Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Góð vika/slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika

Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra.

Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver stór­kost­leg­asta nátt­úra sem Ísland hefur upp á að bjóða,“ skrif­aði Tómas Guð­bjarts­son, hjarta­læknir og nátt­úru­vernd­ar­sinni. Tómas bætti svo við að honum þætti skrítið að full­trúi Árnes­hrepps hefði sett sig á móti frið­lýs­ing­unni. „Það er síðan grát­legt að full­trúi sveit­ar­fé­lags­ins hafi einn verið mót­fall­inn frið­lýs­ing­unni en enn hall­æris­legra hvernig Mið­flokks­menn reyna nú að að gera frið­lýs­ing­una tor­tryggi­lega. Er verið að veiða atkvæði eða halda menn á þeim fámenna bæ í alvöru að Hval­ár­virkjun verði að veru­leika? Rann­sókn­ar­leyfi Vest­ur­verks var ekki einu sinni end­ur­nýjað sl. vor og því útrunnið. Sem eru frá­bærar fréttir fyrir nátt­úru Stranda og von­andi allra síð­asti naglinn í lík­istu Hval­ár­virkj­unar.“

Elías Svavar Krist­ins­son, einn af eig­endum Dranga og einn helsti bar­áttu­mað­ur­inn gegn Hval­ár­virkjun og eyði­legg­ing­unni sem myndi fylgja ef þau áform gengju eftir, er einnig him­in­lif­andi yfir frið­lýs­ing­unni. „Ég er alsæll með frið­un­ina. Stórfurðu­legt að Sam­fylk­ingin tekur undir með Bergþóri Ólasyni, af öllum mönnum. Við eig­endur Dranga vorum nán­ast á einu máli um að friða landið. Þeir ætl­uðu sér að ná í vatnið okkar til að stækka virkj­un­ina. Vest­ur­verk hafði óskað eftir við­ræðum en við svöruðum ekki þessu rugli. Drangar verða aldrei settir undir gróða­punga.“

Slæm vika

MAST átti frekar slæma viku en fjöl­margir hafa gagn­rýnt stofn­un­ina fyrir hennar þátt í Blóð­mera­mál­inu. Finnst mörgum sem MAST hafi ekki staðið sig í stykk­inu við eft­ir­lit þegar kemur að vel­ferð blóð­mer­anna.

Ole Anton Bielt­vedt, for­maður Jarð­ar­vina, félaga­sam­taka um dýra-, nátt­úru- og umhverf­is­vernd, skrif­aði opið bréf til for­stjóra MAST, Hrannar Ólínu Jör­und­ar­dóttur, vegna blóð­mera­halds­ins. Hér er brot úr því:

„Þar sagðir þú meðal ann­ars, að það væri mat ykkar, að hægt væri að fram­kvæma blóð­töku af fyl­fullum merum – reka blóð­mera­hald – án þess, að ógna vel­ferð dýr­anna. Þetta mat vekur furðu mína,“ skrifar Ole og vitnar næst í blaða­grein eftir sjálfan sig sem birt­ist á Vísi þann 26. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

„… verður vart séð, hvernig hægt er með góðu, að koma ótömdum, hálf­villtum hryssum, sem búið er að rífa fol­aldið frá, inn í þröngan blóð­töku­bás, þar sem hryssan er njörvuð niður og höfuð strengt upp með reipum – staða dýrs­ins negld – til að hægt sé að opna slagæð á hálsi og tappa þar af blóði í 15 langar mín­útur!!“

Þá neita dýra­vernd­un­ar­sam­tökin sem standa á bak við heim­ilda­mynd­ina um blóð­mer­a­iðn­að­inn á Íslandi að senda MAST óklippt myndefni líkt og MAST hefur beðið um. Telja sam­tökin MAST vera part af vanda­mál­inu. Mannlíf birti opið bréf sam­tak­anna til MAST og hér er nið­ur­lag bréfs­ins:

„Það er ekki í okkar hags­munum, sem dýra­vernd­un­ar­sam­tök, að ásaka ein­stak­linga heldur kerfið sem skapar störfin sem stuðla að slíkri grimmd. Til að tryggja per­sónu­leg rétt­indi ein­stak­ling­anna sem sjást í heim­ilda­mynd­inni án þess þó að vera auð­kennd, munum við ekki afhenda MAST nokk­urt myndefni. Ef að rík­is­sak­sókn­ar­inn mun hefja rann­sókn á mál­inu erum við til­búin að vinna með honum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina