Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hryllilegur atburður á Suðurgötu: Sigurður myrti eiginkonu sína og börnin þrjú með eitri

Hryllilegur atburður á Suðurgötu: Sigurður myrti eiginkonu sína og börnin þrjú með eitri

Þann 26 febr­úar árið 1953 gerð­ist sá hrylli­legi atburður í Reykja­vík, að lyfja­fræð­ing­ur­inn Sigurður Magn­ús­son, myrti konu sína og börn þeirra þrjú og tók svo sitt eigið líf með eitri. Tengda­móðir hans sem kom að þeim öllum látnum.

Alþýðu­blaðið fjall­aði um málið á sínum tíma en hafði eft­ir­far­andi lýs­ingu eftir þáver­andi saka­dóm­ara eins og það hét þá; „Í Suð­ur­götu 2 hér í bæ bjó Sigurður Magn­ús­son, lyfja­fræð­ingur, kona hans, Hulda Karen, börn þeirra 3 á aldr­inum 3-6 og Ásdís, systir kon­unnar. Ásdís fór til vinnu sinnar kl. um 9 í morgun og var hús­freyjan þá komin á fætur og börnin að klæða sig. Þegar móðir hús­freyj­unnar, sem heima á í Ytri-Njarðvík, kom í húsið kl. 12.40, var öll fjöl­skyldan, hjónin og börnin, dáin.“

Skyldi eftir bréf

Lög­reglan og læknar mættu fljót­lega á stað­inn og fundu á nátt­borði Sigurðar „glas, merkt: Eitur og bréf hafði hann látið eftir sig til Ásdísar þar sem hann skýrir frá því að hann, sem und­an­farið hefur verið meira og minna sjúkur, hafi í örvilnan náð í eitur sem hann hafi gefið þeim öllum og verði þau dáin þegar verður að þeim komið. Kveðst hann ekki geta skilið kon­una og börnin eftir.“

Segir enn­fremur í Alþýðu­blað­inu dag­inn eftir atburð­inn, að líkin hafi legið hlið við hlið í hjóna­her­berg­inu en öll klædd, þegar móðir kon­unnar kom að þeim. Var talið ljóst að þau hefðu öll dáið fljót­lega eftir inn­töku eit­urs­ins. Ekki var vitað hvers­konar eitur Sigurður hafði notað.

Hafði glímt við veikindi

Sigurður, sem lést tæp­lega 35 ára, hafði greinst með heila­bólgu ári fyrir voða­verkin og verið frá vinnu en var þó far­inn að vinna aftur við Reykja­vík­ur­apó­tek. Daginn sem hann drap alla fjöl­skyld­una var hann í fríi en hann hafði kvartað undan verkjum í höfði und­an­farna daga. Konan, Hulda Karen Larsen var 32 ára, Magnús var 6 ára, Sigríður var 4 ára og Ingi­björg 3 ára.

Hulda Karen
Magnús
Sigríður Dúa
Ingi­björg Stefanía

Reimleikar í Dillonshúsi

Í fræðslu­horni Bænda­blaðs­ins má sjá stutta grein­ingu á húsum í Reykja­vík sem þekkt eru fyrir reim­leika. Þar kemur fram að Suð­ur­gata 2, sem oft­ast er kallað Dillons­hús og hýsti Sigurð og fjöl­skyldu þegar þau dóu, sé eitt þeirra. Húsið var á sínum tíma flutt á Árbæj­ar­safnið og hafa starfs­menn þar kvartað undan reim­leikum sem þau hafa orðið vör við og skyldi kannski engan undra ef þar svífi um sálir þess­arar ólánsömu fjöl­skyldu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina