Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auður lærði að elska sjálfa sig: „Ég hafði ekkert sjálfstraust og það stoppaði mig í ýmsu“

Auður lærði að elska sjálfa sig: „Ég hafði ekkert sjálfstraust og það stoppaði mig í ýmsu“
Auður Kristín Gunn­ars­dóttir

„Ég fann oft fyrir félags­kvíða á grunn­skóla­ár­unum. Ég þorði bara engu. Ég þorði lítið að kynn­ast krökk­unum og úti­lok­aði mig mjög mikið. Ég hafði ekk­ert sjálfs­traust og það stopp­aði mig í ýmsu. Ég reyndi að fara í íþróttir en gafst alltaf upp í stað­inn fyrir að halda áfram. Ef eitt­hvað var erfitt þá gafst ég bara upp. Ég var mikið ein á þessum tíma en það styrkti mig samt sem mann­eskju og ég lærði mikið á sjálfa mig,“ segir Auður Kristín Gunn­ars­dóttir, kenn­ara­nemi og mynd­list­ar­maður.“

Árin liðu. Hún ákvað eftir grunn­skóla­nám að hefja nám við Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti og ákvað að fara á mynd­list­ar­braut af því að nokkrar vin­konur hennar gerðu það. Hún segir að hún hafi ekk­ert verið sér­stak­lega góð í að teikna og mála þegar hún hóf þar nám en reyndin var önnur eftir námið.

„Það var ekki fyrr en ég FB sem ég byrj­aði að kynn­ast fólki.“

Hún fann þó áfram fyrir kvíða varð­andi fleira en að kynn­ast fólki.

„Ég held ég hafi verið kvíðin yfir því að mis­takast; að fá ekki bestu ein­kunn eða falla. Ég hafði enga trú á sjálfri mér ef ég segi eins og er. Ég horfði á aðra í kringum mig og var allaf að meta mig við aðra. Ég hafði lítið sjalfs­traust; ég var ekki með neitt sjálfs­traust í grunn­skóla og ekki mikið í FB.“

Hún útskrif­að­ist síðan af mynd­list­ar­braut FB og segir að hún hafi þá ekki vitað hvort hún vildi gera eitt­hvað með gráðuna sína. Reynslu sína.

„Ég vissi ekki hvaða atvinnu­mögu­leika ég vildi sækj­ast eftir. Ég vann eftir útskrift í Góða hirð­inum í tvö til þrjú ár og síðan fór ég að vinna sem stuðn­ings­full­trúi í grunn­skóla til að sjá hvort ég hefði áhuga á kenn­ara­starfi og vann þar í tvö ár. Ég fann að mig lang­aði til að verða kenn­ari hvort sem það yrði ensku­kenn­ari eða mynd­list­ar­kenn­ari og er nú í meist­ara­námi í grunn­skóla­kenn­ara­fræðum með ensku sem kjör­svið.“

Sjálfsvinna

Sjálfs­traustið kom smátt og smátt á full­orð­ins­ár­unum og Auður Kristín vann sjálf í því að styrkja sig.

„Því eldri sem maður verður þeim mun meiri tíma hefur maður haft með sjálfum sér til þess að átta sig á því hvar styrkirnir eru og hvar veik­leik­arnir eru og læra á þá almennt. Ég held að með allt svona – kvíða og van­líðan – þá þurfi maður mikið bara að kúpla sig út og smátt og smátt að byggja sig upp. Pabbi minn sagði oft þegar mér leið illa að það kæmi betri dagur eftir þennan dag og ég hef algjör­lega þulið það í höfð­inu mínu þegar mér líður illa. Ég veit að ef mér mis­tekst í dag þá kemur annar dagur á morgun. Hvort hann verður verri eða betri fer allt eftir mínu eigin hug­ar­fari. Ég byrja alla daga á því að vera ákveðin í því að sá dagur verði góður dagur. Ég byrj­aði á þessu þegar ég var um tví­tugt og mér finnst það hafa góð áhrif hvað varðar jákvæðn­ina. Ég er jákvæð í eðli mínu og ég reyni mitt allra besta til að vera jákvæð jafn­vel þótt maður fari í gegnum erf­iðar stundir og jafn­vel þótt það sé erfitt að við­halda því að vera jákvæður allan tím­ann þá er ekk­ert sem stoppar mann nema maður sjálfur. Og í gegnum alla mína van­líðan þá veit ég að ég hef stjórn á því hvernig ég muni haga mér og hvernir dag­ur­inn muni verða. Ég mun aldrei geta stjórnað því hvernig aðrir muni koma fram og ég get aldrei stjórnað því hvernig öðrum finnst ég vera en ég get stjórnað því hvernig ég vil hafa aðstæður mínar og hvernig ég kem fram. Og oft­ast ef ekki alltaf þá skilar það sér í ein­hverju góðu. Maður verður að vera ákveð­inn í því að skoða jákvæðu hlut­ina í stað­inn fyrir þá nei­kvæðu. Ég gæti alltaf leitað mér hjálpar og mér finnst það vera ótrú­lega flott ef fólk leitar sér hjálpar en ég hef alltaf haft áhyggjur af því að leita mér hjálpar og hef ekki þorað það. Ég lærði það af föður mínum að maður heldur bara áfram. Ég hefði ekki verið svona dug­leg í að byggja mig upp ef það hefði ekki verið fyrir for­eldra mína og systur og annað fólk í kringum mig eins og mann­inn minn en hann er alltaf að byggja mig upp og hrósa mér.“

Núvitund

Auður Kristín segir að það hafi ekki verið fyrr en hún byrj­aði með mann­inum sínum sem hún byrj­aði að læra að elska sjálfa sig.

„Ég hef alltaf fengið mik­inn stuðn­ing heima við; for­eldrar mínir eru algerir meist­arar í því að styðja okkur syst­urnar áfram. Fólkið í kringum mann og maður sjálfur skiptir miklu máli varð­andi þetta – ef maður hefur gott bak­land þá þarf maður eig­in­lega að gera þetta sjálfur og vera ákveð­inn í að byggja sjálfan sig upp.

Ég mála, hlusta á hlað­vörp og tón­list og það sem mér finnst vera mik­il­vægt er að kúpla sig út úr því að vera að fylgj­ast með öllu og öllum í kringum sig og vera ekki alltaf í sím­anum og fylgj­ast með á sam­fé­lags­miðlum sem ég er líka sek um. En strax og ég læt eitt­hvað í hlað­varp eða hlusta á tón­list og kúpla mig út frá öllum hugs­unum þá finnst mér ég ná ein­hverri hug­arró. Það er líka hægt að fara í göngutúr án þess að taka sím­ann með og bara njóta þess að vera til á þess­ari stundu.

Ég held að flestir eigi erfitt með hvað þeir eru upp­teknir af því sem gerð­ist í for­tíð­inni eða hvað muni ger­ast í fram­tíð­inni í stað­inn fyrir að sitja og hugsa hvað er að ger­ast núna og hvernig þá langar til að líða núna. Vill mér líða vel eða ætla ég að festa mig á því sem ein­hver sagði um dag­inn eða hvað gerð­ist fyrir fimm eða 10 árum? Mun ég ein­hvern tím­ann geta keypt íbúð eða farið til útlanda? Við erum alltaf svo upp­tekin af því hvað muni ger­ast eða hvað hefur gerst en mér finnst vera mik­il­vægt að sitja bara og njóta þess hvernig augna­blikið er núna. Það var ekki fyrr en ég eign­að­ist dóttur mína, sem er að verða tveggja ára, sem ég alger­lega nýt hvers augna­bliks í núinu. Ef það væri ekki fyrir hana þá væri ég örugg­lega ennþá að reyna að pæla í því hvað ég myndi gera næst. Ég reyni aldrei að horfa aftur á bak. Ég horfi bara fram á við. Núna er ég alger­lega föst í deg­inum í dag. Í mín­út­unni í dag. Í sek­únd­unni í dag.“

Hugarró og hamingja

Auður Kristín segir að eftir útskrift frá FB hafi löngun til þess að mála sífellt minnkað með hverju ári.

„Mér finnst vera gaman að mála en ég var eig­in­lega búin að gleyma því hvað maður upp­lifir þægi­lega og rólega til­finn­ingu við það að mála. Það tekur allt stress og kvíða í burtu og maður er bara einn í sínum heimi.“

Þrátt fyrir þá góðu til­finn­ingu sem það að mála gefur henni þá voru mál­ara­trön­urnar svo­lítið van­ræktar í nokkur ár. Það var svo ekki fyrr en vin­kona Auðar Krist­ínar bað hana í sumar um að laga nokk­urra ára gam­alt mál­verk sem hún hafði gefið henni að eitt­hvað gerð­ist.

„Ég alger­lega kol­féll fyrir því að mála. Þessi mynd kveikti alger­lega neist­ann í mér til að fara að mála aftur. Stundum þarf maður eitt svona tæki­færi til að halda alger­lega áfram. Þetta er ógeðs­lega gaman. Þetta er eitt­hvað sem ég vil gera þegar ég hef frí­tíma en þegar mig vantar afslöppun þá er þetta full­komið. Ég mun pott­þétt halda áfram að mála,“ segir lista­konan og má geta þess að hægt er að skoða verkin hennar á bæði Facebook-síð­unni Ausitaus og Instagram-síð­unni ausitausi­art.

Málverk af konum eru áber­andi.

„Það er ekk­ert útpælt. Mér finnst samt vera ótrú­lega fal­legar línur í and­lit­inu á konum. Þær eru svo mjúkar. Það er eitt­hvað fal­legt og rólegt við kven­manns­and­lit. Hvort sem það eru konur eða karlar þá er það svo ein­kenni­legt að maður getur lesið svo mikið úr and­litum fólks. Svo margar til­finn­ingar.“

Til­finn­ingar. Það að sitja við mál­ara­trön­urnar hefur áhif á til­finn­ingar Auðar Krist­ínar sem kallar sig lista­manns­nafn­inu Ausitaus þegar svo ber undir. Og hún málar aðal­lega fyrir sjálfa sig, enda líður henni vel við þá iðju.

„Ég held að meg­in­á­herslan með þessum Facebook- og Instagram-síðum sé að deila því sem ég er að gera. Mér finnst vera gaman að mála og mér finnst vera gaman að sýna það sem ég hef gert. Ég held ég muni alltaf mála til að upp­lifa ákveðna hug­arró og hvort fólk hafi áhuga á því eða ekki kemur í ljós; það eru allir vel­komnir að skoða, kaupa eða bara fylgj­ast með. Það veitir mér líka ham­ingju að mála. Ég held ég muni örugg­lega mála bara fyrir gleð­ina og fyrir mig sjálfa. Þótt maður sé í lægð eða hvað sem það er, hvenær sem það er og hversu lengi sem það stendur yfir þá getur maður alltaf ef vilj­inn er fyrir hendi dregið sig aftur upp og það getur maður meðal ann­ars gert með því að gera það sem veitir manni ham­ingju hvort sem það er að fara út og spila fót­bolta, fara út í nátt­úrna eða mála. Það er eng­inn sem stoppar mann nema maður sjálfur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina