Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þessu þrifaráði getur þú hent lóðbeint í ruslið

Þessu þrifaráði getur þú hent lóðbeint í ruslið

Vin­sældir umhverf­is­vænna hreinsi­efna hafa farið vax­andi síð­ustu miss­eri og þrifa­ráðin hennar ömmu, á borð við notkun ediks og mat­ar­sóda til heim­il­is­þrifa, hafa í auknum mæli átt upp á pall­borðið hjá neyt­endum. Sér­stak­lega eftir að áhrifa­valdar, þá lík­lega einkum og sér í lagi Sólrún nokkur Diego, fóru að ger­ast sér­legir boð­berar þess­ara efna. Sem er gott og blessað, enda ekki nema jákvætt að fólk minnki notkun skað­legra efna til heim­il­is­þrifa.

Í kjöl­farið hafa versl­anir jafn­vel farið að selja sér­stakar „ediks­blöndur“ í úða­brúsum. Líklega er ágætt að benda á að það er engu betra en að kaupa brúsa af ediki og blanda út í vatn – jafn­vel með við­bættum ilmol­íu­dropum eftir smekk. En gott og vel.

Bæði edik og mat­ar­sódi hafa marga kosti þegar kemur að heim­il­is­þrifum, þó mik­il­vægt sé að kynna sér vel til að mynda hvaða efni þola edik og hver ekki. Sýrnin í edik­inu getur nefni­lega farið illa með suma fleti, þó það virki stór­vel á aðra.

„Töfrablandan“

Ein­hvers­staðar á leið­inni hefur hins­vegar orðið til mik­ill mis­skiln­ingur um gagn­semi þess­ara tveggja efna og hans gætir víða. Ótal áhrifa­valdar og sjálf­skipuð þrifaséní lofa í bak og fyrir blöndu af efn­unum tveimur. Edik og mat­ar­sódi eiga sumsé að vera töfra­blanda þegar kemur að ýmsum óhrein­indum, erf­iðum blettum… list­inn er langur. Þið vitið: gott í sitt­hvoru lagi – enn betra saman.

Nú munu áhrifa­valdar og vel­unn­arar ef til vill kafna á Sjö­strand kaff­inu sínu, úr keramíkboll­anum sem stillt hafði verið upp á krump­uðu hör­rúm­fata­sæng­inni. Ég biðst for­láts, von­andi hellt­ist ekki á sam­stæða drapp­lit­aða jogg­ing­gall­ann.

En þessa sápu­kúlu þarf að sprengja. Það vill nefni­lega þannig til, að þegar ediki og mat­ar­sóda er blandað saman ger­ist… ekk­ert. Engir töfrar, engin ofur­þrifa­súperka­líf­ragi-blanda. Efnin núlla hvort annað út. Þetta er ein­föld efna­fræði og öllum alveg hreint vel­komið að gúggla.

Það sem ger­ist þegar mat­ar­sódi kemst í tæri við edik er að efna­blandan fer að krauma, búbbla, þið vitið. Lítur út eins og eitt­hvað magnað sé að ger­ast, en það er ekki svo. Ástæðan fyrir því að efnin bregð­ast hvort við öðru á þennan hátt er að mat­ar­sódi er basískur, á meðan edik er súrt. Um leið og blandan hættir að krauma er ofmetið vatn það eina sem stendur eftir.

Það eina sem getur verið nyt­sam­legt við blönd­una er að nota hana rétt á meðan hún kraumar og er enn dálítið basísk. Þannig er hægt að hella mat­ar­sóda og dálitlu ediki beint á eftir ofan í vatns­lás á vaski og skrúbba niður með mjóum bursta rétt á meðan við­brögð efn­anna eru í hámarki. Hella svo heitu vatni á eftir.

Hvað varðar önnur þrif, til dæmis þegar ná á erf­iðum blettum af flötum eða úr efnum, eða þegar þarf að leysa upp fasta fitu­bletti og óhrein­indi, gefst betur að nota mat­ar­sóda einan og sér bland­aðan við vatn. Þá verður til nokk­urs­konar ræstikrem sem er gott til ýmissa verka.

Semsagt, edik og mat­ar­sódi eru hvort um sig gagn­leg efni til þrifa, en best að nota í sitt­hvoru lagi. Sýrnin í edik­inu er til að mynda góð til að losna við vatns­bletti og mat­ar­sódinn er frá­bær fitu­leysir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina