Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frumefni stjörnuspekinnar – Ert þú meiri eldur, jörð, loft eða vatn?

Frumefni stjörnuspekinnar – Ert þú meiri eldur, jörð, loft eða vatn?

Merkin í stjörnu­speki eru tólf tals­ins. Hvert og eitt þeirra til­heyrir einu af frum­efn­unum fjórum, en þau eru: eldur, jörð, loft og vatn. Hvert merki hefur sterk ein­kenni frum­efn­is­ins sem það til­heyrir og ein­stak­lingar með ákveðið ríkj­andi frum­efni í stjörnu­korti sínu bera sterk merki þess í per­sónu­leika sínum.

Eldur

Eldur er kröftug, skap­andi og ástríðu­full orka. Mann­eskja með ráð­andi eld í stjörnu­korti sínu er gjarnan hvat­vís og býr yfir ríkri fram­kvæmda­orku. Hún er lítið fyrir að velta sér upp úr hlut­unum og er með mik­inn sprengi­kraft. Þetta eru oft hug­mynda­ríkir og skap­andi ein­stak­lingar og ein­lægir í fasi. Þessir ein­stak­lingar segja það sem þeir meina – og segja það oft án þess að hugsa fram í tím­ann. Þeir eru hug­rakkir, stoltir og munu ávallt verja þá sem þeim þykir vænt um. Orka elds­ins er úthverf.

Eld­merkin þrjú í stjörnu­speki:

Hrútur, ljón og bog­maður.

Jörð

Jörð er stöðug og traust orka. Mann­eskja með mikla jörð í stjörnu­korti sínu er yfir­leitt nokkuð róleg og yfir­veguð. Til­finn­inga­svörun hennar er hæg og breyt­ingar eru ekki snarpar. Þessir ein­stak­lingar hugsa hlut­ina vand­lega og standa fast á sínu. Rætur þeirra liggja djúpt og því tengj­ast þeir fólki, hlutum og stöðum oft afar sterkum böndum. Mann­eskjur sem hvíla áber­andi mikið í þessu frum­efni eru hrein­skilnar og oft bein­skeyttar. Ekki er óal­gengt að þetta séu þrjóskar mann­eskjur. Þær þrá öryggi. Orka jarð­ar­innar er inn­hverf.

Jarð­ar­merkin þrjú í stjörnu­speki:

Naut, meyja og stein­geit.

Loft

Loft er rök­ræn, sveigj­an­leg orka. Mann­eskja með mikið loft í stjörnu­korti sínu treystir gjarnan fremur á huga en hjarta. Hún er oft með gott skop­skyn og kann vel við sig í félags­skap fólks. Þessir ein­stak­lingar eru grein­andi og góðir mála­miðl­arar. Þeir hafa mik­inn áhuga á fólki og sam­fé­lags­málum. Ákvarð­ana­taka er ekki þeirra sterkasta hlið og þeir geta velt fyrir sér öllum mögu­legum og ómögu­legum hliðum mála út í hið óend­an­lega. Orka lofts­ins er úthverf.

Loft­merkin þrjú í stjörnu­speki:

Tvíburi, vog og vatns­beri.

Vatn

Vatn er til­finn­inga­næm, djúp og dimm orka. Mann­eskja með mikið vatn í stjörnu­korti sínu skynjar heim­inn mjög gjarnan í gegnum til­finn­ingar. Viðbrögð hennar og skap er seig­fljót­andi, sem þýðir meðal ann­ars að nei­kvæðar til­finn­ingar eða sær­indi geta setið í henni afar lengi. Hin hliðin á sama pen­ing er að þessi mann­eskja elskar afar heitt og ver þá sem henni þykir vænt um með kjafti og klóm. Þessir ein­stak­lingar eru afar næmir á fólk og umhverfi sitt. Þeir elska að fara á dýpt­ina og eiga erfitt með yfir­borðs­hjal. Þeir hafa ríkt ímynd­un­ar­afl og búa oft yfir mik­illi sköp­un­ar­gáfu. Orka vatns­ins er inn­hverf.

Vatns­merkin þrjú í stjörnu­speki:

Krabbi, sporð­dreki og fiskar

Fyrir dygga aðdá­endur Harry Potter bókanna má skýra frum­efni stjörnu­spek­innar enn frekar með því að flokka heima­vist­irnar fjórar í Hogwartsskóla í eft­ir­far­andi frum­efni:

Gryf­findor- ELDUR

Ravenclaw – LOFT

Hufflepuff – JÖRÐ

Slytherin – VATN

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina