Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenski kexkóngurinn sem keypti breskt fótboltalið

Íslenski kexkóngurinn sem keypti breskt fótboltalið
Eggert og Björgólfur á meðan allt lék í lyndi.

Íslend­ingar tóku and­köf, haustið 2006, þegar það spurð­ist út að Eggert Magn­ús­son, fyrr­ver­andi for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, færi fyrir hópi fjár­festa sem vildi kaupa enska úrvals­deild­ar­liðið West Ham. Þetta vakti gríð­ar­lega athygli en Íslend­ingar höfðu áður komið við sögu í ensku knatt­spyrn­unni þegar þeir keyptu Stoke City. En West HAm var miklu stærra mál.

„Málið er á byrj­un­ar­reit,“ sagði Eggert við Morg­un­blaðið og stað­festi þar með frétt­ina.

Stór­frétt Moggans

Eggert bætti við að West Ham væri sögu­frægur alvöru­klúbbur, með flottan fram­kvæmda­stjóra, frá­bæra knatt­spyrnu­menn, flotta umgjörð og frá­bæran stuðn­ings­manna­hóp.

Og Eggert hélt áfram að tjá sig við Moggann um vænt­an­leg stór­tíð­indi.

„Þetta er ein­fald­lega bara spenn­andi fyrir svona karla eins og mig, sem elska fót­bolta,“ sagði Eggert. Hann varð­ist allra fregna um það hverjir væru með honum eða að baki hans við að kaupa félagið sem var þá metið á 10 millj­arða króna. Getgátur voru uppi um það að útlend­ingar væru með honum í kaup­unum. Eggert var í sam­keppni um kaupin við íranska við­skipta­jöf­ur­inn Kia Joorabchian, sem sýnt hafði áhuga á að kaupa félagið. Sá náði ekki að fjár­magna kaupin og missti af lest­inni. Eggert hreppti hnossið. Þá kom á dag­inn að Björgólfur Guð­munds­son, sem þá var einn aðal­eig­enda Lands­bank­ans, var að baki honum.

Fornfrægt félag

West Ham var og er forn­frægt félag, stofnað 1895, með aðsetur í London. Liðið komst í úrvals­deild vorið 2004. Árið 2005 náði það níunda sæti í deild­inni, West Ham hafði ekki náð sér á strik árið 2006. Þegar Eggert kom inn í mynd­ina hafði liðið aðeins unnið einn leik af sjö og sat í 16. sæti deild­ar­innar.

Mánuði eftir að Eggert var kynntur til sög­unnar var upp­lýst að Björgólfur væri að baki honum. Á Íslandi var mikil ánægja með þennan hluta útrás­ar­innar. Eng­lend­ingar tóku Eggerti vel og virt­ust í fyrstu trúa því að hann væri aðal­maður að baki fjár­fest­ing­unni. Eggert varð stjórn­ar­for­maður West Ham og dag­legur stjórn­andi. Hann varð fljótt frægur ytra og pressan hamp­aði honum. Hann var ýmist nefndur kex­bar­ón­inn með vísan til þess að hann hafði stjórnað kex­verk­smiðj­unni Frón á Íslandi, eða Egghead með vísan til sköll­ótts höf­uðs hans og nafns. Breska pressan virt­ist standa í þeirri trú að auð­ævin að baki kaup­unum væru til­komin vegna íslenska mat­ar­kex­ins. Þar náði það ekki í gegn að Eggert var aðeins full­trúi Björg­ólfs Guð­munds­sonar.

Skiltið Eggert

Svo virð­ist sem aðal­eig­and­inn hafi orðið afbrýði­samur vegna þeirrar athygli sem Eggert fékk. Viðtal var við Björgólf Guð­munds­son í Observer um þetta leyti. Þar líkti Björgólfur Eggerti við Coca Cola-skilti en kom því ræki­lega á fram­færi hver væri aðal­eig­and­inn.

Aðeins leið rúmt ár frá því Eggert dúkk­aði upp sem lyk­il­maður og þar til Björgólfur los­aði sig við hann. Þetta ár hafði Eggert baðað sig í ljóma athygl­innar. Kex­kóng­ur­inn frá Íslandi var eft­ir­læti pressunnar sem á stundum sýndi hann í spaugi­legu ljósi. Aðeins 15 mán­uðum eftir að Eggert keypti félagið, þann 13. des­em­ber 2007, dró til tíð­inda. Björgólfur keypti 5 pró­senta eign­ar­hlut Eggerts Magn­ús­sonar í West Ham og ýtti honum út. Þá lagði hann 30 millj­ónir punda til rekst­urs félags­ins til að bæta fjár­hags­stöðu þess.

Fjallað var um rekstur Westham í tíma­rit­inu Mannlífi á sínum tíma. Í grein Sig­ur­jóns M. Egils­sonar var tíundað að óráðsía hefði verið í kaupum á leik­mönnum. Upplýst var um kaup­verð og mat lagt á kaupin. Slæmur rekstur var skrif­aður á Eggert sem þótti einnig ber­ast mikið á í starfi sínu fyrir félagið,

Björgólfur formaður

Þess var getið við starfs­lok Eggerts á því herr­ans ári 2007 að breyt­inga væri að vænta í rekstri félags­ins. Byggja átti nýjan völl sem tæki 60.000 manns í sæti. Við brott­hvarf Eggerts tók Björgólfur Guð­munds­son sæti for­manns stjórnar West Ham. Auk hans tók Ásgeir Frið­geirs­son, aðstoð­ar­maður hans, sæti í stjórn sem vara­for­maður.  Í til­kynn­ingu um breyt­ing­arnar var haft eftir Björgólfi Guð­munds­syni að ætl­unin væri að treysta und­ir­stöð­urnar í rekstri félags­ins.

„West Ham er gott félag með langa sögu og trausta fylg­is­menn. Mitt hlut­verk sem eig­anda er að hjálpa til við að skapa félag­inu réttar aðstæður svo það geti vaxið og dafnað í fram­tíð­inni. Að mínu mati höfum við þegar stigið fyrsta skrefið í þá átt með því að taka ákvörðun um að reisa nýjan leik­völl,“  sagði Björgólfur sem hafði komið sér inn í sviðs­ljósið.

Að leið­ar­lokum var haft eftir Eggerti Magn­ús­syni að hann hafi notið vel alls þess tíma sem hann hefði starfað hjá West Ham.

„Allt frá því ég og Björgólfur buðum í félagið hefur það verið mér mik­ill heiður að taka þátt í starfi West Ham,“ sagði hann auð­mjúkur.

Fall Björgólfs

Þegar Björgólfur tók við stjórn­ar­taumunum í West Ham var hann einn vin­sæl­asti Íslend­ing­ur­inn. Hann var víða sýni­legur sem stjórn­ar­for­maður Lands­bank­ans og gaf á báðar hendur. En um þetta leyti voru að hrann­ast upp óveð­urs­blikur. Það stytt­ist í stærsta efna­hags­á­fall Íslend­inga, sjálft hrunið sem breytti öllu fyrir Björgólf.

Við hrunið, haustið 2008, missti Björgólfur Lands­bank­ann og aðrar eignir sínar. Í einni andrá var hann horf­inn af sjón­ar­svið­inu. Nokkrum mán­uðum síðar, í júní 2009, var Björgólfi og Ásgeiri, aðstoð­ar­manni hans, ýtt út úr West Ham. Mánuði síðar var Björgólfur lýstur gjald­þrota. Kröfur voru gerðar í búið upp á 85 millj­arða króna en ein­ungis fund­ust 35 millj­ónir króna í búinu.

Sögulok

Félagið var enn um hríð í eigu íslenskra aðila eftir fall Björg­ólfs. Um miðjan jan­úar 2010 var svo komið að sögu­lokum. Rúmum þremur árum eftir að Eggert og Björgólfur keyptu félagið var það selt nýjum aðilum. Við­skipta­fé­lag­arnir David Gold og David Sullivan keyptu þá helm­ings­hlut í enska knatt­spyrnu­lið­inu. Haft var eftir þeim að hreinsa þyrfti ærlega til eftir óráðsíu Eggerts og Björg­ólfs.

Í frétt Vísis sagði að eign­ar­hald Íslend­inga á West Ham hafi verið í senn skraut­legt og far­sa­kennt. „… frægar en úrsér­gengnar knatt­spyrnu­stjörnur voru fengnar til félags­ins á him­in­háum launum…“

Sagan end­aði því illa. Bæði Eggert og Björgólfur hurfu af sjón­ar­svið­inu. Björgólfur sett­ist að í Reykja­vík en Eggert bjó áfram í London en flutti seinna til Spánar þar sem hann hefur búið sein­ustu árin. 

Greinin birt­ist að uppi­stöðu til í Stund­inni haustið 2016 en höf­undur er sá sami.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina