Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta eru konurnar í Öfgahernum – „Við myndum ekki þora ef þú hefðir ekki mótað veginn“

Þetta eru konurnar í Öfgahernum – „Við myndum ekki þora ef þú hefðir ekki mótað veginn“

Öfga­her­inn er fem­inískur bar­áttu­hópur sem hefur verið mjög áber­andi á sam­fé­lags­miðlum og í fréttum síðan síð­asta Metoo bylgja hófst. Þessi hópur, Öfga­her­inn, lík­ist óhjá­kvæmi­lega öðrum hópum eins og skæru­liða­her Samherja, Skrímsla­deild Sjálf­stæð­is­flokks­ins og huldu­her Alberts Guð­munds­sonar á sínum tíma.

Eins og nafn hóps­ins gefur til kynna er um svo­kall­aðan öfga­fem­in­isma að ræða en hefur Hildur Lilli­endahl hvað oft­ast verið kennd við öfga­fem­in­is­mann hér á landi. Öfgar hafa sagst standa fyrir jafn­rétti kynja. Þær vilja upp­ræta ger­anda­með­virkni þegar kemur að ásök­unum um kyn­ferðis og ofbeld­is­brot.

Aðferðir sem Öfgar nota til þess að fylgja þessum gildum hafa verið mjög umdeildar og minna óneit­an­lega mikið á aðferðir Hildar Lilli­endahl. Ekki þarf að leita langt til þess að sjá að með­limir Öfga eru Hildi þakk­látir en á Twitter birta þær mynd af Hildi og skrifa:

„Við myndum ekki þora ef þú hefðir ekki mótað veg­inn“

Stjórn­endur Öfga eru fimm tals­ins og lýsa þær sér svo á sam­skipta­for­rit­inu Twitter þar sem þær eru hvað virkastar:

  • Helga Ben – Íslensk femínista tussa með hjarta úr gulli
  • Hulda Hrund – Femínista­tussa og freð­mýra­kunta
  • Ninna Karla – List­förð­un­ar­fræð­ingur í leit að verk­efnum – femínista­tussa, freð­mýr­ar­kunta og tussu­klessa
  • Ólöf Tara – Litli femínist­inn
  • Tanja Ísfjörð – Freð­mýr­ar­kunta, tusa
Ólöf Tara.
Helga Ben.
Hulda Hrund.
Ninna Karla.
Tanja Ísfjörð.

Dæmi um aðrar sam­fé­laga­smiðla­stjörnur sem hafa verið áber­andi í Metoo-bylt­ing­unni og tekið undir skoð­anir Öfga­hers­ins und­an­farið:

  • Edda Falak – Fjár­mála­fræð­ingur, þátta­stjórn­andi og eig­andi hlað­varps­ins Eigin konur
  • Erna Kristín (Ernuland) – Guð­fræð­ingur með ADHD og áherslu á jákvæða lík­ams­í­mynd
  • Kolbrún Birna – Hún/henni – she/her. laga­nemi ofl.
  • Tara Margrét –  Félags­ráð­gjafi, for­maður sam­tak­ana um jákvæða lík­ams­í­mynd, sér­stakt áhuga­mál að lofa offitu.
Edda Falak.
Tara Margrét.
Kolbrún Birna. Mynd / Skjáskot RÚV.
Erna Kristín.

Umræða og sjón­ar­mið Öfga­hers­ins er gíf­ur­lega áber­andi en frá ofan­greindum konum, sem eru níu tals­ins, koma að með­al­tali 42 ummæli á Twitter á sól­ar­hring.

Kastljós tók við­tal við Eddu Falak fyrir stuttu þar sem rædd voru meðal ann­ars ofbeld­is­mál, ásak­anir, og meint brot. Edda hafði fyrir þátt­inn tjáð skoðun sína á mörgum þess­ara mála opin­skátt á  sam­fé­lags­miðlum.

Sú grund­vall­ar­regla sem er í lýð­ræð­is­ríki  – „sak­laus uns sekt er sönnuð“ var borin undir Eddu. Hún svar­aði því að pró­sentan þar sem logið væri um kyn­ferð­is­brota mál væri rosa­lega lág. ,,það er svo ótrú­lega lítil pró­senta, held það sé um 2 pró­sent eða minna þar sem er logið uppá ein­hvern að ein­hver hafi beitt sig ofbeldi.“ Þá taldi Edda ásak­anir nægja til þess að ein­stak­lingur ætti ekki aft­ur­kvæmt í sviðs­ljósið:

„Finnst aðilar ekki eiga aft­ur­kvæmt í sviðs­ljósið“

Erfitt hefur reynst að sanna ofbeld­is­brot fyrir dómi, og þá aðal­lega kyn­ferð­is­brot.  Ítrekað verið kallað eftir breyt­ingum en ljóst er að kerfið þurfi að vera  „þolenda­vænna“. Öfga­her­inn virð­ist nú hafa tekið málin í sínar hendur. Aðferðin „cancel culture“ er notuð á þá sem sak­aðir hafa verið um brot.

Hildur Lilli­endahl, guð­móðir bar­áttu­að­ferða Öfga­hers­ins. Mynd / Skjáskot RÚV.

Skil­grein­ing á Slauf­un­ar­menn­ing­unni (e. Cancel Culture):

„Nútíma form af útskúfun þar sem ein­hver er rek­inn úr félags­legum eða fag­legum hringjum, hvort sem það er á net­inu, á sam­fé­lags­miðlum eða í eigin per­sónu. Þeir sem lúta þess­ari útskúfun eru sagðir hafa verið „cancelled“ eða úti­lok­aðir.
Fólk veltir því fyrir sér hvort þetta sé rétta leiðin í nútíma sam­fé­lagi. Hvort þessi „dóm­stóll göt­unnar“ og cancel culture sé ekki skref aftur á bak.

Innlegg Öfga­hers­ins gefa ákveðna hug­mynd af því að eng­inn fái að njóta vafans lengur. Hér koma nokkur dæmi:

„Erum við ekki öll með það á hreinu að sýkna þýðir ekki að logið hafi verið upp á mein­tan ger­anda?“

„Hafþór Júlíus með 10 millj­ónir á mán­uði, Cancel kúlt­úr­inn að gera útaf við okkar mann“

„Allar konur eru jafnar gagn­vart aum­ingja­skap karla“

„Haltu þá bara kjafti!“

„Fokking hættið að versla við vefj­una“

„Konur þurfa EKKI að vera kurt­eisar við menn sem láta þeim líða óþægi­lega.“

„Fokkaðu þér Sigurður, taktu þinn sann­leika og troddu honum. Við erum ekki hálf­vitar“.

 „Vinkona mín fékk sér að ríða í gær EN áður en hún lagði af stað lét hún mig vita stað­setn­ingu til að tryggja að ég vissi um hana ef eitt­hvað kæmi upp á“

 „Akti­vismi er ekki að vera fokk­ing likea­ble “

 „Hver vill fella feðra­veldið með okkur “

 „Amma mín er fædd 1935 og hún notar hedd­fóna mark­visst til að bægja ókunn­ugum upp­á­þrengj­andi körlum frá sér á hjúkr­un­ar­heim­il­inu sínu. Bara svo þið vitið, stelpur: 1. Þið eruð ekki einar og 2. Þetta mun aldrei lag­ast“.

 „Það að beita ofbeld­is­fólk ofbeldi gerir ykkur líka að -ofbeld­is­fólki- og getur bitnað enn frekar á þolendum þeirra – skil að ein­hverjum finn­ist það  „sann­gjarnt“ en þetta hjálpar engum. Maður leysir ekki ofbeld­is­vanda með meira ofbeldi “.

 „Arnar Þór kannski heldur nám­skeið fyrir okkur femínistana um hvernig maður gagn­rýnir af sann­girni -meintar- nauðg­anir og -meint- heim­il­is­of­beldi ?“

„Það kom mér á óvart hvað það voru miklir for­dómar í gangi. Það fannst mér ljótt að sjá bæði sam­fé­lags­miðla­stjörnur, þekkt fólk, konur og karla voru til­bú­inn að upp­ljóstra eigin for­dóma í beinni.“

„ég er ekki að fara að láta ein­hvern gamlan kall hafa áhrif á mig“

„Ég versla ekki við Vefjuna, Bak­ara­meist­ar­ann, Litlu kaffi­stof­una, Kaffi krús, bæta fleirum við?“

„Ef þú velur að vera hlut­laus í ofbeld­is­málum þá hef­urðu kosið að standa með ger­and­anum“

„Konur og kynsegin fólk! Ímyndið ykkur einn sól­ar­hring þar sem engir karlar eru til. Þið fáið full­kom­inn frið frá þeim og þurfið ekki að ótt­ast þá að nokkru leyti. Hvað mynduð þið gera? Ég skal byrja: myndi segja allar upp­safn­aðar og nið­ur­bældar skoð­anir mínar á Twitter“

„Vildi að ég væri kall, gæti gefið svo mörg random óum­beðin ráð“

„Ég má sem betur fer segja sam­kvæmt lögum að Ingólfur drullu­sokkur þarf að fokka sér meira en allir aðrir þurfa að fokka sér. Fokkkkkkkka sér.“

Bæði for­dóma og cancel culture má finna í upp­töldum inn­leggjum en stingur það í stúf við önnur inn­legg frá sömu aðilum.

„Það að beita ofbeld­is­fólk ofbeldi gerir ykkur líka að -ofbeld­is­fólki- og getur bitnað enn frekar á þolendum þeirra – skil að ein­hverjum finn­ist það  „sann­gjarnt“ en þetta hjálpar engum. Maður leysir ekki ofbeld­is­vanda með meira ofbeldi “.

Þetta skrifar einn með­limur Öfga en hafa með­limir ítrekað skrifað inn­legg sem flokkuð eru sem cancel culture, en hefur sú aðferð verið skil­greind sem ein birt­inga­mynd ofbeldis í nútíma­sam­fé­lagi.

Málefni sem Öfga­her­inn tekur fyrir koma oftar en ekki upp í fjöl­miðlum eða á sam­fé­lags­miðlafor­ritum. Í kjöl­farið skap­ast umræða í kommenta­kerfi eða á Twitter og má í mörgum til­fellum sjá alla með­limi öfga­hers­ins setja athuga­semd við hverja færslu eða mál­efni, hver og ein oftar en einu sinni. Ein­stak­lingar sem velta fyrir sér öðrum sjón­ar­miðum hafa einnig verið teknir fyrir af Öfga­hernum fyrir það eitt að vera á annarri skoðun.

Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu er lok­aður Faceook hópur sem snýst um að gefa ráð og fá upp­lýs­ingar til að sporna við nauðg­un­ar­menn­ingu. Þangað hafa konur leitað til þess að halda sér upp­lýstum, sýna sam­hug og ræða fem­inísk mál­efni.

Mannlíf hefur reynslu­sögu konu sem leit­aði inn á hóp­inn í góðri trú um að það væri nóg til þess að fá að vera með­limur hóps­ins. Konan tekur fram að í hópnum hafi hún lesið ýmis­legt gagn­legt en margt var líka gríð­ar­lega litað af heift og dóm­hörku. Eftir nokkurn tíma var kon­unni hent úr hópnum og skýr­ingin sem hún fékk var sú að hún hafi ekki verið nógu virk. Konunni var gríð­ar­lega brugðið en sagð­ist hafa áttað sig á eftir nokkra daga hversu mik­ill léttir það var að vera ekki lengur í hópnum.

Þessi hópur, Öfga­her­inn, lík­ist óhjá­kvæmi­lega öðrum hópum eins og skæru­liða­her Samherja, Skrímsla­deild Sjálf­stæð­is­flokks­ins og huldu­her Alberts Guð­munds­sonar.

Skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins

Verkefni skrímsla­deildar er ýmist að beina athygli frá mis­gjörðum for­ystu­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins og dreifa óhróðri um and­stæð­inga flokks­ins. Miklar annir eru oft hjá deild­inni í Valhöll, stundum er unnið dag og nótt við það að fela það sem þarf að fela. Þekktir með­limir deild­ar­innar eru Óttar Guð­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Lána­sjóðs sveit­ar­fé­laga, Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, stjórn­mála­pró­fessor við HÍ, Óli Björn Kárason, vara­þing­maður, Ólafur Teitur Guðnason, aðstoð­ar­maður ráð­herra, Andrés Magn­ús­son blaða­maður og Tryggvi Þór Her­berts­son, fyrr­ver­andi þing­maður. Athygli vekur að engin kona starfar í Skrímsla­deild Sjálf­stæð­is­flokks­ins um þessar mundir.

Skæruliðadeild Samherja

Skæru­liða­deild Samherja rekur áróð­urs­stríð útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins gegn blaða­mönnum og ákveðnum fjöl­miðlum sem fjallað hafa um fyr­ir­tækið. Þekkt­ustu skæru­liðar Samherja eru Páll Stein­gríms­son skip­stjóri, Þorbjörn Þórð­ar­son, lög­maður og fyrrum fjöl­miðla­maður, Arna Bryndís McClure, yfir­lög­fræð­ingur Samherja og ráð­gjaf­inn og einka­spæj­ar­inn Jón Óttar Ólafsson. Allir þessir skæru­liðar leika stórt hlut­verk Samherja bak­við tjöldin.

Hulduher Alberts

Albert Guð­munds­son var þekktur knatt­spyrnu­maður og umdeildur stjórn­mála­maður. Fyrst var hann borg­ar­full­trúi en fór svo inn á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og sat meðal ann­ars sem ráð­herra. Á þessum tíma var mikil valda­bar­átta innan flokks­ins og hann í raun klof­inn í tvær fylk­ingar. Albert náði góðum árangri í próf­kjörum með hjálp Huldu­hers­ins sem dóttir hans stjórn­aði. Á end­anum hjálp­aði her­inn við að kljúfa flokk­inn þar sem Albert náði undra­verðum árangri með Borg­ar­ar­flokknum á met­tíma fyrir kosn­ingar.

Öfgar og Öfga­her­inn, fólk veltir því fyrir sér hver sé besta leiðin fyrir þolendur. Er útskúfun og heift það sem mun bæta kerfið í kyn­ferð­is­brota­málum? Er cancel culture að fara gera sam­fé­lagið þolenda­vænna ? Aktí­vismi, sam­staða, hvar liggja mörkin eða eru engin mörk?
Hver les­andi verður að hugsa sig um, og svara fyrir sig.

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina