Síðastliðinn föstudagsmorgun var ráðist á unglingsstúlku sem var á leiðinni í ræktina á Reyðarfirði. Lögreglan náði árásarmanninum sem játaði verknaðinn. Var hann undir miklum áhrifum fíkniefna.
Þessar upplýsingar fengust hjá lögreglunni á Austurlandi eftir fyrirspurn Austurfréttar.
Rétt fyrir klukkan sex á föstudagsmorgun barst tilkynning um árásina til lögreglunnar en stúlkan var á leið í líkamsrækt þegar maðurinn veittist að henni. Var henni ákaflega brugðið en hún hlaut áverka í andliti. Fékk hún aðhlynningu læknis en fékk að fara heim eftir skoðun og meðferð.
Lögreglunni grunaði fljótt einstakling sem búsettur er á Reyðafirði og handtók hann á heimili sínu. Við yfirheyrslu játaði hann sök. Samkvæmt lögreglu er árásin rakin til ofskynjana af völdum fíkniefnaneyslu. Segir lögreglan í samtali við Austurfrétt að árásin hafi verið algjörlega tilhæfulaus og að gerandinn hafi ekki þekkt þolandann neitt. Efni sem talið er að sé fíkniefni, fundust heima hjá manninum við húsleit.
Samkvæmt heimildum Mannlífs barst foreldrum Grunnskóla Reyðarfjarðar tölvupóstur frá skólastjóranum í gær þar sem sagt var frá heimsókn skólastjóra og námsráðgjafa í 7.-10. bekk skólans þar sem upplýst um atvikið. Eru foreldrar í póstinum hvattir til að ræða málið við börn sín um málið en gæta rósemdar og virðingar í allri umræðu.
Málið er í rannsókn og komið langt á leið. Það verður svo sent ákærusviði að lokinni rannsókn og framhaldið ákveðið.































Athugasemdir