Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þráinn Bertelsson„Það er margt sem ég iðrast og margt sem ég hefði getað gert“

Þráinn Bertelsson„Það er margt sem ég iðrast og margt sem ég hefði getað gert“
Þráinn Ber­tels­son

Þráinn Ber­tels­son, þing­maður, rit­höf­undur og kvik­mynda­gerð­ar­maður varð 77 ára í gær 30. nóv­em­ber. Þráinn hefur á sínum ferli gert 7 kvik­myndir í fullri lengd, þar á meðal líf-þrí­leik­inn (Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf), verð­launa­mynd­ina Magnús, leik­stýrt einu ára­mótaskaupi (gert hand­rit við annað skaup) og skrifað bækur.

Þráinn sendi frá sér fal­lega kveðju til systur sinnar á facebook vegna tíma­mót­anna og segir: „enn ein lang­lokan frá öldruðum manni sem ætlar aldrei að láta sér skilj­ast að nútím­inn er að flýta sér og á að rúm­ast í færslu sem ekki á að vera lengri en þrjár línur…“

Einlæg kveðja Þráins:

„Elsku systir.

Takk fyrir afmælis­kveðj­una.

Það er leitt að heyra þetta með sjón­ina þína en ellin er hrörn­un­ar­sjúk­dómur og kallar yfir mann ýmis konar óþæg­indi. Þetta með heyrn­ar­tæki sem erfitt er að venj­ast kann­ast ég vel við. Ég hef tvisvar gert til­raunir til að fá mér heyrn­ar­tæki og fengið að prófa svo­leiðis græjur. Því miður þótti mér svo óþægi­legt að vera með þetta í eyr­unum að ég gafst upp á þessum tækjum. Mér fannst þau mest magna upp hljóð sem ég hef engan áhuga á að heyra, til dæmis umhverf­is­hljóð eins og fóta­tak.

Ég finn alveg að heyrnin hefur breyst mikið og ákveðin tíðni­svið á ég mjög erfitt með að greina, svo og hljóð sem koma úr hljóm­tækjum eins og útvarpi og sjón­varpi og sím­tækjum. En meðan ég skil ennþá mælt mál (nema hjá þeim sem liggur mjög lágt rómur) sé ég ekki ástæðu til að gera enn eina atrennu að því að fá mér heyrn­ar­tæki.

Og talandi um bíla þá er bíll­inn minn orð­inn gam­all skrjóður eins og ég, en mun­ur­inn er sá að það er til­tölu­lega ein­falt mál að gera við bíl­inn en það væri senni­lega ansi flókið að gera við mig. Þannig að ég reyni bara að gleðj­ast yfir því að vera ekki dauður ennþá og geta kannski verið Sólveigu minni til ein­hvers stuðn­ings.

Þótt það hafi gengið á ýmsu á ævinni er ég samt glaður og þakk­látur innst inni í mér fyrir að hafa fengið að taka þátt í því ótrú­lega ævin­týri sem lífið er. Það hefði senni­lega verið ennþá meira gaman ef ég hefði verið skyn­sam­ari og ef ég hefði getað látið eitt­hvað gott af mér leiða.

Það er margt sem ég iðr­ast og það er margt sem ég hefði getað gert en lét ógert. En ég hugga mig við að ég skuli þó ekki vera hættu­legur öðru fólki og reyni að sætta mig við orðna hluti.

Mig dreymir aldrei neitt lengur og dag­arnir eru hver öðrum líkir en þó eru engir tveir dagar eins.

Mér leið­ist sjaldan og aldrei mikið né lengi.

Ég vænti einskis og mér finnst ég vera frjáls­ari en ég hef nokkurn tím­ann áður verið á ævinni. Á sama tíma finn ég líka fyrir því að ég held ég sé orð­inn uppi­skroppa með ein­hvers konar innri glað­værð sem ég átti þegar ég var yngri og hjálp­aði mér við að kom­ast gegnum alls­konar erf­ið­leika sem ég hafði kallað yfir mig.

Svona er nú ástandið á mér og nú er víst kom­inn tími til að vekja vin minn sem sefur í búr­inu sínu og fara út að skoða gam­al­kunn­ugt umhvað nú er all­tíeinu orðið snjó­hvítt.

Takk fyrir afmælis­kveðj­una, elsku systir.

Farðu vel með þig og allar góðar vættir vaki yfir þér.“

Vinir og vanda­menn Þráins ósk­uðu honum til ham­ingju með dag­inn. Honum var þakkað fyrir fal­leg og heið­ar­lega skrifuð orð þar sem ávallt örlar fyrir gleði og sátt í skrifum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina