Sigurður Björn Blöndal er afmælisbarn dagsins og óskum við honum til hamingju með daginn.
Sigurður Björn fæddist í Reykjavík þann 8. desember 1969 en ólst upp á Hallormsstað í Skógum til átta ára aldurs. Þá fluttist hann til Hafnarfjarðar.
Sigurði er margt til lista lagt og hefur hann unnið hin ýmsu störf í gegnum tíðina. Hefur hann starfað við blaðamennsku, sölumennsku og einnig gegnt stöðu markaðsstjóra.
Sigurður hefur verið borgarfulltrúi fyrir Bjarta framtíð.
Sigurður hefur starfað sem tónlistarmaður með hléum frá árinu 1988, lengst af sem bassaleikari hljómsveitarinnar HAM (1988-1994 og aftur 2001). Einnig hefur hann verið sólógítarleikari hljómsveitarinnar RASS frá árinu 2000. Sigurður hefur einnig unnið að kvikmyndagerð með hléum frá árinu 1991.
Árið 2018 ákvað Sigurður Björn að gefa ekki kost á sér til borgarstjórnarkosninga það árið. Hann útilokaði þó ekki endurkomu í viðtali við RÚV.
„Ég er ekki að lofa því að ég sé farinn að eilífu. Af því að kannski kem ég aftur einhvern tímann ef þið sem eftir sitjið ætlið að fara að klúðra einhverja þá verð ég bara að segja eins og Arnold Schwarzenegger: I‘ll be back.“
Til hamingju með daginn!































Athugasemdir