Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jakob Bjarnar sakar Rúv um spillingu: „Þarna eru auðvitað samansúrruð hagsmunatengsl“

Jakob Bjarnar sakar Rúv um spillingu: „Þarna eru auðvitað samansúrruð hagsmunatengsl“
Jakob Bjarnar Grét­ars­son.

Jakob Bjarnar Grét­ars­son, blaða­maður og fyrrum Kátur piltur, skýtur föstum skotum á Rík­is­út­varpið í pistli á Face­book í gær. Veltir hann því fyrir sér hvort það geti verið eðli­legt að dag­skrár­gerð­ar­menn starfi sam­hliða sem tón­list­ar­menn á kvöldin.

„Fæstum þætti eðli­legt ef ég starf­rækti veit­inga­stað á kvöldin en fjall­aði sem blaða­maður um veit­inga­geir­ann vítt og breytt á dag­inn. Og gæfi mig út fyrir að vera fag­legur í því. En þetta er nákvæm­lega sam­bæri­legt við það sem er að ger­ast hjá Rík­is­út­varp­inu og hefur tíðkast lengi. Þar eru ýmsir dag­skrár­gerð­ar­menn sem sam­hliða starfa sem tón­list­ar­menn á kvöldin. Þarna eru auð­vitað sam­ansúrruð hags­muna­tengsl,“ skrifar Jakob Bjarnar.

Hann heldur áfram.
„Ef á að vera hægt að verja þennan rík­is­rekstur á sam­keppn­is­vett­vangi þá verður stofn­unin að vera fag­leg. En það er hún auð­vitað ekki og skákar í því skálka­skjól­inu að Íslend­ingar eru prinsipp­laus þjóð. Auðvitað er þetta ekk­ert stór­mál í hugum flestra en ef við föll­umst á að þetta sé í góðu lagi hvernig á þá að vera hægt með góðu móti að gagn­rýna spill­ingu þegar meiri sam­eig­in­legir hags­munir eru undir? Prinsipp eru ekki umsemj­an­legt fyr­ir­bæri, eða spurn­ing um hvar á að setja lín­una. (Ég geri ekki ráð fyrir að fá mörg læk á þennan status ef nokk­urt — hún verður alltaf þykk þögnin þegar ég impra á þessu.)“

Færslan hefur vakið hell­ings við­brögð en í athuga­semdum má finna þó nokkra nafn­tog­aða ein­stak­linga.

Egill Helgason skrif­aði stutta spurn­ingu til Jakobs. „Svavar Gests?“ Jakob svar­aði að bragði. „Eins og hann Ingi í Borg­ar­nesi sagði; þetta hefur alltaf verið gert með rass­gat­inu og eng­inn gert athuga­semdir við það. Við getum nefnt fjöld­ann allan af tón­list­ar­fólki sem hefur gert góða hluti í útvarpi og sjón­varpi. Elskaða dag­skrár­gerð­ar­menn. En þetta stenst því miður ekki skoðun.“ Egill spyr þá um Jools Holland. „Egill einn upp­á­halds þáttur minn í sjón­varpi er Af fingrum fram með Jóni Ólafs­syni. Þetta snýst ekki um hvað mér þykir skemmti­legt,“ svar­aði Jakob að bragði.

Bubbi Morthens tekur undir með Jakobi Bjarnari en hann var á tíma­bili með útvarps­þætt­ina Færi­bandið á Rás 2.

Villi Goði kemur einnig með inn­legg í umræð­una. „Svo hefur verið athygl­is­vert að fylgj­ast með í gegnum tíð­ina hvernig ein­staka útvarps­maður hefur tekið íslenska tón­list úr spilun af per­sónu­legum ástæðum. Ekki fílað bandið af ein­hverjum ástæðum. Ekki fengið að koma bak­sviðs eða bara alltaf verið í nöp við fólk sem hefur hæfi­leika í tón­list sökum eigin van­hæfni á því sviði. Ætti ekki að vera ein­hverss­konar regla hjá RUV um að allir íslenskir tón­list­ar­menn fái reglu­lega spilun hjá útvarp­inu sem við greiðum öll nef­skatt? Burtséð frá því hvað ein­staka bitrum útvarps­manni finnst.“

Ekki eru þó allir sam­mála Jakobi en Ólafur Páll Gunn­ars­son eða Óli Palli eins og hann er kall­aður, útvarps­maður og for­seti Popp­lands svarar Jakobi og heldur uppi vörnum fyrir Rík­is­út­varpið. „Ég hef bara þetta að segja sem opin­ber starfs­maður Rík­is­út­varps­ins. Við sem þar störfum erum fyrst og fremst að vanda okkur við að gera gott útvarp fyrir sem flesta. Það er örugg­lega margt sem er hægt að gera betur en okkur tekst í dag en það er engin spill­ing – ekk­ert sam­særi – eng­inn klíku­skapur og ekk­ert slíkt. Við erum opin­berir starfs­menn og högum okkur sam­kvæmt því. Það vilja allir meiri spilun en þeir fá – það er stað­reynd.

Þið sem gagn­rýnið mest – hafið þið kynnt ykkur dag­skrána á Rás 2? Hlustið þið virki­lega á Rás 2? Vitið þið um alla póstana sem við erum með til að kynna íslenska tón­list? Og hver raun­veru­legur munur er á Rás 2 og öðrum stöðvum varð­andi íslenska tón­list td?Við erum að gera mikið af góðum hlutum varð­andi Íslenska tón­list – alls­konar tón­list, en fyrst og fremst þurfum við að sinna eig­endum útvarps­ins – hlust­endum. Það getur ekki verið sjálf­sagður réttur fólks sem fæst við það að búa til músík – að hún sé sjálf­krafa spiluð á Rás 2 – það virkar bara ekki þannig. Matur er mis-góður, og það er músík líka. Þetta er ekki allt jafn gott. Ég ber mikla virð­ingu fyrir tón­list­ar­fólki yfir höfuð og elska tón­list.

Ást og friður í massa­vís.“

Þessu svarar Jakob Bjarnar fullum hálsi. „Þú ert ekki alveg að skilja mig. Þetta er ekki árás á RÚV. Þetta fjallar um prinsipp, hæfi og trú­verð­ug­leika. Hæf­is­hug­takið snýst ekki endi­lega um að þú sért að mis­nota aðstöðu þína beint eða óbeint heldur hvort þú sért í aðstöðu til þess.“

Óli Palli lætur sér hvergi bregða og svarar Jakobi um hæl. „Eru ekki lög og reglur til að passa uppá að við mann­fólkið höldum okkur innan ramma og högum okkur ekki eins og skepnur? Erum við ekki alla daga í allskyns aðstöðu til að gera þetta og hitt – en gerum það ekki vegna þess að reglur sam­fé­lags­ins banna það. Hættu þessu rugli Jakob og settu Band on the Run á fón­inn.“

Þor­steinn Hregg­viðs­son, starfs­maður Rúv veitir góða inn­sýn inn í störf Rúv þegar kemur að þessum málum. „Sem starfs­maður á Rás 2 þá verð ég að segja þér það er mikið hugsað um þetta hér á bæ, enda smá haus­verkur meðal ann­ars vegna svona umræðu sem er sjálf­sögð. Í hvert skipti sem starfs­maður/kona er að gefa út lög þá þurfa að vera sterk­ari rök um að taka þau í spilun en gilda um tón­list­ar­efni frá öðru tón­list­ar­fólki. Ef fólk er tengt þá víkur það af tón­list­ar­fundum meðan ákvörðun er tekin um það lag.“

Þessi pist­ill Jakobs hefur sem sagt vakið tals­verða athygli og við­brögðin eru mikil enda ekki í fyrsta skipti sem Jakob hristir upp í hlut­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina