Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnar Kjartansson – Langstærsta myndlistarverk Íslandssögunnar í Moskvu

Ragnar Kjartansson – Langstærsta myndlistarverk Íslandssögunnar í Moskvu
Ragnar Kjart­ans­son, lista­maður. Mynd.Skjáskot/RÚV Mynd: RÚV

Á fyrstu dögum des­em­ber­mán­aðar var opnuð í Moskvu ný og glæsi­leg menn­ing­ar­mið­stöð sem heitir GES-2 og er gríð­ar­stór rúss­nesk lista­sam­stæða þar sem ríf­lega ald­ar­gömlu orku­veri, sem áður knúði stjórn­ar­setrið Kreml, hefur verið umbreytt í stærð­ar­innar menn­ing­ar­mið­stöð af arki­tekt­inum Renzo Piano.

Það var mynd­list­ar­mað­ur­inn Ragnar Kjart­ans­son sem fékk það hlut­verk að opna þessa nýju menn­ing­ar­miðju í heims­borg­inni. Hann stýrir þar ásamt eig­in­konu sinni Ingi­björgu Sig­ur­jóns­dóttur stórri sam­sýn­ingu sem ber nafn við hæfi, Til Moskvu, til Moskvu, til Moskvu en stærsta verkið á sýn­ing­unni heitir Santa Barbara og er end­ur­gerð á frægri sápu­óp­eru.

Auk þess að inni­halda langstærsta mynd­list­ar­verk Íslands­sög­unnar gefur sýn­ingin í Moskvu gott yfir­lit yfir helstu verk Ragnars. Þar að auki hafa þau Ingi­björg valið með sér marga þá lista­menn sem Ragnar hefur átt í hvað mestu list­rænu sam­tali við í gegnum tíð­ina. Vinnan við að setja saman slíka sýn­ingu hefur verið löng og ströng.

„Þetta eru bara svo ólík stig sköp­unar, það er þegar hug­myndin kemur og Raggi hefur gert grín að því sjálfur að hug­mynd­irnar sem hann fær að verkum fæð­ast yfir­leitt full­til­búnar. Það er nokkuð ljóst þegar hug­myndin er komin hvernig verkið á að vera,“ segir Ingi­björg.

„Svo tekur við gríð­ar­lega flókið ferli sem tekur marga mán­uði, jafn­vel ár í að fram­kvæma þessa litlu hug­mynd sem fædd­ist full­mótuð.“

Þægilegt að vera saman í sama fagi

Ragnar segir að í sköp­un­ar­ferl­inu hjálpi Ingi­björg sér gjarnan að átta sig á því sjálfur hvað hann er að hugsa.

„Samtalið á milli okkar er bara eitt­hvað rosa­lega skemmti­legt. Við erum oft upp­numin yfir lista­verkum,“ segir hann í sam­tali við Menn­ing­una á RÚV. „Erum í uppnumdu ástandi að tala um kunst.“

Ingi­björg tekur undir og segir þægi­legt að vera saman í sama fagi og með svip­aða sýn á hlut­ina.

„Þá getum við notað hvort annað til að ydda aðeins það sem maður er sjálfur að hugsa. Svo er ákveð­inn lúxus að hafa ein­hvern sem er inni í öllu sem maður gerir og hefur gert, þá er þetta eins og maður sé með uta­n­áliggj­andi heila­drif sem hægt er að keyra hluti í gegnum þegar allt vinnslu­minni er fullt hjá manni sjálfum,“ segir hún.

Full vinna að taka upp sápuóperu á listasafni

Aðalverk Ragnars í Moskvu er íburð­ar­mikið, en á hverjum degi gengur hann frá heilum þætti af sjón­varps­þátta­röð­inni með sjö­tíu manna teymi tækni­fólks og leik­ara. Verk­efnið mun halda áfram fram á vor og er allt verkið tekið upp á rúss­nesku.

„Ég er búinn að koma mér í tóma vit­leysu,“ segir Ragnar um upp­á­tækið.

Það að taka upp sápu­óp­eru í safni sem þessu er enda full vinna. Sam­starfs­kona Ragnars í þessu stóra verk­efni er kvik­mynda­leik­stjór­inn Ása Helga Hjör­leifs­dóttir. Hún segir að það hafi eng­inn áður gert nákvæm­lega svona verk.

„Ég myndi segja að und­ir­bún­ing­ur­inn hafi verið mik­il­vægur og ég reyni að stýra þeim í þá átt sem búið var að ákveða, en þegar það kemur eitt­hvað nýtt er það líka spenn­andi,“ segir hún.

Sápuópera frá níunda og tíunda áratug 20. aldar

Santa Barbara er sápu­ópera frá níunda og tíunda ára­tug 20. aldar. Safn­stjór­inn Teresa Mavica á minn­ingar frá þessum tíma.

„Þetta var ótrú­lega kaó­tískur tími og ég hafði á til­finn­ing­unni að allt væri að hrynja,“ segir hún.

„Þremur árum síðar, árið 1992, lenti Santa Barbara inni á heim­ilum Moskvu­búa. Það kom mér sem Evr­ópu­búa spánskt fyrir sjónir að horfa út að degi til og sjá heim­inn breyt­ast á ógn­ar­hraða. Á kvöldin sat fólk heima og horfði á tor­kenni­legar per­sónur frá Kali­forníu, vel klæddar, sem ræddu mál sem skiptu engu máli í þessu sam­hengi. Þetta var gjör­sam­lega aftengt raun­veru­leik­anum.“

Hægt er að hlusta á frétt­ina heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina