Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Leyfir þú að ókunnugir menn gefi konu þinni gjafir eða börnunum þínum áfengi?“

„Leyfir þú að ókunnugir menn gefi konu þinni gjafir eða börnunum þínum áfengi?“
Ragnar Önund­ar­son.

„Norðmenn eru 17 sinnum fleiri en við. Þeir voru löngu búnir að afgreiða O3. Þeir líta svo á að við höfum fengið að ,,fljóta með” í EES. Ef við hefðum hafnað pakk­anum, eftir að hafa dregið afgreiðslu hans árum saman, hefði það haft afleið­ingar, les ég á milli lín­anna að þeir hafi sagt íslenskum stjórn­völdum,“ skrifar Ragnar Önund­ar­son í færslu á stórum sam­fé­lags­miðla­hópi.

Bætir við:

„Það hefði skaðað Noreg, sem nýtir sæstrengi sína núna með hagn­aði. Gengið er hart fram í vind­myllu­væð­ingu lands­ins; ísald­ar­klapp­irnar eru sprengdar í stórum stíl til að gera vegi og und­ir­stöður fyrir óskapn­að­inn,“ segir Ragnar og bætir við að „reynslu­litlir for­ystu­menn okkar brugð­ust; leyndu vand­anum fyrir umbjóð­endum sínum – kjós­endum. Þeir glímdu við vanda­málið miss­erum saman en fundu enga lausn. Aðeins sann­leik­ur­inn getur gert menn frjálsa. Tími er löngu kom­inn til að þeir komi út úr skápnum sem þeir hafa falið sig í. Það munu þeir samt aldrei gera; kosn­ingar eru líka í nánd og myrkrið í skápnum er við­eig­andi tákn fyrir þeirra slæmu sam­visku.“

Sigurjón Jónsson leggur orð í belg:

„Skrítið að þetta skuli ekki vera orðið að kosn­inga­máli.“

Skúli Jóhanns­son nefnir að „það sem ein­kennir þróun orku­pakka ESB síð­ustu miss­erin er sú áhersla sem lofts­lags­málin hafa fengið. ESB heldur utan um lofts­lag­s­pakka aðild­ar­ríkj­anna, þar á meðal skrán­ingu í meng­un­ar­málum og grein­ingu mark­miða, í sam­ræmi við Par­ís­ar­sam­komu­lagið sem flest ef ekki öll aðild­ar­ríkin hafa sam­þykkt“ segir Skúli og nefnir að

„ESB er ekki að skipta sér af því hvernig þjóðir ESB virkja og með hvaða teg­und virkj­ana; til dæmis hvort Norðmenn reisi vindraf­stöðvar eða ekki. Það er alfarið á þeirra eigin valdi.

Norðmenn voru í for­ystu­hlut­verki á 10. ára­tugnum í að gang­setja raf­orku­mark­að­inn NordPool sem gengur afar vel í dag. Það tók þá 10 ár að stilla mark­að­inn af fyrir eigin þarfir og ann­arra, enda var það frum­kvöðla­starf.“

Hann nefnir að Norðmenn hafi sjálfir tekið ákvörðun um sæstrengi sína og með því að aðlaga sölu á flutn­ings­getu sæstrengs­ins NORNED að kerfum EBS árið 2011 hafi náð­ist mik­ill hagn­aður „sem rann til Norð­manna, en kap­all­inn var greiddur upp á met­tíma. Hvernig þeir hafa ráð­stafað þessum hagn­aði inn­an­lands er þeirra mál. Eftir reynsl­una af NORNED hafa fleiri sæstrengir verið lagðir sem tengja Noreg við önnur lönd í Evrópu.

Ég skil ekki hvað er að þessu?“

Sigurjón færir í tal að „það sem aðal­lega heldur okkur frá því að leggja sæstreng til Evrópu á eigin vegum er að fjár­fest­ingin gæti orðið okkur ofviða. Of mikil áhætta gæti falist í því að leggja sæstreng í fyrsta sinn yfir úthaf,“ og bætir við:

„Hugsum okkur að ef Íslend­ingum stæði til boða að gjöf á morgun, 1 stykki full­kláraðan sæstreng til Evrópu án end­ur­gjalds, þá mundum við að sjálf­sögðu þiggja gjöf­ina. Mál­flutn­ingur margra hér á landi hefur verið þannig að eitt­hvað slæmt mundi stafa af sæstreng og ætti því alls ekki að þiggja slíka gjöf. Það er aldeilis frá­leitt en svona hefur áróð­ur­inn á móti orku­pökk­unum því miður verið.

Það sem ég hef áhuga á er að drífa í að koma upp sam­keppn­i­smið­uðum íslenskum raf­orku­mark­aði sem allra fyrst og feta þannig í fót­spor Norð­manna. Þetta ætti að vera minna verk núna í ljósi reynslu síð­ustu ára.“

Einar Gunnar Birg­is­son stígur fram með fjað­ur­penna sinn sem inni­heldur bæði blóð og blek og skrifar af mik­illi „þekk­ingu“ og með allar „upp­lýs­ingar“ í höfði sér og fyrir framan sig: Og svo sann­ar­lega eru „rök­semd­irnar“ til staðar sem og „mál­efna­þekk­ing“ af „hæstu gráðu“ og nefnir tvö afar „við­eig­andi“ dæmi máli sínu til sönn­unar.

„Skùli – gefa okkur sæstreng? Virkja síđan hverja sprænu lands­ins og umhverf­isòvænar vind­myllur um allt! Leyfir þù ađ òkunn­ugir menn gefi konu þinni gjafir? Eđa börn­unum þìnum àfengi?“

Skúli svarar athuga­semd­inni með eft­ir­far­andi orðum:

„Einar Gunnar Birg­is­son,  þetta var nú bara hugs­ana­dæmi hjá mér. Ég er ekki á því að blanda per­sónu­legum högum mínum inn í þetta mál.“

Má segja með þessu inn­leggi frá Einari hafi áhug­inn á færsl­unni orðið álíka mik­ill og það að ráða Ingó Veðurguð til að spila á grunn­skóla­balli á kom­andi hausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina