Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenska ríkið bótaskylt vegna háttsemi dómara í þotumáli WOW

Íslenska ríkið bótaskylt vegna háttsemi dómara í þotumáli WOW

Íslenska ríkið og flug­véla­leigan ALC voru í gær dæmd til að greiða Isavia rúma 2,5 millj­arða króna vegna „sak­næmrar hátt­semi“ hér­aðs­dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­ness í tengslum við deilu um kyrr­setn­ingu Isavia á Airbus-þotu gegn skuldum flug­fé­lags­ins WOW air. Málinu verður lík­lega áfrýjað til Lands­réttar og kemur að öllum lík­indum til kasta Hæsta­réttar.

Isavia kyrr­setti vél­ina og neit­aði að láta hana af hendi nema ALC greiddi allar skuldir WOW, um tvo millj­arða króna.

ALC taldi sig ekki vera í ábyrgð fyrir öllum skuldum WOW og krafð­ist þess að fá þot­una afhenta. Deilan fór fyrir hér­aðs­dóm, Lands­rétt og Hæsta­rétt en í júlí fyrir tveimur árum komst dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­ness að þeirri nið­ur­stöðu að ALC ætti að fá þot­una afhenta eftir að hafa greitt allar skuldir sem hvíldu á vél­inni sjálfri. Hann taldi jafn­framt enga ástæðu til að fresta rétt­ar­á­hrifum úrskurð­ar­ins og var þot­unni því flogið úr landi.

Isavia taldi að með þessu hefði dóm­ar­inn svipt félagið trygg­ingu fyrir tveggja millj­arða skuld og höfð­aði því skaða­bóta­mál á hendur íslenska rík­inu og flug­véla­leig­unni ALC.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu síð­degis í gær að dóm­ur­inn hjá dóm­ar­anum við Hér­aðs­dóm Reykja­ness hefði verið rangur. Hann hefði meðal ann­ars litið fram hjá rök­stuðn­ingi í úrskurði Lands­réttar í sama máli og haldið sig við túlkun á ákvæði sem „fór í ber­högg við túlkun Lands­réttar.“

Hér­aðs­dómur segir að þá hátt­semi verði að meta dóm­ar­anum til sakar. Hann hafi kom­ist að rangri nið­ur­stöðu með sak­næmum hætti og  sýnt af sér sak­næma hátt­semi þegar hann féllst ekki á kröfu um að mál­skot myndi fresta aðfar­ar­gerð á grund­velli úrskurð­ar­ins.

Dómurinn telur að Isavia hafi með þessu orðið fyrir tjóni sem íslenska ríkið og ALC beri ábyrgð á. Voru íslenska ríkið og ALC því dæmd til að greiða Isavia um 2,5 millj­arða. Allur máls­kostn­aður, 15 millj­ónir, þarf að greið­ast úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina