Gul viðvörun tók í gildi í gær víðsvegar um landið eins og fór ekki framhjá neinum. Má segja að haustið læðist að og sé að ganga í garð. Búist er við að veðrið fari að lægja þegar líður á daginn.
Á höfuðborgarsvæðinu í dag er spáð rigningu og suðaustanátt með hitanum 8-15 stig. Á Norð austurlandi er spáð þurru veðri og hiti gæti farið upp í 16 stig.
Á morgun er spáð þurru veðri á höfuðborgarsvæðinu fyrripart dags með skúrum þegar líða tekur á daginn, hitinn er 8-15 stig. Þá verður þurrt á Norð austurlandi og hitinn á bilinu 8-16 stig.
Enn er í gildi hættustig Almannavarna vegan eldgossins í Fagradalsfjalli og óvissa er með framhaldið. Gosið tók við sér á nýjan leik nú um helgina eftir að hafa dregið töluvert úr kraftinum síðustu daga og leit út fyrir að það væri búið. Svo var þó ekki.































Athugasemdir