Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leikfélag Reykjavíkur – Elsta menningarfélag þjóðarinnar 125 ára í dag

Leikfélag Reykjavíkur – Elsta menningarfélag þjóðarinnar 125 ára í dag

Leik­fé­lag Reykja­víkur er elsta starf­andi leik­fé­lag lands­ins og eitt elsta menn­ing­ar­fé­lag þjóð­ar­innar, en í dag, 11. jan­úar, eru 125 ár liðin frá stofnun þess.

Haustið eftir stofnun hóf Leik­fé­lagið sýn­ingar í Iðnó við Tjörnina, sem var aðsetur félags­ins til árs­ins 1989 þegar það flutti í Borg­ar­leik­húsið.

Frá opnun Borg­ar­leik­húss­ins hefur Leik­fé­lag Reykja­víkur staðið fyrir metn­að­ar­fullu starfi. Hjarta leik­húss­ins er leik­hóp­ur­inn sem flutti stoltur frá ,,gamla mið­bænum“ í ,,nýja mið­bæ­inn“ og hefur að jafn­aði staðið fyrir öfl­ugri en jafn­framt fjöl­breyttri verk­efna­skrá ár hvert. Að auki hefur Leik­fé­lagið tryggt annarri menn­ing­ar­starf­semi aðstöðu í hús­inu, boðið til sín gesta­leikjum og tekið þátt í inn­lendu sem erlendu sam­starfi.

Í 125 ár hefur Leik­fé­lag Reykja­víkur verið leið­andi afl í leik­list­ar­lífi þjóð­ar­innar. Borg­ar­leik­húsið er eins og Iðnó forðum, menn­ing­ar­miðja í Reykja­vík.

Félagið var frá upp­hafi mjög metn­að­ar­fullt og félag­arnir til­búnir að leggja hart að sér til að standa fyrir sjón­leikjum af hæsta gæða­flokki. Ólíkt öðrum leik­fé­lögum á land­inu lagði Leik­fé­lag Reykja­víkur áherslu á að leik­arar fengju greitt kaup fyrir hvert sýn­ing­ar­kvöld, þó ekki væri það nóg til að þeir gætu haft við­ur­væri af leik­list ein­göngu.

Fjár­hagur Leik­fé­lags­ins var oft erf­iður en metn­að­ar­fullt starf þess skap­aði því fljót­lega stöðu sem ein helsta menn­ing­ar­stofnun þjóð­ar­innar og má segja að það hafi gegnt hlut­verki þjóð­leik­húss þar til Þjóð­leik­húsið við Hverf­is­götu var vígt 1950.

„Mér er sem ég heyri bresti og brak“

Í til­efni af 125 ára afmæli Leik­fé­lags Reykja­víkur stendur fyrir dyrum að flytja svið­settan leik­lestur á söng­leik þeirra bræðra Jóns Múla og Jónasar Árnasona, Delerium búbónis. Frumgerð verks­ins var fyrst flutt í útvarpi fyrir jólin 1954, en frum­upp­færsla Leik­fé­lags­ins var frum­sýnd í Iðnó í jan­úar 1959. Verkið hlaut fádæma vin­sældir og lög Jóns Múla við texta Jónasar hafa öðl­ast sjálf­stætt líf og sess meðal þjóð­ar­innar, s.s. „Söngur jóla­svein­anna“ (Úti er alltaf að snjóa), „Einu sinni á ágúst­kvöldi“ og „Ljúf­lings­hóll“.

Til stóð að flytja verkið á afmæli Leik­fé­lags­ins, 11. jan­úar, en það eru fleiri sjúk­dómar en deler­ium búbónis sem setja strik í reikn­ing­inn, en eins og segir í verk­inu, „við getum jóla­haldi frestað fram í mars“, og vegna gild­andi sótt­varn­ar­tak­mark­ana hefur flutn­ingi Deleríum búbónis verið frestað þar til betur árar.

Leikskáld Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur

Á þessum sama degi 11. jan­úar hefur Birnir Jón Sig­urðs­son verið val­inn leik­skáld Leik­rit­un­ar­sjóðs Leik­fé­lags Reykja­víkur 2022–2023.

Birnir var val­inn úr hópi 25 umsækj­enda og tekur við kefl­inu af þeim Matth­í­asi Tryggva Har­alds­syni og Evu Rún Snorra­dóttur, en verk þeirra beggja verða hluti af verk­efna­skrá Borg­ar­leik­húss­ins á næsta leik­ári.

Birnir Jón er tíunda skáldið sem starfar við leik­húsið undir vernd­ar­væng Leik­rit­un­ar­sjóðs­ins sem leik­skáld Borg­ar­leik­húss­ins og fetar hann þar í fót­spor þeirra Auðar Jóns­dóttur, Jóns Gnarr, Krist­ínar Marju Bald­urs­dóttur, Tyrfings Tyrf­ings­sonar, Sölku Guð­munds­dóttur, Björns Leó Brynjars­sonar, Þórdísar Helga­dóttur auk þeirra Matth­í­asar Tryggva og Evu Rúnar.

Leik­skáld Borg­ar­leik­húss­ins fær aðstöðu í leik­hús­inu, vinnur þar á samn­ings­tím­anum og er hluti af starfs­liði Borg­ar­leik­húss­ins. Kapp­kostað er að veita leik­skáld­inu aðgang að allri starf­semi Borg­ar­leik­húss­ins og að það njóti aðstoðar, leið­sagnar og stuðn­ings leik­hús­stjóra, leik­list­ar­ráðu­nauta og ann­ars starfs­fólks leik­húss­ins. Auk þess á skáldið kost á sam­ræðum við leik­ara, leik­stjóra og leik­mynda­höf­unda og að sitja æfingar á verk­efnum Borg­ar­leik­húss­ins.

Ást og Karókí

Birnir Jón Sig­urðs­son útskrif­að­ist af sviðs­höf­unda­braut sviðs­lista­deildar Lista­há­skóla Íslands vorið 2019. Hann er starf­andi með­limur sviðs­lista­hópanna Ást og Karókí og CGFC, en báðir hópar hafa sýnt verk undir hatti Umbúða­laust í Borg­ar­leik­hús­inu; Ást og Karókí sýndu verkið Skatt­svik Develop­ment Group og CGFC sýn­ing­una Kart­öflur, sem til­nefnt var sem leik­rit árs­ins á Grímunni 2020.

Birnir skrif­aði texta barna­óp­er­unnar Fugla­bjargið sem sett var upp á litla sviði Borg­ar­leik­húss­ins í sam­starfi við sviðs­lista­hóp­inn Hin fræga önd í jan­úar 2021. Birnir er einn stofn­enda sviðs­lista­rým­is­ins Tóma rýmið, sem er vett­vangur gras­rótar í sviðs­listum á Íslandi og vinnur mark­visst að fram­þróun nýrra sviðs­verka.

Markmið Leik­rit­un­ar­sjóðs Leik­fé­lags Reykja­víkur er að efla nýsköpun og fjöl­breytni í íslenskri leik­ritun, auka vægi leik­rit­unar í sam­fé­lag­inu og stuðla að því að hún njóti virð­ingar í sam­fé­lagi lista. Formaður stjórnar Leik­rit­un­ar­sjóðs­ins er frú Vigdís Finn­boga­dóttir, heið­urs­fé­lagi Leik­fé­lags Reykja­víkur.

Aðrir í stjórn eru Brynjólfur Bjarna­son og Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir, leik­hús­stjóri, en verk­efna­vals­nefnd Borg­ar­leik­húss­ins er stjórn sjóðs­ins til ráð­gjafar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina