Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ungur maður í hefndarhug: – Meintur barnaníðingur myrtur með haglabyssu í Hafnarfirði

Ungur maður í hefndarhug: – Meintur barnaníðingur myrtur með haglabyssu í Hafnarfirði

Um klukkan 10.30, sunnu­dag­inn 29. des­em­ber, 1996, bar til tíð­inda að lík fannst við Krýsu­vík­ur­veg, rétt utan Reykja­nes­brautar. Var þar um að ræða Hlöðver S. Aðal­steins­son, 55 ára gamlan Hafn­firð­ing.

Það var deg­inum ljós­ara að dauða Hlöðvers hafði ekki borið að með eðli­legum hætti því á lík­inu voru sár eftir hagla­skot auk þess sem á því voru aðrir áverkar. Höglin höfðu tætt margar æðar svo mikið hafði blætt úr Hlöðver. Ýmislegt benti til þess að líkið hefði verið flutt á stað­inn og komið fyrir skammt frá veg­ar­kant­inum.

Eft­ir­grennslan lög­reglu leiddi í ljós að Hlöðver, sem var ein­hleypur og búsettur við Álfa­skeið í Hafn­ar­firði, hafði farið að heiman um miðja nótt og lítið vitað um ferðir hans þaðan í frá þar til hann fannst lát­inn.

Þessar upp­lýs­ingar gaf bróðir Hlöðvers, Árni, en þeir bjuggu í sama húsi. Að sögn Árna var það ekki óvenju­legt, Hlöðver hafi farið að heima á svip­uðum tíma sól­ar­hrings­ins nokkrar síð­ustu helgar. Bifreið Hlöðvers fannst síðar þennan sunnu­dag á Herj­ólfs­götu í Hafn­ar­firði.

Þannig var mál með vexti að Hlöðver hafði verið sak­aður um kyn­ferð­is­of­beldi gegn ungum drengjum og því orðið frétta­matur. Nafn hans hafði verið birt í blöðum ásamt myndum af heim­ili hans. Af þeim sökum hafði hann sætt áreitni af ýmsu tagi og meðal ann­ars oft og tíðum hringt í hann að næt­ur­lagi. Því var ekki talið ólík­legt að ein­hver sem taldi sig eiga harma að hefna hefði ráðið hann af dögum.

Sam­dæg­urs var ungur maður hand­tek­inn í tengslum við rann­sókn­ina. Þannig var mál með vexti að Hlöðver var með sím­núm­era­birti og fékkst stað­fest að hringt hefði verið í hann af heim­ili þess unga manns um nótt­ina. Að auki fannst bréfsnep­ill á heim­ili Hlöðvers með nafni við­kom­andi og síma­núm­eri.

Ungi mað­ur­inn ját­aði hann á sig verkn­að­inn og að hans sögn hafði hann hringt í Hlöðver á sunnu­dags­kvöld­inu og um nótt­ina og farið þess á leit að Hlöðver sækti hann.

Sagðist hann hafa verið drukk­inn og haft hagla­byssu í fórum sínum þegar Hlöðver tók hann upp í bíl­inn. Þeir hafi síðan ekið sem leið lá út á Krýsu­vík­ur­veg.

Þar hafi hann boðið Hlöðver birg­inn og talað um kyn­ferð­is­legt ofbeldi sem hann hafði sætt af hálfu Hlöðvers tíu árum fyrr. Sagðist hann hafa reiðst þegar Hlöðver gerði lítið úr ofbeld­inu og þeir hafi báðir farið út úr bif­reið­inni meðan á sam­tal­inu stóð.

Ungi mað­ur­inn sagð­ist hafa beint hagla­byss­unni að Hlöðver en hug­myndin hafi verið að skjóta að honum en ekki á hann, svona til að ógna honum eða hræða hann. Hann hefði aldrei ætlað sér að bana honum.

En Hlöðver sneri sér um leið og skotið reið af með þeim afleið­ingum að höglin lentu í upp­hand­legg hans. Hlöðver tók þá til fót­anna, en bana­maður hans sagð­ist hafa tekið bíl hans trausta­taki, ekið í Hafn­ar­fjörð og skilið hann þar eftir.

Umræddur ungi maður fékk tíu ára dóm og var tekið til­lit til for­sögu hans og Hlöðvers. Enn fremur þótti sýnt að hann hefði ekki verið í and­legu jafn­vægi þegar hann hleypti af hagla­byss­unni.

Þess ber að geta að þrátt fyrir að Hlöðver hefði verið ásak­aður og kærður fyrir mis­notkun á ungum drengjum hafði aldrei neitt alvar­legt sann­ast á hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina