Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hinstu orð Styrmis Gunnarssonar – Sendi þennan pistil á Morgunblaðið og lést svo

Hinstu orð Styrmis Gunnarssonar – Sendi þennan pistil á Morgunblaðið og lést svo

Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sendi pistil á gamla vinnu­stað­inn sinn dag­inn sem hann lést. Styrm­ir lést í gær á heim­ili sínu í Kópa­vogi, 83 ára að aldri, eft­ir bar­áttu við af­leið­ing­ar heila­slags snemma á þessu ári.

Styrm­ir lét ekki af rit­störf­um og virkri þátt­töku í þjóðmá­laum­ræðu eft­ir að hann hvarf úr rit­stjóra­stóli Morg­un­blaðs­ins. Hann lét sig þjóðmá­laum­ræðu miklu varða og átti trún­aðar­menn þvert á all­ar flokkslín­ur, þrátt fyr­ir að skoð­anir hans færu alla tíð að mestu sam­an við stefnu Sjálf­stæðis­flokks­ins.

Blessuð sé minn­ing Styrmis.

Hinstu orð Styrmis fjöll­uðu einmitt um íslensk stjórn­mál og menn­ingu í sínum síð­asta pistli í lif­anda lífi. Við skulum gefa sam­fé­lags­rýn­inum, sem nú er allur, orðið í hans síð­asta pistli:

Menning og póli­tík

Víkingur Heiðar Ólafsson telst nú meðal fremstu píanó­leik­ara heims. Það stað­festir þátt­taka hans á tón­leikum BBC Proms fyrir viku og und­ir­tektir áheyr­enda og gagn­rýnenda.

Það segir ákveðna sögu um tón­list­ar­kennsl­una hér og það umhverfi sem tón­list­ar­fólk starfar í að ein­stak­lingur frá svo fámennu sam­fé­lagi skuli kom­ast í hóp þeirra Rubin­steins, Horowitch og Argerich, svo nokkur nöfn séu nefnd.

Og þess vegna er þetta rétti tím­inn til þess að gera knýj­andi verk­efni í menn­ing­ar­lífi okkar að umtals­efni, ekki sízt vegna þess að kosn­ingar eru fram undan.

Fyrir nokkrum árum tóku æsku­vinir Atla Heimis Sveins­sonar tón­skálds og vinir hans úr tón­list­ar­heim­inum höndum saman um að láta skrá öll tón­verk hans, hvort þau hefðu verið flutt og þá hvar og af hverjum.

Í því sam­bandi fannst mér fróð­legt að sjá í ævi­sögu Clöru Wieck-Schumann, eig­in­konu Roberts Schumanns, sem Sif, kona Atla, gaf mér á þeim árum, að Clara var að láta vinna það sama með verk eig­in­manns síns undir lok 19. aldar.

Robert Schumann átti við geð­rænan vanda að stríða en dr. Kay Redfield Jamison hefur sýnt fram á það í einni bóka sinna að mörg af mestu verkum hans urðu til í maníu. Og það er í raun stórfurðu­legt að slík feg­urð skuli geta orðið til í því sem við teljum sjúkan hug­ar­heim.

Clara fékk ekki að heim­sækja mann sinn á geð­veikra­hælið en vinur þeirra, Brahms, flutti henni fréttir af honum. Hún fékk að heim­sækja hann tveimur dögum áður en hann dó, en álita­mál hvort hann þekkti hana. Clara var þekktur píanó­leik­ari í Evrópu á 19. öld en þar að auki tón­skáld. Verk hennar vekja vax­andi athygli. Þeir sem þekkja til geð­sýki gera sér grein fyrir hvernig líf hennar hefur verið á tímum, þegar engin lyf voru til eða neitt annað sem gat hjálpað.

Það væri við hæfi að t.d. Geðhjálp minnt­ist þess­arar konu með árlegum tón­leikum, þar sem verk hennar væru flutt.

Þessar upp­lýs­ingar í ævi­sögu Clöru gerðu okkur ljóst að það væru ekki verk Atla Heimis eins sem þyrfti að skrá heldur allra íslenzkra tón­skálda fyrr og síðar, þar á meðal þeirra Sigvalda Kalda­lóns og Jóns Leifs, sem báðir voru í miklu upp­á­haldi hjá Atla.

Þetta menn­ing­ar­lega fram­tak þarf að taka fyrir á nýju þingi og í fjár­laga­nefnd fyrir ára­mót þannig að verkið hefj­ist á næsta ári og við hæfi að Alþingi heiðri árangur Víkings Heiðars með ýmsum hætti og þar á meðal þessum.

Það er merki­legt hvernig tón­list­ar­líf hefur sprottið upp úr sam­fé­lagi sjó­manna og bænda. Eitt það fyrsta sem ég tók eftir, þegar ég kom í sveit að Hæl í Flókadal í Borg­ar­firði 12 ára gam­all, var að þar var orgel. Og síðar fann ég í fjöl­skyldu­skjölum kvittun, sem sýndi að afi minn, Árni Eiríks­son, kaup­maður og leik­ari og einn af stofn­endum Leik­fé­lags Reykja­víkur, hafði tekið píanó á leigu og síðar keypt það, fyrir dóttur sína af fyrra hjóna­bandi, Dagnýju, sem síðar flutti til Vest­ur­heims og vann þar fyrir sér sem píanó­kenn­ari.

Gamli bónd­inn í minni sveit, Guð­mundur Bjarna­son, varð svo einn helzti leik­ari í sveit­inni og ein dætra hans, Margrét, varð síðar leik­kona við Þjóð­leik­húsið.

Svona sprettur menn­ingin upp úr lífi alþýðu manna í þessu landi.

Skrá­setn­ing verka allra íslenzkra tón­skálda fyrr og síðar leiðir svo hug­ann að því að sam­bæri­lega vinnu þarf að inna af hendi varð­andi leik­list, að svo miklu leyti sem það hefur ekki þegar verið gert. Í þeim efnum hefur Sveinn Ein­ars­son, fyrr­ver­andi þjóð­leik­hús­stjóri, unnið mikið afrek.

Þótt leik­listin hafi sprottið upp úr gras­rót­inni hér sótti hún mikið til Kaup­manna­hafnar. Fyrr­nefnd fjöl­skyldu­skjöl sýna m.a. tíðar ferðir for­ráða­manna Leik­fé­lags Reykja­víkur til Kaup­manna­hafnar, til þess að kynna sér verk­efna­val Det Kong­elige Teater.

Bréfa­skipti Árna Eiríks­sonar og frú Stefaníu Borg á fyrstu árum 20. aldar snú­ast mikið um þessar Hafn­ar­ferðir. Sömu daga og þessi grein var í vinnslu birt­ist í Morg­un­blað­inu frétt um að Sunna Borg væri þátt­tak­andi í leik­sýn­ingu á næst­unni. Þar er vænt­an­lega á ferð þriðji eða fjórði ætt­liður Borg­a­rætt­ar­innar sem stendur á leik­sviði. Geri aðrir betur.

Hvort sem um er að ræða tón­list eða leik­list er á bak við þetta mikil saga og senni­lega er Anna Borg einna fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem nær árangri í listum á erlendri grund.

Þessi grein er hugsuð sem hvatn­ing til nýrra þing­manna um að sýna þess­ari merki­legu sögu rækt­ar­semi. Við eigum að halda þess­ari sögu til haga, hvort sem um er að ræða tón­list, leik­list eða aðrar list­greinar. Þetta er hluti af okkar sögu.

Við Atli Heimir kynnt­umst í átta ára bekk í Mela­skól­anum og byrj­uðum svo saman hjá dr. Edel­stein í tón­list­ar­námi á sama aldri. Það var ævin­týra­legt að fylgj­ast með ferli hans. Sum tón­verka hans munu lifa svo lengi sem íslenzk þjóð lifir í þessu landi. Og það á við um fleiri tón­skáld okkar.

Verðandi þing­menn og þá sér­stak­lega fjár­laga­nefnd­ar­menn mega búast við því að sótt verði að þeim úr öllum áttum. Svo vill til að klíka okkar Atla átti og á full­trúa í öllum flokkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina