Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurður myrti hrottalega á Smiðjuveginum: „Ég sá rautt“

Sigurður myrti hrottalega á Smiðjuveginum: „Ég sá rautt“

Sigurður Adolf Frederik­sen var dæmdur í 17 ára fang­elsi fyrir hrotta­legt morð á Smiðju­veg­inum í Kópavogi. Þar sló hann Jósef Lilj­en­dal Sig­urðs­son marg­sinnis í höf­uðið með járn­röri, stakk með skrúfjárni í maga og and­lit og að end­ingu helti hann eld­fimum efnum yfir fórn­ar­lambið og kveikti í.

„Ég sá rautt, tók járn­rör og sló hann og síðan man ég litið eftir mér fyrr en í Smiðju­kaffi þegar ég var að þvo blóð af höndum mér,“ sagði Sigurður í dóms­yf­ir­heyrslum árið 1985, hálfu ári efftir morðið. Það var 15. mars það ár sem hinn örlaga­ríki atburður átti sér stað.

Jósef fannst lát­inn í hús­næði JHS-Inn­rétt­inga, fyr­ir­tæki í hans eigu. Þeir Sigurður höfðu hist á veit­inga­staðnum Ypsilon en Jósef síðan boðið Sigurði í partý. Þeir fóru yfir í fyr­ir­tæki Jósefs þar sem hann sofn­aði fram á borð. Sigurður sagð­ist hafa ýtt við honum og þá hafi Jósef brugðið og slegið hann í and­litið. Í kjöl­farið tók Sigurður upp járn­rör sem hann not­aði til að slá Jósef minnst þrisvar í höf­uðið. Jósef féll á gólfið og greip Sigurður þá skrúf­járn sem hann not­aði til að stinga Jósef í kvið og and­lit. Sigurður ætl­aði sér að fela öll vegs­um­merki og helti því eld­fimum efnum yfir Jósef og bar eld að. Jósef lést eftir að eld­ur­inn hafði kviknað.

Man ekkert

Við yfir­heyrslur kvaðst Sigurður muna lítið eftir kvöld­inu en mundi þó að hann hafði látið vita af eld­inum. Dyra­verðir veit­inga­stað­ar­ins Ypsilon náðu að slökkva eld­inn og lög­regla mætti á vett­vang. Aðspurður sagð­ist Sigurður ekki hafa athugað hvort Jósef væri á lífi áður en hann kveikti eld­inn. Sigurður ját­aði á sig morðið og var dæmdur til 17 ára fang­els­is­vistar þann 7. nóv­em­ber 1985

Við yfir­heyrslu hjá lög­reglu bar Sigurður fyrir sig minnis­leysi, sagði muna að til átaka hafi komið milli þeirra en kvaðst ekki muna hvernig átökin end­uðu. Sigurður var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald eftir hand­tök­una og þegar dóm­ari spurði hann hvort hann hafi verið valdur að dauða Jósefs heit­ins svar­aði Sigurður: „Já“. Hann var þá nítján ára gam­all.

Reyndi að fela ummerkin

Eins og áður sagði sló Sigurður með járn­röri marg­sinnis í höfuð Jósefs og stakk hann þar að auki tví­vegis með skrúfjárni, bæði í kvið og and­lit. Þá er talið að hann hafi hellt lakk­þynnu, afar eld­fimum vökva, yfir Jósef og lagt eld að. Aðspurður sagð­ist Sigurður ekki hafa athugað hvort Jósef hafi verið á lífi þegar hann kveikti í.

„Ég lamdi hann í höf­uðið, þrisvar, fjórum sinnum. Hann sat við borðið og féll í gólfið. Ég man ég tók skrúf­járn og stakk hann,“ sagði Sigurður fyrir dómi. Hann kvaðst ekki hafa vitað til þess að hafa stungið Jósef heit­inn í and­litið fyrr en hann hefði lesið um það í blöðum. Ástæðan fyrir því að hann ákvað svo að bera eld að fórn­ar­lamb­inu hafi verið til að ferla umerkin:

„Ég kíkti í veski hans. Afhverju veit ég ekki, kveikti í og fór út. Ég veit ekki af hverju, ætli ekki til að fela ummerki. Ég hugs­aði ekki út í þetta, maður er í sjokki. Ég
ætl­aði heim, en þoldi ekki við. Þoldi ekki hvað ég hafði gert og hugs­aði um eld­inn og lét vita að eldur væri laus í hús­inu. Mig rámar í að hafa hringt og látið vita.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina