Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðrún Bergmann vill vara okkur við: „New World Order vill búa til foreldralaust samfélag“

Guðrún Bergmann vill vara okkur við: „New World Order vill búa til foreldralaust samfélag“

Guðrún Bergmann, rit­höf­undur, heilsu- og lífstíls­ráð­gjafi segir bólu­setn­ingar gegn Covid-19 part af sam­særi skugga­yf­ir­valda um að breyta DNA hjá mann­kyn­inu. Tak­markið sé að búa til for­eldra­laust sam­fé­lag.

Guðrún hélt þessu fram í nýjasta við­tali bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætti þeirra Þvotta­húsið, sem er bæði á YouTube og mbl.is.

Guðrún hefur í rúm 30 ár verið ötull tals­maður þess að velja nátt­úru­legar leiðir til betri heilsu og bættra lífs­gæða. Hún hefur haldið ótal nám­skeið og verið afkasta­mik­ill rit­höf­undur á sviði heilsu, sálar og lík­ama.

Guðrún Bergmann

Þegar Wiium-bræður spurðu hana út í ástæðu þess að hún vilji vara fólk við bólu­setn­ingum en hún hefur verið nokkuð áber­andi síð­ustu tvö árin í umræð­unni um veiruna og mögu­legar aðgerðir gegn henni, segir Guðrún ástæð­una vera innri rétt­læt­is­kennd.

„Innri rétt­læt­is­kennd og innri sann­fær­ing og ég er eins og ég er, fólk segir, af hverju getur þú ekki bara hætt og gert svona eða hinsegin? En þetta er ég, ég þarf að ýta við fólki og vara það við,“ segir Guðrún og bætir svo við. „Þetta er bara mín innri sann­fær­ing að þetta væri efni sem ég þyrti að vara við og að þetta væri ekki eins og það liti út við fyrstu sín.“

Vegna þess­arar rétt­læt­is­kenndar seg­ist hún finna sig knúna að berj­ast á móti spill­ingu og því sem hún kallar glæpi gegn mann­kyni. Guðrún er með heima­síð­una

gudrun­berg­mann.is

þar sem hún meðal ann­ars birtir greinar þar sem hún lætur í ljós skoð­anir sínar og kenn­ingar um upp­runa kór­óna­veirunnar og fleira í þeim dúr. Vill hún meina að veiran sé tví­mæla­laust mann­gerð og í raun efna­vopn en ekki eitt­hvað smitslys úr leð­ur­blöku í mann. Þá hefur hún einnig gagn­rýnt mjög bólu­efnin gegn veirunni, sem hún kallar til­rauna­lyf.Um upp­runa veirunnar segir Guðrún í við­tal­inu, að það sé athygl­is­vert að skoða hann betur.

„Það er líka athygl­is­vert að veiran kemur upp í Wuhan og svo kemur hún upp í Ítalíu og svo í Seattle í Banda­ríkj­unum. Halló! Hvernig flaug hún á milli, hver dreifði henni? Yfir­leitt er það farlds­fræði­legt eftir landi sem smit­ast yfir í næsta land.“

Guðrún heldur áfram og talar um þær myndir sem hafa verið gerðar af veirunni.

„Myndir af veirunni eru rosa flottar, rauðar, bláar, grænar og alla­vega lit­aðar en þetta eru bara tölvu­myndir.” Segir Guðrún sem heldur því fram að veiran sem slík hafi aldrei verið ein­angruð eða séð.“

Hvað varðar bólu­efnin talar hún um þá gríð­ar­legu hættu sem hún telur að fylgi þeim og í því sam­hengi nefnir hún allar þær auka­verk­anir sem vitað er að þau geta valdið og hafa leitt til við­var­andi skaða og í mörgum til­vikum til dauða.Einnig talar hún að þegar mRNA bólu­efnum er sprautað í fólk þá rjúfi það einn hlekk í DNA-inu og geri umbreyt­ingu á því, sem leiði til erfða­breyt­ingar. Hún vill meina að hlekk­ur­inn sem sé rof­inn hafi með umburð­ar­lyndi og sam­kennd að gera sem svo gerir það að verkum að aðskiln­að­ar­stefnan er gerð auð­veld­ari sem og beit­ing valds svo hægt sé að kveða niður allt sem túlkast getur sem mót­mæli gegn meintum mann­réttind­ar­brotum

og ofbeldi ríkis gegn sínu eigin fólki.

Guðrún Bergmann

Wiium bræður spurðu hana einnig út í grein Guðrúnar sem hún skrif­aði í nóv­em­ber síð­ast­liðnum en hún ber heitið „

6 áfangar end­ur­ræs­ing­ar­innar miklu

“ og er þýð­ing hennar á grein eftir Henry Makow með örlitlum við­bótum.

„Minn skiln­ingur er að með PCR sé verið að safna DNA úr okkur,“ segir Guðrún.

Aðspurð um til­gang þess segir hún að planið sé að búa til for­eldra­laust sam­fé­lag.

„Fram­tíð­ar­heim­ur­inn byggir upp á því að end­ur­ræs­ingin mikla eða New world order vill að búa til for­eldra­laust sam­fé­lag og bara fram­leiða börn, bara í kössum,“ og á þá við skugga­yf­ir­völd heims­ins sem vin­sæl er í heimi sam­sær­is­kenn­inga, New World Order sem hafi það þá stefnu­skránni að búa til nýtt sam­fé­lag manna, í anda þess sem lesa má um í bók George Orwell, 1984.

Greinin lýsir því í smá­at­riðum á væg­ast sagt reifara­kenndan hátt hvernig covid fárið, sem og allur þessi bólu­efna­fer­ill sem við stöndum í, sé ekk­ert nema hluti af plani, endu­r­æs­ingu sem felur í sér að öðl­ast betri stjórn og yfir­sýn yfir almenn­ing. Einnig að ferlið feli í sér að fækka mann­fólki á jörð­inni og nefnir hún í því sam­hengi fækkun úr rúmum 7 millj­örðum niður í aðeins um 500 milljón jarð­ar­búa og þá sem viss nið­ur­skurður í hag­ræð­ing­ar­skyni.

„Samkvæmt plan­inu, New World Order plan­inu, eigum við öll að vera merkt, við eigum öll að vera með QR kóða svo hægt sé að fylgj­ast með hvar við erum, það á að skammta okkur það sem kall­ast borg­ara­laun,“ segir Guðrún og talar um punkta­kerfið sem er búið að taka upp í Kína, þar sem fólki er úthlutað punkta sem þau geta svo misst með því að henda rusli á göt­una eða með því að gagn­rýna yfir­völd og fleira og þannig misst rétt­inn til að ferð­ast með lest og fleira.

„Fjár­mála­heim­ur­inn plús tækni­heim­ur­inn hafa komið saman og búið til þessa bil­uðu hug­mynd að þeir ætli að fækka mann­kyn­inu niður í 500 millj­ónir og að róbotar eigi að sjá um fullt af stöf­unum og við eigum að vera hálf mennsk og hálfir róbotar.“

Seinna í við­tal­inu spyr Gunnar Guðrúnu nánar út í planið, hina miklu end­ur­ræs­ingu (The Great Reset).

„Eins og ég segi, fólk verður að vakna! Og það skiptir ekki máli hvort þú hafir fengið sprautu í upp­hand­legg­inn eða ekki. Það er verið að ljúga að okkur og það er verið að stýra okkur inn í svona fram­tíðar útópíu ein­hverra örfárra manna, það er talað um 3.000 manns sem standa á bak­við hinu miklu end­ur­ræs­ingu til að gera okkur að enn meiri þrælum, hefta ferða­frelsi, ég meina þú kemur kannski til með að þurfa fá leyfi til að skreppa upp á Skaga í fram­tíð­inni“

Undir lok við­tals­ins spyrja bræð­urnir Guðrúnu að því hvað hægt sé að gera til að halda sér heilum í „þessum stormi“

Guðrún talar um í lok við­tals­ins, hvernig við sem mann­eskjur getum snúið við þessu ferli sem snýr að aðskiln­að­ar­stefnu, stjórn og stríði.

„Það er að verða alger umbylt­ing á jörð­inni, sem verður yfir­leitt á 12 þús­und ára fresti, orku­tíðnin er að hækka. Við getum und­ir­búið okkur undir hana með því að halda innri ró og jafn­vægi, til dæmis með hug­leiðslu og með því að hækka tíðni okkar upp í kær­leika, í stað þess að lifa í ótta og reiði, sem er ráð­andi til­finn­ing þessa dag­ana og á mjög lágri tíðni.“

Hægt er að horfa á þetta áhuga­verða við­tal í heild sinni á YouTube rás Wiium bræðra og venju­lega má einnig sjá við­töl þeirra á Mbl.is en af ein­hverjum dul­ar­fullum ástæðum fékk þetta við­tal aðeins að vera í fimm klukku­stundir þar inni áður en það var tekið út án útskýr­inga. Hvort New Word Order hafi haft hönd í bagga þeirrar ákvörð­unar skal ósagt látið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina