Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Land Rover-skór til sölu: „Þurfa þeir að byrja á verkstæði?“

Land Rover-skór til sölu: „Þurfa þeir að byrja á verkstæði?“
Land Rover skórnir. Mynd: Facebook

Það kennir ýmissa grasa inni á Facebook-síð­unni „Brask og brall.is“ líkt og fyrri dag­inn.

Þar gefur til dæmis að líta Land Rover-skó til sölu. Um er að ræða víga­lega striga­skó með þykkum, graf­ískum botni, merkta bíla­teg­und­inni Land Rover Defender í bak og fyrir.

Skórnir, sem eru af stærð­inni 41, voru falir fyrir litlar 5.000 krónur, en virð­ast nú jafn­vel þegar seldir. Enda um að ræða gjöf en ekki gjald.

Aug­lýs­ingin hefur vakið tölu­verða athygli á síð­unni, en þegar þetta er skrifað hafa 309 athuga­semdir verið rit­aðar við hana.

Enda er Land Rover Defender bíll sem vekur ávallt umtal og er vissu­lega umdeildur – sumir til­biðja teg­und­ina sem guð á meðan aðrir elska að hata hana.

Mörgum finnst líka ekki leið­in­legt að gera grín að bíl­unum, en þeir eru róm­aðir fyrir bil­ana­tíðni sína og leka­mál margs konar. Á móti eru eig­endur Land Rover Defender sér­lega hör­undsárir þegar kemur að far­ar­skjót­anum.

Auk þessa er síðan vissu­lega ekki algengt að sjá Land Rover-striga­skóm skartað á götum borg­ar­innar. Nú mun þeim þó lík­lega fjölga um eitt par.

Magne efast um að skórnir séu ósviknir.

„Ef þetta væru actually land­rover skór væri nú kom­inn ryð­litur á reim­arnar.“

Fleiri en einn merkja Magnús nokkurn Magn­ús­son í athuga­semdum við færsl­una, sem er þá lík­lega mik­ill Land Rover-maður. Ef til vill á hann bíl­inn en hefur alltaf vantað skóna í stíl.

„Hraðar hendur!,“ segir Benjamín og merkir Magnús. Hann bætir við, þegar Magnús seg­ist þegar hafa verið merktur:

„Hahaha sá það en þetta er orðið trend! Væri mjög fúll ef ég væri þú ef það eru ekki yfir 20 tögg.“

„Góðir skór eru skyldu­eign í hverjum Land Rover!“ segir Kristinn.

Ásmundur leggur af stað út á hálan ís:

„Já veitir ekki af að eiga góða skó ef maður á land­rover……. Úps…“

Arnbjörn gengur skref­inu lengra:

„Helst bara að passa að þeir séu vatns­þéttir OG olíu­þolnir líka.“

„Hafa þeir eitt­hvað bilað í dag?“ segir Jóhann.

„Ætli þeir séu vatns­heldir?“ spyr Kat­ar­ínus.

„Nei og lík­leg­ast ekki vind­heldir heldur,“ svarar Kristinn.

Ívar heldur sig á sömu nótum og hinir:

„Þessir skór leka eins og önnur fram­leiðsla frá Land Rover.“

„Spurn­ingin er ekki hvort, heldur hvar þeir leka. Been there done that,“ bætir hann við.

Gísli vill vita hvort hægt sé að nota skóna strax:

„Eru þeir í lagi eða þurfa þeir að byrja á verk­stæði?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina