Grey´s Anatomy stjarnan Jesse Williams er á landinu. Þekktastur er Williams fyrir hlutverk Jackson Averys í Grey´s Anatomy en sumir muna sjálfsagt eftir honum í hinni geysivinsælu grínhrollvekju Cabin in The Woods frá árinu 2011.
Í gær birti Williams glefsur úr ferð sinni hér á landi. Þar má sjá að hann hefur farið að Geysissvæðinu, séð Kerið í Grímsnesi og heimsótt Friðheima í Reykholti svo fátt eitt sé nefnt. Þá má sjá myndband frá Sky Lagoon í Story hjá þessum nýja Íslandsvini.































Athugasemdir