Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Styrmir Gunnarsson lést í gær – „Hann var skemmtilegur maður“

Styrmir Gunnarsson lést í gær – „Hann var skemmtilegur maður“
Blessuð sé minn­ing Styrmis.

Styrm­ir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, lést í gær á heim­ili sínu við Mar­bakka­braut í Kópa­vogi, 83 ára að aldri, eft­ir bar­áttu við af­leið­ing­ar heila­slags snemma á þessu ári. Morg­un­blaðið greinir frá.

Styrm­ir fædd­ist í Reykja­vík hinn 27. mars 1938. Hann lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Há­skóla Íslands. Styrm­ir gaf sig mjög að fé­lags­störf­um og var vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins og sat jafn­framt í auð­linda­nefnd.

Styrm­ir starf­aði mest­alla starfsævi sína á Morg­un­blað­inu. Hann fór raun­ar fyrst að skrifa í blaðið að stað­aldri tví­tug­ur að aldri. Hann hóf svo störf á rit­stjórn sem blaða­maður árið 1965. Hann varð aðstoð­ar­rit­stjóri 1971 og var ráð­inn rit­stjóri 1972. Þar starf­aði hann all­ar göt­ur síðan og náði 43 ára far­sælum ferli á blað­inu.

Styrm­ir lét þó ekki af rit­störf­um og virkri þátt­töku í þjóðmá­laum­ræðu eft­ir að hann hvarf úr rit­stjóra­stóli Morg­un­blaðs­ins. Eft­ir hann liggja og all­nokkr­ar bæk­ur, all­ar um stjórn­mála­sögu lands­ins nema ein, Ómunatíð, sem er fjöl­skyldu­saga um geð­sjúk­dóm eig­in­konu hans og vakti mikla at­hygli.

Illugi Jök­uls­son rit­höf­undur er einn þeirra sem minn­ast Styrmis með fal­legri kveðju á Facebook. „Um póli­tískt starf Styrmis Gunn­ars­sonar má margt segja og ég vona að stór­merkum blaða­manna­ferli hans sem rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins verði gerð við­hlít­andi skil. Og hann var skemmti­legur maður, það veit ég jafn­vel af okkar litlu kynnum. En mik­il­væg­ast er hverri mann­eskju að reyn­ast vel og dyggi­lega sínum nán­ustu og það veit ég að Styrmir gerði sann­ar­lega og setti framar öllu í lífi sínu,“ segir Illugi.

Styrm­ir lét sig þjóðmá­laum­ræðu miklu varða og átti trún­aðar­menn þvert á all­ar flokkslín­ur, þrátt fyr­ir að skoð­anir hans færu alla tíð að mestu sam­an við stefnu Sjálf­stæðis­flokks­ins. Frægt varð þegar hann kall­aði valda­stétt lands­ins „djúp­ríki“ og opn­aði sig um íslenskt sam­fé­lag fyrir rann­sókn­ar­nefnd Alþingis eftir hrun: 

„Ég er búinn að fylgjst með þessu þjóð­fé­lagi í 50 ár. Þetta er ógeðs­legt þjóð­fé­lag, þetta er allt ógeðs­legt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hug­sjónir, það er ekki neitt. Það er bara tæki­fær­is­mennska, valda­bar­átta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina