Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halldóra var myrt við Rauðhóla: „Ég held að hann Einar ætli að drepa mig“

Halldóra var myrt við Rauðhóla: „Ég held að hann Einar ætli að drepa mig“

Þann 15. ágúst 1977 var Halldóra Ást­valds­dóttir sótt í vinn­una í síð­asta sinn af fyrr­ver­andi kærasta. Stefnan var tekin í átt að Rauð­hólum, þar sem örlög þeirra beggja réð­ust.

Halldóra fædd­ist árið 1955 í Vest­mann­eyjum, en flutti á Stokks­eyri þegar hún var ung­lingur. Vinir og vanda­menn köll­uðu hana iðu­lega Dóru og sögðu að hún hafi verið mjög skemmti­legur karakter og algjör töffari.

Árið 1972 varð vendi­punktur í lífi Dóru þegar hún kynnt­ist manni sem hét Einar. Dóra vildi skömmu síðar kynna mann­inn fyrir fjöl­skyld­unni og vinum, sem tóku hins vegar fljót­lega eftir því að það var eitt­hvað skringi­leg „orka“ frá honum.

Það leið ekki á löngu þar til Dóra fór að taka eftir því sama og fór að hafa miklar áhyggjur. Smátt og smátt fór hann að ein­angra hana frá vinum sínum og fjöl­skyldu og sýna henni mikla stjórn­semi. Hann setti hana í stofu­fang­elsi.

Vildi ekki lengur vera með honum

Árið 1976 fluttu þau til Sví­þjóðar saman. Fólk í kringum hana furð­aði sig á því að hún hafi viljað fara með honum, en töldu að hún hafi haldið að hann myndi kannski breyt­ast.

Ári síðar koma þau í heim­sókn til Íslands þar sem hún virt­ist hrædd og skelkuð, hann var þá búinn að sýna henni mikla stjórn­semi. Hún var svo hrædd við við­brögð hans og sagði vin­konu sinni að hún vildi ekki vera með honum lengur og hvort að hún mætti fá að gista hjá henni.

Hún ótt­að­ist við­brögð hans.

Dóra tjáði honum að hún vildi ekki lengur vera með honum og að hún kæmi ekki aftur með honum til Sví­þjóðar. Svo varð að Einar ákveður að fara einn til Sví­þjóðar og hélt þá Dóra að hún væri hólpin.

En allt kom fyrir ekki og ákvað Einar svo að flytja aftur til Íslands. Hann ætl­aði ekki að láta hana Dóru fara frá sér og ætl­aðið örugg­lega fá hana aftur.

Þegar hann kom til Íslands, byrj­aði hann að ásækja hana.

Dag einn beið hún, ásamt vin­konu sinni eftir strætó þegar Einar keyrir að strætó­skýl­inu og skipar henni að koma með honum í bíl­inn. Dóra „panik­aði“ og reyndi að kom­ast undan. Sem betur fer kom strætó á réttum tíma og þær gátu farið inn. Þá tóku þær eftir því að Einar var að elta stræt­is­vagn­inn. Þegar þær komu á Hlemm gátu þær skipt um strætó, án þess að hann hefði tekið eftir því og náðu að stinga hann af.

Dóra skalf af hræðslu og sagði við vin­konu sína: „Ég held að hann Einar ætli að drepa mig“. Vinkona hennar tók full­yrð­ingu hennar ekki bók­staf­lega, þótt hún vissi að ein­hver alvara lægi að baki.

Markar djúp spor

15. ágúst 1977 rann upp og átti eftir að marka djúp spor í lífi fjöl­skyldu Halldóru.

Einar fór og sótti Dóru í vinnunna. Hann hafði þá tekið riffil frá fjöl­skyld­unni sinni með skotum og haft hann með í bílnum þegar hann kom að sækja hana. Einar tók stefn­una að Rauð­ar­vatni og beygði inn á Ellið­ar­ár­vatns­veg. Þar nam hann staðar og reyndi að ræða við Dóru um sam­bandið.

Hann átt­aði sig fljót­lega á því að það væri til einskis. Einar fór fljót­lega út úr bílnum, opn­aði skottið og sótti riffil­inn. Hann skaut hana í höf­uðið í gegnum skottið á bílnum. Systir hennar skildi ekki af hverju hún hafi farið upp í bíl­inn í fyrstu, en hún hafi verið miklu skyn­sam­ari en svo.

Þegar lög­reglan kom að bílnum sá hún að þar voru tveir ein­stak­lingar. Ökumaður sem var alblóð­ugur, með riff­ill og aðra mann­eskju vafða inn í ull­ar­teppi í far­þeg­ar­sæt­inu. Lög­reglan kann­aði púls­inn á henni, en fann að það var ekk­ert lífs­mark með henni.

Einar var þjak­aður og sagði að hann hefði skotið unn­ustu sína. Hann sagði að hann hefði elskað hana svo mikið að hún vildi ekki að hún myndi lifa áfram án hans. Hann hefði skotið hana fyrst og svo skorið sig sjálfan.

Lög­reglan tjáði fjöl­skyldu Dóru frá þessum hroða­lega atburði, að Einar hefði drepið hana Dóru. Halldóra var 22 ára þegar hún lést og lagð­ist dauði hennar mjög þungt á fjöl­skyld­una.

Hvaða mál Einar ætlaði að framkvæma er enn á huldu

Einar sagði við lög­reglu að hann hefði ákveðið að drepa Halldóru fyrr um dag­inn. Lög­reglan tal­aði um að Einar hefði haft mjög þrúg­andi nær­veru og að hann hefði eitt­hvað trufl­ast. Þegar þessum yfir­heyrslum lyki ætl­aði hann sér að fram­kvæma eitt­hvað annað voða­legt, grun­aði lög­regl­una.

Vinkona Halldóru var kölluð inn í Sakadóm Reykja­víkur til að vera lyk­il­vitni í mál­inu og þurfti að sitja á móts við bana­mann bestu vin­konu sinnar. Hún sagði að þetta hefði verið eitt það erf­ið­asta sem hún hafi þurft að ganga í gegnum, að horfa á hann glott­andi í sig­ur­vímu á móts við hana.

Einar var í Sakadómi Reykja­víkur dæmdur til 14 ára fang­els­is­vistar. Hann sat þó aldrei af sér dóm­inn, vegna þess að hann tók sitt eigið líf, tveimur árum síðar. Vinkonu Dóru fannst það léttir.

Málið lagð­ist þungt á alla í fjöl­skyld­unni. Móðir Halldóru sá aldrei aftur til sólar. Hún dó 20 árum síðar eftir mikla þján­ingu. Var að sögn aldrei glöð, aldrei ham­ingju­söm, eftir morðið.

Systir Halldóru heit­innar vildi koma því á fram­færi, eftir dauða hennar, að kúgun, ofríki og hót­anir í sam­bandi sem þessu, beri að taka alvar­lega. Þótt langt sé um liðið, þá stöndum við enn í þessum sporum að fólk er að kúga hvort annað.

Hér að neðan er hægt að hlusta á lag sem heitir Ást­ar­saga og er eftir Megas. Megas samdi lagið árið 1987 og fjallar það um þennan hroða­lega atburð.

Heim­ildir:

Ásgeir Erlends­son. 2014. Íslenskir ástríðu­glæpir. Stöð 2. 27. apríl.

Myndband af Youtube.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina