Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Venus í stjörnumerkjunum – hvernig nálgumst við ástina?

Venus í stjörnumerkjunum – hvernig nálgumst við ástina?

Það ætti ekki að koma á óvart að Venus í stjörnu­speki hefur mikið með ást­ina að gera. Hvernig við elskum og hverja við elskum. Venus er líka tákn­ræn pláneta fyrir lífs­ins lystisemdir, þæg­indi og það sem veitir okkur ánægju. Venus stjórnar þokka, per­sónu­töfrum og feg­urð. Venus hefur skap­andi orku og gefur vís­bend­ingu um okkar eigið list­fengi.

Hrútur

Þeir sem eru með Venus í Hrúti eru hrein­skiptnir og blátt áfram í ástum. Það þarf ekki að toga hluti upp úr þeim og þeir kunna að meta það sama hjá maka sínum. Þeir vilja líf og fjör í sam­böndum sínum og fjöl­breytni er þeim mik­il­væg. Þessir ein­stak­lingar nálg­ast ást­ina á barns­legan og ein­lægan hátt. Þeir eru fljótir að reið­ast en þeir fyr­ir­gefa líka frekar fljótt. Af ástríðu eiga þeir nóg og vilja gjarnan lenda í ævin­týrum með maka sínum.

Þeir kunna illa við stöðnun og maki þeirra má ekki taka sig of alvar­lega.

Í listum og nýsköpun eru þessir ein­stak­lingar ævin­týra­gjarnir og óhræddir við að ögra. Þeir eru afar hug­mynda­ríkir. Nálgun þeirra á sköpun er í gegnum for­vitni og áræðni barns­ins.

Naut

Fólk með Venus í Nauti er ein­stak­lega róm­an­tískt og nautna­fullt. Það er trygg­lynt og þarf á öryggi og stöð­ug­leika að halda í sam­böndum. Traust skiptir það öllu máli. Naut eru almennt gefin fyrir lífs­ins lystisemdir og það magn­ast enn frekar upp þegar Venus er í Nauti. Því getur virkað vel að heilla Venusar-Naut með róm­an­tískum kvöld­verði, súkkulaði og ostum, eða ferð í leik­hús, svo dæmi séu tekin. Að sama skapi mun fólk með þessa plánetu­stöðu huga vel að maka sínum og dekra við hann. Þar sem hraðar breyt­ingar eru Nautum yfir­leitt ekki að skapi mun Venusar-Naut ekki sér­stak­lega kunna að meta ást­ar­sam­band með mann­eskju sem sveifl­ast mjög hratt og er of hvat­vís.

Þetta fólk kann að meta list­form þar sem hægt er að snerta og búa til með hönd­unum, til dæmis mynd­list og leir­list. Að sama skapi getur það oft fengið útrás með skap­andi elda­mennsku.

Tvíburi

Þeir ein­stak­lingar sem hafa Venus í Tvíbura nær­ast mjög á vits­muna­legri hlið róm­an­tískra sam­banda. Þeir kunna að meta léttar og spenn­andi rök­ræður við maka sinn, kímni og snörp til­svör. Gáfur eru afar heill­andi í þeirra augum. Makinn þarf að geta haldið Tvíbura-Venus á tánum og staðn­aðar skoð­anir og venjur eru honum ekki að skapi. Tvíburar elska að vera á ferð og flugi og fyrir þennan Tvíbura er mik­il­vægt að hafa ákveðið frelsi til að sinna hugð­ar­efnum sínum.

Þeir sem hafa Venus í Tvíbura hafa skemmti­legt skop­skyn og elska að koma öðrum til að hlæja. Það er stundum flókið fyrir þá að skilja eigin til­finn­ingar og stundum geta þeir virst dálítið kaldir. Það er vegna þess að þeirra þæg­ind­ara­mmi er í hinu vits­muna­lega. Þeir þurfa að þjálfa tengsl við eigin til­finn­ingar og læra að skilja til­finn­ingar sinna nán­ustu.

Í listum eru þeir oft flinkir í skrifum. Sömu­leiðis drag­ast þeir að tölvum og tækni. Upptökur og hljóð­tækni geta því heillað þá.

Krabbi

Sá sem er með Venus í Krabba þráir mikla nánd í róm­an­tískum sam­böndum og er við­kvæmur og djúpur. Hann kann að meta stöð­ug­leika og kýs frekar róleg­heit en hraða. Hann elskar að búa sér nota­legt heim­ili þar sem hann getur hreiðrað um sig með maka sínum.

Ein­stak­lingar með Venus í Krabba eru oft tor­tryggnir og ef þú brýtur traust þeirra getur verið ansi erfitt að vinna það til baka. Þeir gleyma engu.

Þessir ein­stak­lingar eru næmir elsk­hugar og njóta þess að dekra við maka sinn. Þeir fá gjarnan mikið út úr því að sjá um þann sem þeir elska, til dæmis með því að elda dýr­indis mál­tíðir fyrir við­kom­andi, nudda hann, láta renna í bað og slíkt. Þeir eru afar umhyggju­samir og fara ávallt í sam­bönd fullum fetum með þann ásetn­ing að láta þau end­ast. Þeir eru almennt lengi að jafna sig á sam­bands­slitum.

Ein­stak­lingar með Venus í Krabba eru mjúkir og næmir í list­fengi sínu og ferst vel úr hendi að nota þá eig­in­leika, ásamt umhyggju­semi sinni í list­sköpun. Þeir geta líka verið góðir heil­arar.

Ljón

Fólk með Venus í Ljóni er heið­ar­legt og trygg­lynt. Það elskar að vera mið­punktur athygl­innar og það á einnig við í ást­ar­sam­böndum. Þetta fólk þarf á umhyggju, hrósi og aðdáun að halda frá maka sínum og að sama skapi vill það monta sig af þeim sem það elskar. Venusar-Ljón taka þá sem þeim þykir vænt um undir sinn vernd­ar­væng og eru ómet­an­legur stuðn­ingur.

Þau eru orku­mikil og þykir gaman að láta koma sér á óvart og gera það sama fyrir aðra. Stöðnun og mik­ill fyr­ir­sjá­an­leiki eru þeim ekki sér­stak­lega að skapi, enda upp­full af ástríðu. Til­finn­ingar þeirra eru stórar og miklar – í allar áttir.

Þetta fólk er hrein­skilið og ætl­ast til þess sama frá maka sínum. Þetta Ljón getur verið barns­legt í nálgun sinni á ást­ina og treystir yfir­leitt auð­veld­lega. Í þeirra huga er sam­band einskis virði án trausts.

Í listum hentar þessu fólki ein­stak­lega vel að koma fram með ein­hverjum hætti. Þannig getur það kunnað mjög vel við sig sem leik­arar, tón­list­ar­flytj­endur (í for­grunni) og dans­arar.

Meyja

Venusar-Meyjan leggur mikið á sig fyrir þann sem hún elskar. Hún sýnir ást sína yfir­leitt í verki og er lítið fyrir inni­halds­laust kodda­hjal. Hún getur virst dálítið köld enda er það henni eðl­is­lægt að nálg­ast hluti frá vit­rænu sjón­ar­horni og hún kann að meta það þegar maki hennar er bein­skeyttur, eins og hún er sjálf.

Komist þú inn fyrir varnir hennar hefur hún mikla ást að gefa og er afar traust. Henni farn­ast best í lang­tíma­sam­bandi og hún kann að meta ákveð­inn fyr­ir­sjá­an­leika.

Þessir ein­stak­lingar vilja rækta lík­ama sinn og kunna vel við það þegar mak­inn gerir slíkt hið sama. Stefnu­mót í formi fjall­ganga eða ann­arrar lík­ams­ræktar eru þeim gjarnan að skapi.

Venusar-Meyja er eft­ir­tekt­ar­söm og grein­andi. Henni hættir stundum til að vera nöldr­ari, enda afar nákvæm og oft­ast með dálitla full­komn­un­ar­áráttu.

Þau list­form sem hugn­ast þeim mest eru þau sem sam­eina eitt­hvað áþreif­an­legt og skipu­lags­hæfni. Þannig getur arki­tektúr verið þeim mjög að skapi. Sömu­leiðis þykir þeim oft gef­andi að sjá um skipu­lag fyrir aðra lista­menn eða halda utan um „stóru mynd­ina“, eins og til dæmis með því að vera sýn­ing­ar­stjórar í leik­húsi eða list­gall­eríi.

Vog

Fólk með Venus í Vog hefur mjúka og nota­lega orku. Þetta er fágað fólk sem er fært í sam­skiptum, góðir hlust­endur og á auð­velt með að setja sig í spor ann­arra. Venusar-Vogir eru hrifnar af hug­mynd­inni um sam­bönd og eru oft­ast ekki ein­hleypar lengi í einu. Raunar hættir þeim frekar til að hoppa úr einu lang­tíma­sam­band­inu í annað og eiga stundum erfitt með að finna það sem þær eru að leita að. Þær þrá félags­skap og ein­hvers konar sam­ein­ingu tveggja huga og hjarta. Þeim þykir hug­myndin um sálu­fé­laga heill­andi en eiga það til að kyngja því sem þeim mis­líkar of lengi og geta orðið með­virkar.

Þetta fólk er ein­stak­lega sjar­mer­andi og það er ekki erfitt að hríf­ast af því. Það hefur yfir­leitt óað­finn­an­legan smekk, bæði þegar kemur að eigin útliti og klæða­burði, sem og heim­ili.

Í listum hugn­ast þeim ein­hvers konar sam­skipta­form og geta til að mynda fundið sig í sjón­varpi þar sem þær hafa við­mæl­endur og áhuga­verð við­fangs­efni.

Sporðdreki

Sá sem er með Venus í Sporð­dreka þrífst á til­finn­inga­legri dýpt, nánd og ástríðu. Hann á yfir­leitt frekar erfitt með að treysta öðrum fyrir til­finn­ingum sínum. Það er með­fætt myrkur innra með honum og hann þarf að treysta elsk­huga sínum full­kom­lega til að sýna honum það sem þar býr. Þar sem hann er tor­trygg­inn að upp­lagi þarf hann maka sem er þol­in­móður við hann og er til­bú­inn til að vinna sér inn traust hans. Takist það fær sá hinn sami það marg­falt til baka. Venusar-Sporð­drek­inn er afar vernd­andi og elskar af öllu hjarta. Hver taug er þanin til hins ýtrasta.

Þessir ein­stak­lingar eru dálítið dul­ar­fullir og fólki þykir þeir yfir­leitt ann­að­hvort spenn­andi eða yfir­þyrm­andi. Þeir eru ákafir og vilja vita allt um maka sinn – ekki síst erf­iðu, flóknu og dimmu hlut­ina. Þeir hræð­ast ekki það „ljóta“, heldur vekur það áhuga þeirra. Þeir eiga það til að hegða sér dálítið eins og sál­fræð­ingar eða geð­læknar við maka sína.

Í listum vekur einna helst áhuga þeirra að geta nálg­ast dauða, umbreyt­ingu og end­ur­fæð­ingu á ein­hvern hátt. Þannig fær þeirra list­sköpun, í hvaða formi sem hún er, yfir­leitt slíkan brag á sig.

Bogmaður

Venusar-Bog­mað­ur­inn er opinn og orku­mik­ill í róm­an­tískum sam­böndum. Hann þarf tölu­vert frelsi til að vera ánægður og kann afar illa við að finn­ast hann kæfður. Hann er félags­lyndur, elskar að ferð­ast og hrífst af for­vitni og húmor. Sjálfur er hann með létt skop­skyn og þótt skapið eigi það til að fara í allar áttir er hann yfir­leitt fljótur að jafna sig. Hann vill vera með ein­hverjum sem nálg­ast lífið með opnum huga, þykir gaman að spjalla um hin ýmsu mál­efni og er ekki of alvar­legur.

Þessir ein­stak­lingar eru ekki sér­lega hrifnir af því ef ein­hver verður of háður þeim og vilja að maki þeirra sé jafn sjálf­stæður og þeir eru sjálfir.

Þeir elska að velta fyrir sér heim­speki­legum hug­myndum og vilja geta rætt þær í þaula við maka sinn og farið á dýpt­ina. Þeim leið­ist yfir­borðs­leg sam­skipti og þegja frekar en að tala stefnu­laust um veðrið.

Í listum þurfa þeir eitt­hvað sem er fjöl­breytt og vilja elt­ast við hug­myndir og kenn­ingar.

Steingeit

Mann­eskja með Venus í Stein­geit er jarð­bundin og traust. Hún lað­ast að sjálf­stæðum og sterkum per­sónu­leikum. Hún er yfir­leitt ekki sér­stak­lega upp­tekin af ást­ar­sam­böndum og er sjálfri sér nóg, en þegar hún verður ást­fangin er hún ein­stak­lega traust og trú. Hún anar ekki út í sam­band öðru­vísi en að vera til­búin til að skuld­binda sig. Hún er afar hjálp­söm, leggur sig fram fyrir maka sinn og sæk­ist eftir öryggi og stað­festu í sam­böndum.

Venusar-Stein­geitur treysta ekki ósjálfrátt og geta verið lok­aðar, enda standa þær vörð um til­finn­ingar sínar og kunna ekki vel við að sýna veik­leika. Þess vegna tekur yfir­leitt tíma að vinna sér inn traust þeirra og það krefst þol­in­mæði og vinnu.

Þær vilja fást við eitt­hvað sem hefur að gera með skipu­lag og yfir­sýn. Einhvers konar bygg­ing­ar­list hentar oft vel, sem og sköpun sem krefst færni í við­skiptum.

Vatnsberi

Ein­stak­lingur með Venus í Vatns­bera er oft óhefð­bund­inn í hegðun og fasi. Hann er frum­legur en nálg­ast menn og mál­efni yfir­leitt út frá vits­muna­legu sjón­ar­horni. Hann dvelur í huga sínum frekar en hjarta og það á sömu­leiðis við um ást­ina. Hann vill elsk­huga sem getur ögrað honum vits­muna­lega og hefur eitt­hvað sér­stakt við sig.

Venusar-Vatns­berar elska að ögra. Það gera þeir með hegðun sinni en sömu­leiðis klæða­burði, sem er gjarnan óvenju­legur og eft­ir­tekt­ar­verður. Þeim leið­ist hjarð­hegðun. Þeir lað­ast að gáfum og vilja vera með ein­hverjum sem elskar að ræða fólk og hug­myndir fram og til baka. Ákveðið frjáls­ræði þarf að vera til staðar og maki þeirra má ekki vera of háður þeim.

Þeir kunna vel við sig innan um annað fólk og í list­sköpun vilja þeir gjarnan þróa eitt­hvað sem kemur á óvart, ögrar eða talar inn í sam­fé­lags­um­ræð­una. Það má oft finna ádeilur í verkum þeirra.

Fiskar

Þeir sem eru með Venus í Fiskum eru dreym­andi, við­kvæmir og skap­andi. Þeir eiga það til að verða yfir sig ást­fangnir af hug­mynd­inni um ákveðna mann­eskju og sjá hana með rós­rauðum gler­augum. Raunsæi er ekki þeirra sterka hlið og stundum er eins og þeir haldi að ást­ar­sam­bönd séu eins og í ævin­týrum. Þeir verða því oft fyrir von­brigðum þegar í ljós kemur að svo er ekki.

Þessir ein­stak­lingar búa yfir ein­stöku til­finn­inga­næmi og sjá oft lengra en nef þeirra nær. Þeir finna fyrir til­finn­ingum elsk­huga síns og farn­ast best með ein­hverjum sem hleypir þeim óhindrað að sér. Venusar-Fiskar hafa afar róandi og fal­lega nær­veru og geta haft mjög heilandi áhrif. Það er bæði náð­ar­gáfa og bölvun, því þeir geta orðið með­virkir. Sömu­leiðis eiga þeir það til að ætla að „bjarga“ ein­hverjum. Þeir geta hins vegar fundið ham­ingju í sam­böndum þegar þeir læra að aðskilja sjálfa sig frá öðrum og nálg­ast sam­bönd og elsk­huga á örlítið raun­særri hátt.

Vegna sterks inn­sæis þeirra leita þessir ein­stak­lingar oft í sköpun með ein­hvers konar and­legu og dulúð­legu ívafi. Sömu­leiðis eru list­form eins og ball­ett oft heppi­leg fyrir þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina