Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Merkúr – samskipti, lærdómur og störf

Merkúr – samskipti, lærdómur og störf

Líkt og Merkúr, sendi­boði guð­anna, hefur plánetan Merkúr mikið með sam­skipti að gera innan stjörnu­spek­innar. Merkúr er tákn þess hvernig við tjáum okkur, lærum, störfum og eigum sam­skipti við aðra. Merkúr stjórnar hinu tal­aða og rit­aða orði. Merkúr stjórnar því hvernig við komum hugs­unum okkar og hug­myndum á fram­færi.

En hvað táknar Merkúr í hinum ólíku stjörnu­merkjum?

Hrútur

Hugaður, hrein­skil­inn og hvat­vís.

Sá sem er með Merkúr í Hrúti er afar bein­skeyttur í sam­skiptum. Hann fram­kvæmir yfir­leitt áður en hann hugsar og er sífellt á fleygi­ferð. Það er engin logn­molla í kringum hann. Hann vill ferð­ast í gegnum lífið á hlaupum og honum leið­ist afar auð­veld­lega. Það er því best fyrir hann að hafa alltaf nóg fyrir stafni.

Þessi ein­stak­lingur meinar það sem hann segir og segir það sem hann meinar – lygar eru honum nán­ast ómögu­legar. Þú getur treyst á hrein­skilið svar frá honum, en það er sömu­leiðis engin sía til staðar, svo álit hans og svör verða ávallt órit­skoðuð.

Naut

Þrautseigt, þrjóskt og heið­ar­legt.

Sá sem hefur Merkúr í Nauti býr yfir mik­illi þraut­seigju og hagg­ast ekki þegar á reynir.

Viðbrögð þessa fólks eru yfir­leitt ekki hröð og því líkar illa að þurfa að tjá sig eða ákveða hluti, öðru­vísi en að vand­lega yfir­lögðu ráði. Breyt­ingar í lífi þess eru almennt hægar.

Þegar þessir ein­stak­lingar hafa hins vegar ákveðið eitt­hvað verður þeim seint haggað. Þeir kjósa að læra með því að gera hluti; orðin tóm hugn­ast þeim ekki.

Þetta er traust og heið­ar­legt fólk, en það kýs að sýna það og sanna í verki. Sömu­leiðis mun þetta fólk ávallt horfa á verk þín frekar en orð, til þess að ákvarða hvort þú sért trausts þess verður.

Tvíburi

Opinn, for­vit­inn og félags­lyndur.

Fólk með Merkúr í Tvíbura er sífellt á ferð og flugi; það er félags­lynt og fær tölu­verða örvun út úr mann­legum sam­skiptum. Þetta er fólk sem á ein­stak­lega auð­velt með að skoða mál frá öllum hliðum og skilja ólík sjón­ar­mið.

Þekk­ing­ar­þorsti þeirra er mik­ill og þessir ein­stak­lingar vilja sífellt læra eitt­hvað nýtt. Það er oft dálít­ill athygl­is­brestur í þeim og ein­beit­ing þeirra fer fyrir ofan garð og neðan ef við­fangs­efnið vekur ekki áhuga þeirra. Þessir ein­stak­lingar eiga afar auð­velt með að detta með höf­uðið á undan ofan í ýmsar kan­ínu­holur. Til að mynda getur þeim dottið í hug eitt kvöldið að þeir vilji vita meira um ákveðið mál­efni eða mann­eskju. Skyndi­lega hafa margir klukku­tímar liðið og Tví­bura­merkúr­inn gæti haldið fyr­ir­lestur um málið eða tekið þátt í rök­ræðum um það.

Krabbi

Var­fær­inn, djúpur og grein­andi.

Sá sem hefur Merkúr í Krabba kýs að miðla upp­lýs­ingum og tala um hlut­ina við einn eða fáa í einu. Hann hefur ekki þörf fyrir að básúna mál sitt í stórum hópum eða tala við marga í einu yfir­höfuð. Hann talar vand­lega um hlut­ina frekar en að þjóta út og fram­kvæma. Hann er hugs­andi, grein­andi og gerir sér vel grein fyrir mætti hins tal­aða orðs og mik­il­vægi þess að hafa áætlun.

Þetta eru ein­stak­lingar með mikla til­finn­inga­greind sem þeir nota óspart í sam­skiptum. Það er oft svo að fólk með Merkúr í Krabba veit öll leynd­ar­mál vina sinna. Fólk hefur ein­hverja ósjálf­ráða til­hneig­ingu til að segja þeim hluti.

Þetta er fólk með ríka aðlög­un­ar­hæfni en á sama tíma afar breyti­legt skap. Það er eng­inn ofsi í því út á við, en þetta fólk getur hrein­lega upp­lifað sig sem tvær ólíkar mann­eskjur að morgni og kvöldi sama dags.

Ljón

Einlægt, glettið og heið­ar­legt.

Ein­stak­lingar með Merkúr í Ljóni koma ávallt til dyr­anna eins og þeir eru klæddir. Þeir hafa litla þörf fyrir að sýn­ast; þeir treysta á sjálfa sig og það sem þeir hafa fram að færa. Þeir standa styrkir og taka ábyrgð á ákvörð­unum sínum og gjörðum.

Þessir ein­stak­lingar elska að læra nýja hluti sem vekja áhuga þeirra. Þeir læra á barns­legan máta, í gegnum leik og for­vitni. Það hentar þeim best að læra hluti með því að fram­kvæma og þegar þeir hafa kom­ist upp á lagið með eitt­hvað gleym­ist það ekki svo glatt. Þetta eru skap­andi ein­stak­lingar og allt sem þeir gera kemur frá hjart­anu. Þeir sjá ekki til­gang í því að gera hluti nema þeir séu sannir í þeim. Þannig er þetta fólk lítið fyrir að hoppa á vagna og fylgja tísku­straumum. Þetta er leið­andi fólk sem hrífur aðra með sér. 

Meyja

Fram­taks­söm, nákvæm og rök­ræn.

Fólk með Merkúr í Meyju er afar vinnu­samt. Það er stans­laust að og getur yfir­leitt sinnt mörgum verk­efnum í einu – og gert það vel. Þetta fólk er gjarnan miklum gáfum gætt og metur hina vit­rænu hlið mik­ils. Það talar yfir­leitt aldrei um hluti öðru­vísi en að vita mikið um þá.

Þessir ein­stak­lingar eru ein­stak­lega færir í rök­ræðum og jarða and­stæð­inga sína leik­andi. Ekki með neinum æsingi, heldur ein­ungis með rökum og vit­neskju. Þeim hættir oft við áhyggjum og streitu, enda setja þeir mikla pressu á sjálfa sig.

Þetta fólk er hjálp­samt og lið­tækt í að leysa úr hinum ýmsu flækjum og vanda­málum. Það gleður það þegar aðrir kunna að meta gáfur þess.

Vog

Listræn, for­vitin og diplómat­ísk.

Sá sem hefur Merkúr í Vog er fær í mann­legum sam­skiptum. Hann er afar diplómat­ískur og því flinkur sátta­semj­ari. Hann er fróð­leiks­fús, vill helst hafa eyru alls staðar og vita allt um alla.

Þessir ein­stak­lingar hafa mik­inn áhuga á fólki. Per­sónu­legar skoð­anir þeirra virð­ast yfir­leitt ekki flækj­ast fyrir þeim þegar þeir nálg­ast mál­efni og deilur. Raunar finnst þessu fólki oft erfitt að tjá sínar eigin skoð­anir; að lenda í sviðs­ljós­inu og hugs­an­legri hakka­vél. Ákvarð­anir geta líka reynst því þrautin þyngri og þetta fólk glímir yfir­leitt við val­kvíða.

Þessir ein­stak­lingar geta yfir­leitt unnið með hér um bil hverjum sem er og sam­einað ólíka ein­stak­linga og sjón­ar­mið. Það er afar gott að hafa þá í vinnu­hópum, enda eiga þeir auð­velt með að koma hlutum í gang og fá fólk til að tjá sig.

Sporðdreki

Leynd­ar­dóms­fullur, hrein­skil­inn og ástríðu­fullur.

Fólk með Merkúr í Sporð­dreka er ein­stak­lega ástríðu­fullt og þarf að hafa djúpan áhuga á því sem það tekur sér fyrir hendur. Það gengur ekki upp hjá þessu fólki að vinna að verk­efnum sem vekja ekki áhuga þess; því þykir það til­gangs­laust.

Eins og er með flestar plánetur í Sporð­dreka vill þetta fólk fara á dýpt­ina og yfir­borðs­leg sam­skipti eru því þvert um geð.

Þessir ein­stak­lingar elska að skilja hluti og stinga sér ávallt á bólakaf í hugð­ar­efni sín. Það er dálítil rann­sókn­ar­lög­regla í þeim. Umfram allt eru þeir rann­sak­andi, grein­andi og elska að taka hluti í sundur og setja þá aftur saman.

Þetta eru þrjóskir ein­stak­lingar sem kunna best við að hafa leynd yfir hugs­unum sínum og áætl­unum.

Bogmaður

Hrein­skil­inn, hvat­vís og djarfur.

Sá sem er með Merkúr í Bogmanni er hnytt­inn og snöggur upp á lagið. Hann er hrein­skil­inn og almennt fer ekk­ert sem hann segir í gegnum nokk­urs konar síu. Enda á hann ekki í nokkrum vand­ræðum með að standa með því sem hann segir. Hann á það til að sjokkera og hefur lúm­skt gaman af því.

Þetta eru virkir og félags­lyndir ein­stak­lingar sem kunna vel við að vera í miklum sam­skiptum við aðra. Þeir eru for­vitnir og fróð­leiks­fúsir. Þeim líkar afar vel að læra í gegnum ferða­lög og ævin­týri ýmiss konar. Raunar er þetta fólk sem metur yfir­leitt frelsi og ferða­lög ansi mik­ils. Þeim líkar mjög illa að vera fastir í sama land­inu lengi og ferða­lög til ann­arra landa eru þeim sem ferskur and­blær og spenn­andi rann­sókn­ar­vinna.

Þetta fólk er oft­ast með svör á reiðum höndum og er hnyttið í til­svörum. Það er yfir­leitt ekki sér­lega gott í tíma­stjórnun og á það til að vera of seint.

Steingeit

Stjórn­söm, hvöss og vinnu­söm.

Ein­stak­lingar með Merkúr í Stein­geit eru iðnir og nákvæmir. Þeir vinna verk sín vand­lega og skor­ast aldrei undan ábyrgð. Þetta eru oft leið­togar og þeir geta verið ansi stjórn­samir. Þeir ætl­ast til sömu vinnu­semi frá öðrum og þeir leggja sjálfir til, sem getur reynst sam­starfs­fólki þeirra eða und­ir­mönnum þrautin þyngri. Það eru nefni­lega alls ekki allir sem koma jafn miklu í verk og fólk með Merkúr í Stein­geit.

Þessu fólki líkar þó ekki að vinna að mörgu á sama tíma – það kýs heldur að búta verk­efnin niður og klára eitt í einu.

Þessir ein­stak­lingar hafa oft skemmti­legan húmor, sem oft er dálítið kald­hæð­inn og óvenju­legur. Þeir þurfa á ákveð­inni form­festu að halda og þekkja reglu­verk inn og út. Það blundar þó í þeim löngun til að brjóta regl­urnar og því eiga þessir ein­stak­lingar það til að fara í upp­reisn.

Vatnsberi

Frum­legur, sjálf­stæður og sjálfsör­uggur.

Fólk með Merkúr í Vatns­bera er ein­stak­lega hug­mynda­ríkt og elskar að kafa djúpt ofan í hugð­ar­efni sín. Oft er þetta fólk sem fæst við tvo eða fleiri, afar ólíka hluti í lífi sínu. Þessir ein­stak­lingar hafa oft áhuga á ýmiss konar dul­speki en eru svo ef til vill í „hefð­bundnum“ störfum á dag­inn frá níu til fimm. Þeir eru ein­stak­lega skap­andi og eiga auð­velt með að heilla fólkið í kringum sig með óvenju­legum hug­myndum sínum. Þeir standa með hugð­ar­efnum sínum og skoð­unum, og nálg­ast hluti ávallt út frá vits­muna­legum grund­velli.

Þessu fólki finnst ekki erfitt að aðrir séu því ósam­mála eða að fólki þyki það skrýtið. Það virð­ist hrein­lega ekki snerta þetta fólk.

Ein­stak­lingum með Merkúr í Vatns­bera þykir skemmti­legt að rýna í menn og mál­efni og eru yfir­leitt klárir. Þeir eru sér­fræð­ingar í rök­ræðum og snöggir í til­svörum. Þeim þykir fer­ill á sviði ein­hvers skonar vís­inda, sér­stak­lega ef það teng­ist fram­þróun mann­kyns, oft afar spenn­andi.

Fiskar

Skapandi, til­finn­inga­ríkir og dul­ar­fullir.

Ein­stak­lingur með Merkúr í Fiskum heldur yfir­leitt öllum spilum sínum á hendi þar til í síð­asta leik. Hann er mjög leynd­ar­dóms­fullur og erfitt getur reynst að átta sig á mark­miðum hans.

Þessir ein­stak­lingar búa gjarnan yfir skáld­gáfu og eru sér­lega góðir sögu­menn með mikið hug­mynda­flug. Þeir geta spunnið heilu ævin­týrin á staðnum og heillað áheyr­endur sína með sér. Þeir hafa oft frum­lega sýn á lífið og hug­myndir þeirra eru óhefð­bundnar.

Þetta fólk notar inn­sæi og til­finn­ingar til að meta fólk og aðstæður, enda býr það yfir ákveð­inni náð­ar­gáfu þegar kemur að til­finn­inga­vit­und. Það getur verið dálítið sveiflu­kennt í skapi og oft er engin leið að vita hvaða útgáfu af þeim þú munt mæta hverju sinni.

Þessir ein­stak­lingar eru góðir hlust­endur og hafa sér­stakt lag á að umvefja við­mæl­endur sína hlýju og láta þeim líða vel.

Með réttum fæð­ing­ar­tíma og stað er eng­inn vandi að skoða hvaða merki Merkúr er í hjá þér, til dæmis á Cafe Astrology.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina