Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigríður Dögg: „Þykjast vera fjölmiðill þegar þú ert bara bloggsíða“

Margrét Frið­riks­dóttir, rit­stjóri síð­unnar Fréttin.is, hefur fengið mið­il­inn skráðan sem fjöl­miðil hjá Fjöl­miðla­nefnd. Hún sagði frá þessu í sam­tali við Stundina. Margrét segir aðra fjöl­miðla stunda „mark­vissa þöggun á ákveðnum fréttum“ og þess vegna hafi hún stofnað mið­il­inn.

Stundin tal­aði við Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, for­mann Blaða­manna­fé­lags Íslands og sagði hún mið­ill­inn vera blogg­síðu sem vill láta líta á sig sem fjöl­miðil og að mið­ill­inn setji fram fréttir í ákveðnum til­gangi og starfi því ekki sam­kvæmt grund­vall­ar­reglum blaða­mennsku.

Í við­tali við Morg­un­blaðið í fyrra kynnti Margrét nýjan fjöl­miðil og sagði fjár­sterka aðila vera að baki honum sem tengd­ust bæði Mið­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum. Hún segir þá að þeir aðilar sem voru að baki miðl­inum hafi hætt við vegna hót­ana. Aldrei hefur þó komið fram hverjir fjár­fest­arnir væru, né hver væri að hóta þeim. „Það var skemmt fyrir okkur vegna þess að það var haft áhrif á fjár­fest­ana með hót­unum. Við vorum komin með hús­næði í Nóatúni og það var haft áhrif á eig­and­ann og hann lét allt í einu hækka leig­una um 50 pró­sent. Þannig að það svo­lítið féll um sig sjálft út af ein­hverjum hræ­gömmum þarna úti.“

Margrét segir mið­il­inn vera á byrj­un­ar­reit í leit að fjár­festum, hún ætli að halda úti söfnun á Karolina Fund eða sækja styrki á annan hátt. Hún segir tölu­vert marga hafa haft sam­band við sig og vilji styrkja mið­il­inn. Aðeins eru tveir starfs­menn á miðl­inum en það er Margrét og Þórdís B. Sig­ur­þórs­dóttir, skráð sem blaða­maður og próf­arka­les­ari. Að sögn Mar­grétar eru þær báðar sjálf­boða­liðar.

Hún segir að nú þegar séu bæði einka­að­ilar og fyr­ir­tæki farin að sýna því áhuga að aug­lýsa á miðl­inum. „En af því að við erum ekki með banka­reikn­ing þá getum við ekki inn­heimt kostn­að­inn.“ Mið­ill­inn er, eins og staðan er núna, að gefa aug­lýs­inga­pláss.

Margrét segir aðra fjöl­miðla stunda þöggun. „Nær­tæk­asta dæmið eru þessi svaka­legu mót­mæli sem voru í Aust­ur­ríki bara núna um helg­ina. Þetta eru mestu mót­mæli sem hafa nokkurn tíma verið í Aust­ur­ríki og þetta jaðrar bara við borg­ara­styrj­öld. Það jaðrar við borg­ara­styrj­öld í Evrópu út af þessum sótt­varn­ar­lögum og -reglum sem verið er að setja og það er allt að verða vit­laust og við vorum eini mið­ill­inn sem fjall­aði um þetta. Það kom ekki fyrr en dag­inn eftir í mýflugu­mynd á Vísi en RÚV kom ekki með þetta eða Mbl. Fólk sér alveg hvað er í gangi. Við búum ekki í búbblu hérna á Íslandi þar sem fólk getur ekki aflað sér upp­lýs­inga ann­ars staðar en hér á Íslandi. Við búum á tækniöld þar sem er mjög auð­velt að finna upp­lýs­ingar, svo það er mjög sér­stakt að íslenskir fjöl­miðlar skuli leyfa sér þessa þöggun sem er við­höfð hér. Sem er svo aug­ljós og fólki ofbýður. Það er nú ástæðan fyrir því að ég stofn­aði Fréttin.is. Við erum að opna umræð­una og við erum að fjalla um fréttir sem er mark­visst verið að þagga niður. Svo erum við líka á móti póli­tískum rétt­trún­aði sem flestir fjöl­miðlar á Íslandi eru sýktir af.“

Margrét segir þjóð­ina vera hætta að fylgj­ast með íslenskum miðlum:

„Fjöl­miðlar í dag eru mjög hlut­drægir á margan hátt, það er aug­ljóst. Það eru rosa­lega margir sem sjá það. Þess vegna er fólk komið með nóg af íslenskum fjöl­miðlum og margir sem ég veit um sem eru hættir að horfa á fréttir og lesa bara erlendar fréttir nema bara á Fréttin.is, þau þakka okkur fyrir því þetta er eini mið­ill­inn sem þau geta lesið.“

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins segir mið­il­inn spila inn á getu­leysi margra til að greina í sundur hvað er áróður og hvað er frétt

„Það er eitt af stóru mál­unum í sam­fé­lagi nútím­ans og í sam­fé­lag­inu til næstu ára, bæði hér á landi og ann­ars staðar í heim­inum, að reyna að skýra þennan mun betur í huga fólks. Það skiptir svo miklu máli að fólk skilji hvaða upp­lýs­ingar eru áreið­an­legar og hvaða upp­lýs­ingar eru það ekki.“

„Eins og þarna, þetta er blogg­síða þar sem ein­hver er að koma áróðri á fram­færi, að það sé ekki gert með því að villa á sér heim­ildir, að þykj­ast vera fjöl­mið­ill þegar þú ert bara blogg­síða og það er bara ábyrgð­ar­hluti.“

Sigríður segir Viljann vera annan miðil sem hún skil­greini sem blogg­síðu, Viljinn er skráður sem fjöl­mið­ill hjá fjöl­miðla­nefnd.

„Við höfum séð þetta á síð­ast­liðnum 18 mán­uðum að Björn Ingi titlar sig sem blaða­mann á Viljanum en hann er ekk­ert annað en blogg­ari á sinni eigin blogg­síðu. Hann hefur ekki verið að auka skiln­ing fólks á því hvað felst í því að vera blaða­maður. Ég er ekki þar með að segja að hann ástundi óheið­ar­leg vinnu­brögð. Ég er að halda því fram að mið­ill­inn hans geti ekki talist áreið­an­legur frétta­mið­ill sem vinnur sam­kvæmt skil­grein­ingum rit­stjórnar og þeim vinnu­brögðum sem þar eru við­höfð því þetta er bara einn maður sem heldur úti blogg­síðu, það getur aldrei verið rit­stjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina