Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ingvar leikari: „Hann vildi ekki tala við mig og vildi ekki heilsa mér”

Ingvar leikari: „Hann vildi ekki tala við mig og vildi ekki heilsa mér”
Mynd. Skjáskot/RÚV

Loka­þáttur þriðju þáttar­aðar Succession var sýndur á sunnu­dags­kvöld. Þætt­irnir eru af mörgum taldir þeir bestu í sjón­varpi um þessar mundir og jafn­vel síð­ustu ára­tuga. Þetta er kolsvört tragikó­medía, sem hægt er að líkja við harm­leiki Shakespe­are jafnt sem sápu­óp­er­una Dynasty og gam­an­þætt­ina Arrested Develop­ment.

Kristján Guð­jóns­son ræddi við Ingvar E. Sig­urðs­son í Lestinni á Rás 1.

Ingvar E. Sig­urðs­son kynnt­ist aðferða­fræði Jeremy Strong, leik­ara sem fer með eitt aðal­hlut­verka í HBO-þátta­röð­inni Succession, þegar hann lék íslenskan almanna­tengil í þátt­unum. Strong, sem sökkvir sér í hlut­verkin sem hann tekur að sér, hefur verið á milli tann­anna á fólki fyrir að lifa sig um of inn í hlut­verk per­són­unnar Kendall Roy.

Hér verður ekk­ert gefið upp um helstu vend­ingar í loka­þætt­inum en í aðdrag­anda hans vakti nær­mynd af einum aðal­leik­ar­anna, Jeremy Strong, í New Yorker nokkra athygli. Í grein­inni er sagt frá aðferða­fræði leik­ar­ans sem sækir í brunn met­hod-leik­ara eins og Daniel Day-Lewis og Dustin Hoffman og lifir bók­staf­lega hlut­verkið á meðan tökum stendur, sam­leik­urum ekki alltaf til ómældrar ánægju.

Í grein­inni segir að Strong, sem fer með hlut­verk Kendall Roy, sonar valda­mik­ils fjöl­miðla­jöf­urs, neiti oft að æfa fyrir atriði, þrátt fyrir óskir með­leik­ara hans um annað. Þar er haft eftir honum að hann vilji að hvert ein­asta atriði sé eins og hann rek­ist óvænt á björn í skógi.

Áður en blaða­mað­ur­inn tók við­töl við sam­leik­ara hans var­aði Strong hann við, hann sagð­ist efast um hversu vin­sælar aðferðir hans væru á meðal þeirra. Kieran Culkin, sem leikur yngri bróður Kendalls, fór fínt í hlut­ina.

„Það er erfitt að lýsa ferl­inu hans, því ég sé það í raun aldrei. Hann lokar sig af.”

Skemmtileg áskorun að mæta leikaranum

Í það minnsta einn Íslend­ingur hefur leikið á móti  Jeremy Strong. Það er Ingvar E. Sig­urðs­son sem lék í fyrsta þætti ann­arrar seríu Succession og var tek­inn upp hér á landi, meðal ann­ars í Útvarps­hús­inu.

Ingvar lék Ragnar Magn­ús­son almanna­tengil sem vinnur fyrir fjöl­miðla­kóng­inn Logan Roy. Hann sækir og ræðir við Kendall sem er í end­ur­hæf­ingu á Íslandi og fær hann til að mæta í sjón­varps­við­tal til að bjarga eign­ar­haldi föð­ur­ins á fjöl­miðla­fyr­ir­tæki fjöl­skyld­unnar. Ingvar seg­ist ekki hafa þekkt leik­ar­ann þangað til að hann fór að und­ir­búa sig fyrir hlut­verkið.

„Ég hlakk­aði til að leika á móti honum. Það var síðan ánægju­legt og mjög sér­stakt að leika á móti honum. Ég sá hann ekk­ert fyrr en við hitt­umst í fyrstu sen­unni,“ segir Ingvar í við­tali í Lestinni á Rás 1.

„Ég ætl­aði nátt­úru­lega að heilsa honum og kynn­ast honum aðeins, eins og við leik­arar gerum yfir­leitt, við mátum okkur við hvert annað og förum kannski yfir lín­urnar og tölum aðeins saman. En hann vildi ekki tala við mig og vildi ekki heilsa mér. Þannig að fyrstu kynni okkar eru í karakter.“

Og þannig gekk vinnan fyrir sig þá tvo daga sem Ingvar var í tökum á þætt­inum.

„Hann tal­aði aldrei við mig nema í karakter. Ekkert utan eða milli sena. Mér fannst þetta í raun­inni bara skemmti­legt. Ef ég væri ungur og óreyndur þá hefði þetta kannski komið mér út af lag­inu vegna þess að hann var með alls konar stæla líka. En mér fannst þetta skemmti­leg áskorun. Meira að segja leik­stjór­inn kom til mín og afsak­aði hann, hann væri svo­lítið „met­hody“. Ég sagð­ist bara virða það og hans aðferð.“

Ein­hverjir gætu upp­lifað það hvernig Jeremy Strong kemur fram við sam­starfs­fólk sitt sem hroka eða dóna­skap og seg­ist Ingvar skilja það vel.

„En hann hugsar þetta bara sem sína aðferð og svo var hann hinn ljúfasti þegar við vorum búnir, hann þakk­aði mér mikið fyrir og ég honum.“

Hann vonar að met­hod-leik­ur­inn svo­kall­aði sé á und­an­haldi, þó afrakst­ur­inn geti verið skemmti­legur.

„Menn eru kannski að búa til goð­sögn um sjálfan sig, að fórn­ar­kostn­að­ur­inn hafi verið svo gíf­ur­legur. Eins og Daniel Day-Lewis sem þakk­aði kon­unni sinni fyrir að þola alla karakt­er­ana sem hann hefur leikið þegar hann tók við Óskarnum. Mér fannst það ekk­ert sér­stakt. Það er erfitt að leika í bíó­mynd og það er alltaf fórn. Allir sem búa til bíó­mynd eða þætti leggja ýmis­legt á sig. En þú þarft ekki að láta það bitna á kon­unni, einka­líf­inu eða sam­starfs­fé­lögum þínum. Það finnst mér svo­lítið skrýtið. Við erum að gera þetta saman.“

Hægt er að hlusta á þátt rásar 1 hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina