Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bragi eini morðingi Íslands sem sjálfur var myrtur – Bæði morðin framin í sömu íbúð

Bragi eini morðingi Íslands sem sjálfur var myrtur – Bæði morðin framin í sömu íbúð

Í íslenskri saka­mála­sögu hafði það aldrei gerst, svo vitað sé, að sami ein­stak­lingur væri jafnt ger­andi og þol­andi í tveimur morð­málum. Það gerð­ist þó í til­felli Braga Ólafs­sonar sem varð konu að bana árið 1988 en féll sjálfur fyrir hendi morð­ingja árið 2002.

Lá ísköld á gólfinu

Að kvöldi sunnu­dags­ins 10. jan­úar árið 1988 hringdi Bragi, þá 52 ára gam­all, í lög­regl­una frá heim­ili sínu að Klapp­ar­stíg 11 í Reykja­vík. Til­kynnti hann að eig­in­kona sín, hin 27 ára Gréta Birg­is­dóttir, lægi ísköld á gólf­inu og hefði að öllum lík­indum hengt sig. Lög­reglan mætti á stað­inn þar sem Bragir reynd­ist ofurölvi en Gréta látin. Dagana á undan höfðu þau Gréta og Bragi neytt mik­ils magns áfengis og hafði Bragi dáið áfeng­is­dauða um morg­un­inn. Kvaðst hann hafa vaknað sex til sjö klukku­tímum seinna og séð konu sína hanga í kað­al­spottum í svefn­her­berg­inu. Sagði hann lög­reglu hafa leyst hana úr köðl­unum, lagt á gólfið og sett yfir hana sæng. Í ljós kom að Bragi hafði neytt heillar flösku af sterku áfengi eftir að hann „upp­götv­aði” lát Grétu og þar til hann hringdi á lög­reglu. Liðu tæpir tveir klukku­tímar þar í milli.

„Með hamagang, stór og sterk“

Tölu­verðir áverkar voru á Grétu, meðal ann­ars á hálsi og höfði. Sparkað hafði verið í and­lit og höfuð Grétu og köðlum hafði verið vafið um háls hennar og þrengt að svo að skjald­brjóskið hafði brotnað. Dán­ar­or­sök var köfnun.

Áverk­arnir voru þess eðlis að lög­regla áleit strax að um dauða af völdum ofbeld­is­verkn­aðar væri að ræða og var Bragi í kjöl­farið hand­tek­inn og færður í gæslu­varð­hald. Hann gaf afar óljósa frá­sögn af atburðum kvölds­ins við yfir­heyrslur, kvaðst Grétu hafa valdið sér áverk­unum sjálf. Hún hefði marg­hótað því að fyr­ir­fara sér dag­ana fyrir and­látið. Sjálfur kvaðst hann enga sök eiga og hélt sig lengi við þá sögu. Að því kom þó síðar í mán­uð­inum að Bragi við­ur­kenndi við yfir­heyrslur að hafa orðið valdur að dauða Grétu með því að sparka í höfuð hennar og kæfa hana með böndum úr dyra­hengi. Hann vildi þó meina að um sjálfs­vörn hefði verið að ræða, Gréta hefði „margoft ráð­ist að honum með áhöldum, haft uppi hama­gang og verið stór og sterk”.

„Elskaði Grétu“

Tók hann ítrekað fram að hann hefði alltaf elskað Grétu en þau höfðu verið saman frá því hún var aðeins sautján ára en Bragi 42 ára. Mikil neysla ein­kenndi alla þeirra sam­búð.

Aldrei mun þó verða full­vitað hvað gerð­ist þessa örlaga­ríku nótt þar sem eina vitnið var banaðmað­ur­inn sem reynd­ist marg­saga auk þess þess sem minni hans var glopp­ótt eftir mikla áfeng­is­neyslu.

Bragi var dæmdur í 10 ára fang­elsi sem síðar var lækkað um tvö ár í Hæsta­rétti.

Skelfileg aðkoma

Fjórtán árum síðar var Bragi búinn að sitja af sér dóm sinn og bjó enn í íbúð­inni við Klapp­ar­stíg 11. Hinni sömu og hann ban­aði Grétu í. Að kvöldi 26. sept­em­ber 2002 köll­uðu nágrannar til lög­reglu og sjúkra­flutn­inga­fólks eftir að mikil læti  höfðu borist úr íbúð Braga. Aðkoman mun hafa verið skelfi­leg og íbúðin und­ir­lögð blóði. Ljóst var að mikil átök höfðu átt sér stað. Lá Bragi illa særður og með litla með­vit­und. Hann hafði verið stung­inn víða, meðal ann­ars í hand­legg og kvið og náðu stungu­sár inn að hjarta. Bragi gat sagt lög­regl­unni hvað gerst hafði og nefndi bana­mann sinn en lést á leið á sjúkra­hús.

Áhyggjur af andlegu ástandi

Lög­reglan hand­tók hinn 36 ára gamla Stein Ármann Stef­áns­son það sama kvöld. Steinn Ármann hafði áður komið við sögu hjá lög­reglu og var hann tal­inn veikur á geði. Fjöl­skylda Steins hafði þá þegar lýst yfir áhyggjum sínum af and­legu ástandi Steins, en hún taldi víst að hann gæti reynst hættu­legur og framið eitt­hvert voða­verk. Steinn Ármann hafði flúið af vett­vangi og lög­regla hóf leit að honum og egg­vopni sem notað var til verks­ins. Ekki leið á löngu þar til hann fannst í aust­urbæ Reykja­víku. Hann var hand­tek­inn og síðar ákærður fyrir morðið á Braga.

Steinn neit­aði til að byrja með að hafa verið valdur að dauða Braga, en við­ur­kenndi það þó fljót­lega. Vafi lék á um sak­hæfi hans, en geð­læknar voru ekki sam­mála um ástand Steins að kvöldi morðs­ins.

„Þessi maður er mjög veikur“

Hann var tal­inn hafa verið á sterkum lyfjum er hann framdi verkn­að­inn og hafi verið hald­inn rang­hug­myndum.

Steinn átti að baki langan saka­feril og hafði verið tal­inn á „gráu svæði” í heil­brigðis- og rétt­ar­kerf­inu í rúman ára­tug. Hann hafði oft komið við sögu lög­reglu áður og voru tvær lík­ams­árás­ar­kærur sam­ein­aðar morð­á­kærunni. Áður hafði hann til dæmis hlotið sjö ára dóm fyrir kóka­ín­inn­flutn­ing. „Þessi maður er mjög veikur,” sagði Þor­steinn A. Jónsson, for­stöðu­maður Fang­els­is­mála­stofn­unar, síðar í við­tal við DV, aðspurður um hvort eðli­legt hefði verið að sleppa honum út á reynslu­lausn ekki löngu fyrir morðið á Braga. Hafði Steinn Ármann þá verið sendur stofn­ana á milli án þess að úrræði fynd­ust fyrir hann.

Málið var lengi í rann­sókn og deildu geð­læknar um sak­hæfi Steins Ármanns. Töldu sumir að hann hefði verið í nán­ast sam­felldu geð­rofs­á­standi frá 21 árs aldri sem orsak­að­ist af geð­sjúk­dómum og mik­illi fíkni­efna­neyslu. Svo fór að Steinn var met­inn ósak­hæfur, bæði í hér­aði og Hæsta­rétti, og vistaður á rétt­ar­gæslu­deild­inni að Sogni.

Steinn Ármann lést árið 2013.

Bak­sýn­is­speg­ill­inn er end­ur­birtur. Höfundur: Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina