Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hræðileg frásögn Margrétar eftir bólusetningu: „Mér finnst ég vera að andast bara“

Hræðileg frásögn Margrétar eftir bólusetningu: „Mér finnst ég vera að andast bara“

„Um leið og ég var sprautuð fann ég fyrir miklum stirð­leika upp hend­ina, í háls­inn og sting uppí höfuð. Einnig gat ég ekki snúið höfð­inu til hliðar. Ég spurði kon­una sem spraut­aði mig hvort þetta væri “eðli­legt” jújú þetta var bara að virka vel.“

Margrét Ósk Guð­bergs­dóttir, þroska­þjálfi, lýsir á Facebook veggi sínum hræði­legum auka­verk­unum eftir að hafa verið bólu­sett fyrir Covid-19 með AstraZenega. Fyrir bólu­setn­ingu var hún mjög hraust, stund­aði lík­ams­rækt og var nán­ast aldrei veik. Hrika­legar auka­verk­anir komu fram um leið og efn­inu var sprautað í hand­legg hennar en klukkan 23 sama kvöld fékk hún svaka­leg hita og kulda­köst, en hún seg­ist aldrei hafa upp­lifað annað eins. Neyddist hún til að skríða úr rúm­inu eftir verkja­lyfjum og mæld­ist hún þá með tæpar 41 gráður. Segir Margrét næstu tvo sól­ar­hringa hafi hún bara verið í móki. Hún var með stingi um allan lík­amann en verstur var sting­ur­inn í höfði hennar, hann hafi verið óbæri­legur.

Það sem við tók eftir fyrstu tvo sól­ar­hring­ana er svohljóð­andi „Svo þegar ég vakn­aði til lífs­ins þà var ég svo òend­an­lega stirð, orku­laus, þreytt, verkjuð og leið bara skringi­lega. En ég fer með yngstu mína til dag­mömm­unnar og ég næ ekki að labba upp nokkrar tröppur því mér finnst ég vera að and­ast bara. Mig verkj­aði um allan lík­amann og þà sér­stak­lega í höfð­inu, var komin með skerta sjòn, missti ALLT þol, útbrot í and­liti, ògleði, svima, nála­doða, fjör­fisk, var síþreytt og alveg bara òeðli­ega, ég sofn­aði t.d. Í baði, sitj­andi í vinn­unni og heima með öll lætin í kringum mig, bara hvar sem er hvenær sem er. Ég fékk sjúk­lega mikla maga­krampa, ótrú­lega verki við egg­los, fyrir og eftir blæð­ingar og bara þannig að ég là í fòst­ur­stell­ingu hálf­gràt­andi og svo voru það þessi hræði­lega hita og kulda­köst sem er ekki hægt að lýsa. Þá var ég einnig með hrika­lega slæman hòsta og fékk ògeðs­leg hòsta­köst alla daga og nætur. Ég var það stirð að ég gat ekki skeint mér for crying out loud og þetta var ennþà nokkrum vikum eftir spraut­una.“

Eftir að hafa farið nokkrum sinnum til mis­mun­andi lækna sem virt­ust kann­ast við mörg ein­kenn­anna og töldu þau tengj­ast bólu­setn­ing­unum og eftir að hafa fengið ávísað ast­mapústum, heimt­aði Margrét röntgen mynd sem og hún fékk. Eftir mynda­tök­una fékk Margrét mjög sterk sýkla­lyf við kaldri lungna­bólgu. Þarna voru liðnar 16 vikur frá bólu­setn­ing­unni en eftir hún byrj­aði á þessum lyfjum skán­aði henni til muna. Í dag seg­ist hún vera um það bil 20-30% góð og að hún myndi klár­lega vera í end­ur­hæf­ingu ef ein­hver gæti ann­ast börnin hennar á meðan.

Margrét segir að lokum í frá­sögn sinni að hún hafi ekki skrifað hana til þess að segja fólki að fara ekki í bólu­setn­ingu eða ráð­leggja for­eldrum að bólu­setja ekki börn sín, „heldur til þess að deila minni reynslu svo að hver og einn geti tekið UPPLÝSTA àkvörðun fyrir sig og sína. Hver og einn verður að meta hvert til­felli fyrir sig.“

Hér má sjá frá­sögn hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina