyrir að Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði sé með vil­yrði fyrir lóð við Esjumela.“

Eyþór nefnir einnig að Reykja­vík eigi nóg land til:

„Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði fékk lóð í Reykja­vík – sem er nú meira heldur en margir fá – en nú á ekki að nota hana. Það þarf dálítið mikið til að borgin sjálf geti ekki rekið eigið fyr­ir­tæki í Reykja­vík; borgin á gríð­ar­legt land, enda langstærsta sveita­fé­lagið. En af ein­hverjum óskilj­an­legum ástæðum, ja, jafn­vel dull­ar­fullum ástæðum, hefur meiri­hlut­inn verið að reyna að lauma stórri mal­bik­un­ar­stöð til nágranna okkar í Hafn­ar­firði. Mér finnst það frekar ódrengi­legt að koma ekki hreint fram. Og borga­stjóri forð­ast að tjá sig um málið, opin­ber­lega eða ann­ars staðar. Það er stundum þannig að þegar fólk er með slæma sam­visku að  þá lætur það svona.“

Eyþór hefur verið í sam­bandi við Hafn­firð­inga vegna máls­ins og segir að „ég hef heyrt óform­lega í fólki í Hafn­ar­firði – og því er brugðið Mér finnst þetta vera vinnu­brögð fyrir neðan allar hellur. Kjörnir full­trúar eiga ekki að koma svona fram á bak­við tjöldin. Sjálf­stæð­is­menn í Reykja­vík voru og eru á móti þessum mála­til­bún­aði, frá upp­hafi og við vildum selja mal­bik­un­ar­stöð­ina. Okkur finnst stór­skrýtið að Viðreisn sé að vasast í þessu máli, flokkur sem seg­ist styðja frjálsan markað. Það þarf að hætta þess­ari leynd­ar­hyggju og kryfja þetta til mergjar og fá allt varð­andi það upp á yfir­borðið. Kjós­endur í Reykja­vík og íbúar í Hafn­ar­firði eiga það skilið.“ segir Eyþór Arnalds.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina