Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skora á Evrópusambandið að „stöðva villimannlegt ofbeldi“ á íslenskum „blóðbæjum“

Skora á Evrópusambandið að „stöðva villimannlegt ofbeldi“ á íslenskum „blóðbæjum“

Hol­lensku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Dier & Richt hafa hafið und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem skorað er á fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­insi að banna með öllu að dregið sé blóð úr fyl­fullum hryssum. Með því verði stöðvað „vilil­mann­legt og hrotta­legt ofbeldi“ á hrossum á íslenskum „blóð­bæjum“.

Samtökin telja það bæði sýnt og sannað að blóð­takan leiði til hræði­legrar þrján­ingar dýr­anna. Mannlíf greindi fyrst frá illri með­ferð blóð­mera hér á landi.

Sjá einnig: Rúmlega millj­arðs hagn­aður í skugga dýra­níðs – „Go back to your country“

Gífurlegur hagnaður

Líf­tækni­fyr­ir­tækið Ísteka hagn­að­ist um rétt tæpar 600 millj­ónir króna á síð­asta ári vegna blóð­töku úr fyl­fullum hryssum til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyfjum sem selt er til stórra lyfja­fyr­ir­tækja um allan heim. Þennan rúma hálfa millj­arð græddi fyr­ir­tækið í skugga skelfi­legrar með­ferðar á hryss­unum, líkt og Mannlíf greindi fyrst frá um síð­ast­liðna helgi.

Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins, sem Mannlíf hefur undir höndum, má sjá að fyr­ir­tækið hagn­að­ist í fyrra um tæpar 600 millj­ónir, eða 591.889.767 krónur fyrir þá sem hafa gaman af tölum. Árið þar á undan var hagn­að­ur­inn svip­aður, eða rétt rúmur hálfur millj­arður, og því hefur Ísteka grætt rúman millj­arð á tveimur árum vegna blóð­mer­anna þar sem sýnt hefur verið fram á aug­ljóst dýra­níð.

Blóð­iðn­aður bænda

Árlega er tekið blóð úr ríf­lega 5.000 hryssum hér á landi, aftur fyrir þá sem hafa gaman af tölum þá voru hryss­urnar 5.036 tals­ins í fyrra, og er það gert á tveggja mán­aða tíma­bili, síð­sum­ars og að hausti. Vikulega er tekið blóð úr fyl­fullum hryss­unum, allt að 5 lítrar í senn en að hámarki átta sinnum úr hverri meri. Það þýða hátt í 40 lítrar af blóði úr hverri hryssu, eða sem nemur 15-20 pró­sentum af öllu blóð­magni hests­ins.

Fyrir þessa 5 lítra sem fást í hvert skipti fær bónd­inn 10.000 krónur, eða allt að 80.000 krónur frá hverri blóð­meri á ári. Frá öllum blóð­merum lands­ins eru íslenskir bændur því að hagn­ast um rúmar 400 millj­ónir á ári, eða 402.880.000 krónur nánar til­tekið.

Ísteka vinnur efni úr blóði mer­anna, meðal ann­ars til að auka frjó­semi svína. Blóð­takan úr fyl­fullum íslenskum hryssum hefur verið stunduð hér í rúma fjóra ára­tugi og er til­gang­ur­inn að safna horm­ón­inu eCG sem notað er til fram­leiðslu frjó­sem­is­lyfja svína til mann­eldis. Líkt og Mannlíf hefur greint frá eru hér á landi starf­andi aðeins 5 dýra­eft­ir­lits­menn, til að fylgj­ast með blóð­mer­a­iðn­aði bænda sem og með­ferð allra ann­arra dýra hér á landi.

Sjá einnig: Vilja leyfa Ísteka að taka 600 tonn af mera­blóð næstu tvo ára­tugi

Hrylli­leg með­ferð

Mat­væla­stofnun, MAST, rann­sakar nú inni­hald mynd­bands sem sýnir hrylli­lega með­ferð á blóð­merum hér á landi. Í heim­ilda­mynd­inni má sjá dæmi um að hrossin séu barin og slegin, tjóðruð niður og geymd í þröngum blóð­töku­básum.

Heim­ilda­myndin erlenda sem sýnir slæma með­ferð á fyl­fullum hryssum við blóð­töku er nú til rann­sóknar hjá Mat­væla­stofnun. Hol­lend­ing­arnir hafa fengið nóg og í til­kynn­ingu vegna und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar segja sam­tökin:

„Blóð er tekið úr hryss­unum með hrotta­legu ofbeldi. Þessi skelfi­legu vinnu­brögð fela í sér alvar­legar bar­smíðar. Íslenskum hestum er alvar­lega mis­þyrmt. Hræddu hryss­urnar eru barðar með tré­prikum og bundnar í kassa. Hreinn hryll­ingur! Þetta verður að stöðva.“

Ef þú vilt sýna stuðn­ing þinn við áskorun til Evr­ópu­sam­bands­ins um að stöðva blóð­mer­aðn­að­inn þá getur þú gert það hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina