Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjáandinn Zoe – Fjárplógsstarfsemi falsmiðils

Sjáandinn Zoe – Fjárplógsstarfsemi falsmiðils
Sjá­and­inn Zoe Ann Thompson víl­aði ekki fyrir sér að féfletta við­skipta­vini sína.

Það er draumur margra að geta séð hvað fram­tíðin ber í skauti sér, hvernig dag­ur­inn verði og fá bót meina sinna. Þeir eru einnig ótelj­andi miðl­arnir – sjá­end­urnir – sem gefa sig út fyrir að geta bætt til­veru fólks, læknað það og, síð­ast en ekki síst, komið því í sam­band við gengna ást­vini eða æðri verur sem geti verndað fólk og fjöl­skyldur þess gegn áföllum af ýmsu tagi. Þá má ekki gleyma góðu ráðunum sem tryggja eiga ham­ingju og vel­gengni við­kom­andi.
Einn slíkur sjá­andi, Ann Thompson, var starf­andi í mið­borg New York-borgar. Ann, sem komin var á miðjan aldur þegar þessi saga hefst, hafði stundað sína klæki um margra ára skeið undir nafn­inu Psychic Zoe, sjá­and­inn Zoe. Hún aug­lýsti sig sem frægan miðil og veitti við­töl sem kost­uðu aðeins fimm banda­ríkja­dali.

Hæfileikar í hvíld

Hæfi­leikar Ann hljóta að hafa legið niðri að morgni mið­viku­dags­ins 9. maí, 2018, því það kom henni í opna skjöldu þegar lög­reglan bank­aði upp á hjá henni og hand­tók hana. Ákæran hljóð­aði upp á fjár­stuld, svindl og spá­mennsku.
Sem fyrr segir kost­aði við­tal við Ann ein­ungis fimm banda­ríkja­dali en Ann var séð, því hún sagði við­skipta­vinum – eða fórn­ar­lömbum – sínum að þeir þyrftu að stofna hjá henni sjóð „fyrir and­lega vernd­ar­á­ætlun til að tryggja fjöl­skyldum þeirra vernd“ eins og tals­maður lög­regl­unnar í New York-borg orð­aði það.

Sjá­and­inn Zoe Ann Thompson víl­aði ekki fyrir sér að féfletta við­skipta­vini sína.

„Hún full­viss­aði þá um að sjóð­ur­inn yrði end­ur­greiddur þegar vernd­ar­á­ætlun lægi fyrir,“ bætti tals­mað­ur­inn við.

Sálrænir kvillar

Á meðal fórn­ar­lamba Ann Thompson var tæp­lega fimm­tugur karl­maður ú Mið­vest­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna. Hann var með böggum hildar vegna ein­hvers sem plag­aði hann þegar hann fékk við­tal við Ann 15. des­em­ber, 2017.
Næstu viku fór mað­ur­inn reglu­lega til Ann í þeirri von að hann fengi lausn á sínum málum.
Ann hélt það nú. Hún sann­færði hann um að að hann „þjáð­ist af nokkrum and­legum kvillum sem hún gæti læknað“. Það myndi þó kosta karl­kvöl­ina, því ekk­ert í heimi hér er ókeypis, í það minnsta mjög fátt.

Hofið útvegar helminginn

Ann tal­aði karl­inn inn á að kaupa gull­myntir að verð­mæti 72.000 banda­ríkja­dala, sem hann síðan mundi „leggja á sér­stakan stað í hofi hennar, sem mundi lækna áru hans,“ sam­kvæmt því sem segir í dóm­skjölum vegna máls­ins.
Að sögn karls­ins sagði Ann Thompson að hann yrði að „útvega helm­ing gull­mynt­anna og hofið hennar væri til­leið­an­legt að útvega hinn helm­ing­inn“. Hann sagði enn fremur að Ann hefði „lofað“ að þegar heil­un­ar­að­gerð væri lokið, eða á öðrum tíma­punkti sem hent­aði honum fengi hann „ann­að­hvort gull­mynt­irnar eða fullt verð­gildi þeirra end­ur­greitt“.
Ann og græsku­lausi karl­inn und­ir­rit­uðu meira að segja samn­ing þess efnis.
Vart þarf að taka fram að sú varð ekki raunin þegar karl­inn, eftir að hafa borið málið undir eig­in­konu sína, fór fram á end­ur­greiðslu. Ann hafn­aði beiðn­inni og þar við sat.

Enginn nýgræðingur

Ann Thompson var eng­inn nýgræð­ingur á þessu sviði því hún hafði um fjög­urra ára skeið beitt kanadíska konu á fimm­tugs­aldri sömu brögðum. Sú kona hafði þó reitt af hendi ívið hærri upp­hæð en fyrr­nefndur karl, eða yfir 750.000 banda­ríkja­dali.
Sú kanadíska ákvað að leita til Ann Thompson vegna sam­bands­vanda­mála – því ekki? Viðtalið kost­aði aðeins fimm dali. Ann beið ekki boð­anna, skynj­aði enda að konan var með djúpa und í hjarta og mót­tæki­leg fyrir hverju því sem kynni að græða þá und. Í lok við­tals­ins, þann 14. febr­úar, 2013, stóð konan frammi fyrir öllu alvar­legri vanda­málum en hún hugði; að mati Ann var hún í „alvar­legri hættu“, hvorki meira né minna, sam­kvæmt dóm­skjölum.

Hofið … enn og aftur

Með Ann og þessu fórn­ar­lambi þró­að­ist ágætis sam­band, alla­vega hvað Ann snerti. Kanadíska konan þurfti, sam­kvæmt ráðum Ann, að kaupa gull­myntir og ýmis­legt fleira. Til að mynda þurfti hún að kaupa 9,2 karata dem­ants­hring, ann­ars mundi hann aldrei finna ást­ina á ný.

Aðsetur Ann Thompson Grun­lausir við­skipta­vinir greiddu aðeins 5 dali fyrir við­talið, en það var ekki allt.

Það sem konan keypti „yrði sett í her­bergi í hofi [Ann] sem mundi hjálpa til við að halda [fórn­ar­lamb­inu] hólpnu“.
Líkt og síðar hjá áður­nefndum karl­manni, full­viss­aði Ann kon­una um að strangt til tekið væri allt gullið og ger­semarnar hennar eign og að „hofið hagn­að­ist ekki neitt“.
Kanadíska konan hafði þurft að reiða fram háar fjár­hæðir fyrir töfra­þulur sem mundu sigra ára og auk þess sem hún þurfti að byggja „gull­inn píramída“ sem myndi koma í veg fyrir að hún og hennar nán­ustu dæju.

Einka­spæj­ari feng­inn í málið

Þegar upp var staðið hafði Ann tek­ist að svíkja, sem fyrr segir, um 750.000 banda­ríkja­dali út úr kon­unni, sem sá þó hlut­ina í réttu sam­hengi að lokum. Áður nefndur karl­maður og kanadíska konan, sem hafa aldrei verið nafn­greind, réðu sama einka­spæj­ar­ann, Bob Nygaard, en hann hefur sér­hæft sig í málum sem varða falsmiðla.
Að sögn Nygaards hélt Ann því fram að „hún hefði þurft að nýta féð og hina ýmsu muni til helgi­siða­halds til að sigr­ast á illum öndum, árum og bölvun sem plög­uðu fórn­ar­lömbin og hina ýmsu fjöl­skyldu­með­limi þeirra“.

Vægur dómur

Þess ber að geta að Ann Thompson, „Psychic Zoe“, var ekki ein að verki, því hún hafði sér til aðstoðar und­ir­sáta, Söruh Demetrio.
Upp úr miðjum júní, 2021, féll dómur í máli gegn þeim stall­systrum. Óhætt er að segja að þær hafi sloppið vel. Reyndar var Ann Thompson á bak við lás og slá í átta mán­uði á meðan hún beið þess að málið færi fyrir dóm­stól, en það má til sanns vegar færa að hún hafi haft góðar „tekjur“ á þeim tíma í ljósi þeirrar refs­ingar sem hún var dæmd til þegar upp var staðið.Ann var dæmd til að end­ur­greiða kanadísku kon­unni 200.000 banda­ríkja­dali af þeim 750.000 sem hún hafði svikið út úr henni. Refs­ingin byggð­ist á sam­komu­lagi sem Ann gerði við sak­sókn­ara og má segja á fórn­ar­lömb hennar hafi borið skarðan hlut frá borði.
Þegar Ann ját­aði sig seka sagði hún meðal ann­ars: „Ég hef í raun ekki mið­ils­gáfu af nokkru tagi.“ Hún bætti við að and­legir kvillar fórn­ar­lambanna og helgisið­irnir til að vinna bug á þeim hefðu einnig verið skáld­skapur einn.
Það er þó ótrú­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina