Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Linda Pétursdóttir gerir upp eftirmálin af falli Baðhússins: „Ég var ofboðslega hrædd.

Linda Pétursdóttir gerir upp eftirmálin af falli Baðhússins: „Ég var ofboðslega hrædd.
Linda Pét­urs­dóttir hefur upp­lifað ljós og skugga.

Linda Pét­urs­dóttir. Linda Pé. Ungfrú Ísland og síðar Miss World. Hún stofn­aði Baðhúsið sem hún síðar missti. „Þetta var ofboðs­lega erfitt tíma­bil. Stundum fannst mér eins og ég gæti ekki haldið áfram, en að sjálf­sögðu gerði ég það.“ Hún hélt áfram og í dag rekur hún fyr­ir­tæki. „Ég er með aðild­ar­pró­gramm á net­inu þar sem ég er að hjálpa konum bæði með þyngd­ar­tap og sjálfs­mynd­ina.“ Hún seg­ist vinna með hug­ar­farið. „Þær hafa auð­veld­lega verið að losa sig við 20 kíló kannski á sex mán­uðum með því að vinna í hug­ar­far­inu.“

„Ég var ofboðs­lega hrædd. Ég missti öryggi mitt. Ég er nátt­úr­lega ein­stæð móðir. Menn bank­andi upp á heima hjá mér næstum því frá morgni til kvölds með ein­hverjar kröfur og birt­andi mér ein­hverja papp­íra. Þetta var ofboðs­lega erfitt tíma­bil. Stundum fannst mér eins og ég gæti ekki haldið áfram, en að sjálf­sögðu gerði ég það. Ég er með dóttur mína og svo er ég „fighter“. Ég ætl­aði ekk­ert að gef­ast upp. En þetta var dimmur dalur,“ segir Linda Pét­urs­dóttir í Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni um tím­ann í kjöl­far þess að hún missti fyr­ir­tæki sitt, Baðhúsið, á sínum tíma.

„Ég ákvað að ég skyldi á hverjum ein­asta degi fara út í göngutúr með hund­inn minn. Það var lág­markið mitt. Ég kom Ísabellu í skól­ann, kom svo heim og svaf. Ég var þung­lynd eftir þetta. Ég svaf til hádegis og kom mér svo alltaf út í göngutúr. Ég var bara algjör­lega búin á því and­lega og til­finn­inga­lega og svo smám saman vann ég mig upp. Svo í dag, þegar ég lít til baka átta árum síðar, og lít í bak­sýn­is­speg­il­inn, þá get ég séð að þetta var dulin blessun. Svona átti þetta að fara. Veistu af hverju ég veit það? Af því að þetta fór svona. Eins og ég sagði, var þetta dimmur dalur og það var átak­an­legt að missa allt ver­ald­legt. Einstæð móðir. Óöryggi. En ég náði mér upp úr því og gott betur og líf mitt hefur aldrei verið eins bjart og það er í dag.“

Ég bólgn­aði upp og var svo verkjuð að ég átti í erf­ið­leikum með að mat­ast og ganga.

Linda dvaldi í Kali­forníu í nokkra mán­uði eftir að hún missti Baðhúsið til að kom­ast í hit­ann. „Ég er með liða­gigt og hún bloss­aði upp eftir þetta út af stressi og álagi og ég varð mjög veik af henni. Ég bólgn­aði upp og var svo verkjuð að ég átti í erf­ið­leikum með að mat­ast og ganga. Ég er með slæmt til­felli. Lækn­ir­inn minn ráð­lagði mér að fara út í hita. Vinafólk mitt, Jón Óttar Ragn­ars­son og Margrét Hrafns­dóttir, búa í eyði­mörk­inni í Kali­forníu og ég ákvað að fara og vera í námunda við þau og var þar í nokkra mán­uði. Ég, Ísabella og Stjarna. Ég þurfti aðeins að skipta um umhverfi, en það var líka erfitt af því að ég átti varla pen­ing fyrir mat.“

Linda er mikil hunda­kona.

Linda seg­ist sprauta í sig líf­tækni­lyfi vegna gigt­ar­innar á tveggja vikna fresti hér heima til að halda sér gang­andi af því að kuld­inn fer illa í hana. „Svo er ég heppin, en ég lifi heil­brigðum lífs­stíl og hlúi vel að sjálfri mér og auð­vitað helst þetta allt í hendur. Svo þegar ég er úti í hit­anum þá er ég bæði verkja- og lyfja­laus.“

Og Linda styrkt­ist smátt og smátt.

Ég er „fighter“. Það er ekki í mér að gef­ast upp.

„Ég hef stöðugt verið að vinna í að styrkja sjálfa mig and­lega, til­finn­inga­lega, lík­am­lega og nátt­úr­lega farið mennta­veg­inn. Ég er „fighter“. Það er ekki í mér að gef­ast upp. Ég leyfi mér alveg að finna fyrir sárs­auka og líða stundum illa, en ég læt ekki verk­efnin eða erf­ið­leika skil­greina hver ég er. Ég veit hver ég er og ég get haldið áfram að lifa drauma­líf­inu mínu. Það er það sem ég er að gera í dag.“

Halda keik áfram

Linda Pét­urs­dóttir, fyrr­ver­andi feg­urð­ar­drottn­ing Íslands og síðar Miss World, segir að það hafi aldrei verið stór draumur hjá sér að sigra í feg­urð­ar­sam­keppni.

„Ég hafði mik­inn áhuga á tísku og mig lang­aði að gera eitt­hvað tengt því. Ég hafði verið hjá Hönnu Frímanns í Kar­on­skól­anum að læra meðal ann­ars að ganga og hún sagði fyrir framan hóp­inn að þarna væri stúlka sem hún gæti séð fyrir sér sem vinn­ings­hafa í Ungfrú Ísland. Ég átti ekki von á því að hún væri að tala um mig, en svo sagði hún nafnið mitt og ég roðn­aði og mér fannst þetta eitt­hvað voða skrýtið og sagði mömmu frá þessu.“

Linda sótti síðar um að kom­ast í keppn­ina Ungfrú Reykja­vík en var hafnað, en hún hafði búið á Aust­ur­landi. „Þeir vildu ekki þessa lands­byggð­ar­túttu þannig að mamma fór og sótti um fyrir mig í Ungfrú Aust­ur­land. Það var upp­hafið að þessu.“ Og Linda var krýnd Ungfrú Aust­ur­land. „Þá vissi eng­inn af þessu; ég vildi ekki að neinn vissi af þessu. Vinir mínir. Enginn. Þeir sáu þetta bara í frétt­unum um kvöldið þegar ég vann. Þá var ég komin í und­an­úr­slit fyrir Ungfrú Ísland og vann það. Þetta gerð­ist á um hálfu ári.“

Og svo var hún kjörin Miss World í kjöl­farið. Og það var tekið á móti henni á Vopna­firði, heima­bænum hennar, eins og drottn­ingu sæmir. Lang­flestir íbú­arnir mættir á flug­völl­inn.

„Þetta var svaka­lega stórt á þessum tíma. Svaka­lega stórt. Þetta var mjög ólíkt því hvernig þetta er í dag. Það var mjög vel tekið á móti mér. Svo fór ég líka til Húsa­víkur og þá tók bæj­ar­stjórnin þar á móti mér. Þetta var frá­bært.“

Þegar Linda hafði komið til lands­ins eftir keppn­ina úti höfðu þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra og eig­in­kona hans tekið á móti henni á flug­vell­inum og svo var haldið boð á Hótel Íslandi Lindu til heið­urs. „Þetta var vissu­lega gaman.“

Svo var ég 24 ára þegar ég stofn­aði fyr­ir­tækið mitt, Baðhúsið, og svo tók lífið við.

Linda hafði stundað nám við Fjöl­brauta­skól­ann við Ármúla og hætti hún nám­inu eftir keppn­ina úti. „Ég var 18 ára þegar ég vann Miss World. Ég var í fjöl­braut og þá breytt­ust þau plön. Þegar ég var búin að ferð­ast um allan heim­inn þá lang­aði mig ekki til að setj­ast á skóla­bekk í Fjöl­braut við Ármúla. Ég get alveg lofað þér því. Svo var ég 24 ára þegar ég stofn­aði fyr­ir­tækið mitt, Baðhúsið, og svo tók lífið við.“

Hvað myndi Linda segja við þessa stelpu í dag? Hvað myndi hún ráð­leggja henni?

„Ég myndi segja henni að halda keik áfram. Láta ekki umtal og skoð­anir ann­arra stoppa sig, því það hafi ekk­ert með hana sjálfa að gera og bara halda áfram og fara á eftir draumum sínum.“

Það er bara ákveð­inn skrápur sem maður þarf að láta vaxa.

Umtalið. Þetta umtal.

„Ég var 18 ára. Kom beint utan af landi og svo allt í einu var ég komin á svið heims­ins.“ Og umtalið fylgdi því, sér­stak­lega á Íslandi. „Auðvitað hafði ég enga æfingu í því og það  nátt­úr­lega tók á.“ Hún vissi ekki hvernig hún átti að taka þessu, en svo vand­ist þetta. „Það er bara ákveð­inn skrápur sem maður þarf að láta vaxa.“

Árin liðu og hefur Linda verið tengd Miss World árum saman og verið dóm­ari. „Ég er búin að vera ansi oft dóm­ari í Miss World. Ein­hverra hluta vegna fá þeir mig alltaf aftur. Ég er nokkuð góð í því og hef gaman af því.“

Lífsþjálfi

Nei, Linda hélt ekki áfram námi við Fjöl­brauta­skól­ann við Ármúla á sínum tíma en hún sett­ist á skóla­bekk síðar og mennt­aði sig í fleiri en einni grein.

„Ég er graf­ískur hönn­uður og svo er ég með gráðu í heim­speki, hag­fræði og stjórn­mála­fræði,“ segir Linda sem tók það nám við Háskól­ann á Bifröst. „Svo er ég lífs­þjálfi og er núna í master­námi í lífs­þjálfun. Ég er örugg­lega ekk­ert alveg hætt. Ég finn mér alltaf eitt­hvað og þetta er dálítið breitt svæði. Mér finnst gaman að læra og mennta mig.“

Það er aldrei hægt að taka menntun frá þér

Linda er spurð hvernig gráðan frá Háskól­anum á Bifröst nýt­ist henni.

„Það er aldrei hægt að taka menntun frá þér. Það er svo gott að fjár­festa á þann hátt í sjálfum sér. Þetta er búið að styrkja mig sem ein­stak­ling. Heim­spek­ina get ég nýtt í eigin lífi hvenær sem er. Svo er ég nátt­úr­lega frum­kvöð­ull. Ég er alltaf að vinna hjá sjálfri mér og ég nýti þetta í ýmis­legt. Ég myndi segja að þetta nám – heim­spekin, hag­fræðin og stjórn­mála­fræðin – styrki mig í sjálfri mér. Hver ég er.

Mér fannst þetta vera eitt­hvað sem ég átti eftir að gera fyrir sjálfa mig; fá mér góða háskóla­menntun og mig lang­aði til að læra eitt­hvað allt annað en ég hafði verið í. Ég sá þetta nám og var efins til að byrja með, en Sævar bróðir hvatti mig til að fara í þetta, einmitt til að taka 180 gráður og læra eitt­hvað nýtt. Þetta var eftir fall Bað­húss­ins og ég sé svo sann­ar­lega ekki eftir því að hafa farið í þetta nám.“

Ég veit hver ég er og ég get haldið áfram að lifa drauma­líf­inu mínu. Það er það sem ég er að gera í dag,“ sagði Linda sem í dag rekur fyr­ir­tæki sem lesa má um á lindape.com.

Hún seg­ist vera í drauma­djobb­inu. „Ég elska að ferð­ast og ég tek far­tölv­una með og get unnið hvar sem er. Ég er ein­yrki, en nýt aðstoðar Daggar frænku minnar frá Húsavík, sem einnig er lífs­þjálfi. Hún vinnur með mér í prógramm­inu Lífið með Lindu Pé. Ég er með fyr­ir­tæki á net­inu og er að kenna konum út frá lífs­þjálfun. Þetta er það skemmti­leg­asta sem ég hef unnið við á minni ævi. Ég er með aðild­ar­pró­gramm á net­inu þar sem ég er að hjálpa konum bæði með þyngd­ar­tap og sjálfs­mynd­ina.

Ég er með konur frá um 30 ára og upp í 80 ára sem eru að vinna með mér og ég er svo með fundi með þeim viku­lega í beinni útsend­ingu þar sem ég tek fyrir efni, kenni þeim og þjálfa og veiti þeim ráð. Þetta gefur mér gríð­ar­lega mikið og kon­urnar hjá mér eru æðis­legar. Mér finnst þetta svo gaman. Þetta eru allt íslenskar konur, úti um allan heim.“ Linda segir að kon­urnar sem taka þátt í prógramm­inu hafi aðgang að innri vef þar sem hún er með um 200 mynd­bönd þar sem hún kennir þeim ýmis­legt.

Ég er búin að vera í þessum bransa í yfir 30 ár og allra besta leiðin sem ég þekki og sem ég kann til þess að losna til dæmis við aukakílóin er gerð með hugs­ana­vinnu.

Hvað er gert ef konur vilja til dæmis losna við 10 kíló? „Þær horfa á efni hjá mér. Ég er búin að vera í þessum bransa í yfir 30 ár og allra besta leiðin sem ég þekki og sem ég kann til þess að losna til dæmis við aukakílóin er gerð með hugs­ana­vinnu. Ég er ekki að segja þeim að telja kalor­íur, vigta mat­inn sinn eða láta þær fá upp­skriftir; ég er að kenna þeim að vinna með hugs­anir sínar, af því að allt sem hugsað er um fram­kallar ákveðna líðan. Ein­hverja til­finn­ingu. Út frá þeirri til­finn­ingu er eitt­hvað gert eða ekki. Það þarf alltaf að fara til baka í hugs­un­ina til að breyta nið­ur­stöð­unni í líf­inu. Það þýðir ekki að fara bara að telja kalor­íur eða fá ein­hverjar nýjar upp­skriftir frá ein­hverjum gúrú úti í bæ, því hvað ætlar við­kom­andi svo að gera þegar hann hefur það ekki lengur? Ég vinn með hug­ar­farið. Ég læt þær vissu­lega fá alls kyns verk­færi og tól til að styðj­ast við og gera breyt­ingar, en við erum að gera þetta á annan hátt og þetta virkar mjög vel. Þær hafa auð­veld­lega verið að losa sig við 20 kíló kannski á sex mán­uðum með því að vinna í hug­ar­far­inu.“ Linda segir að hún kenni kon­unum að byrja að hlusta á eigin visku. Eigin lík­ama. „Þær vita miklu betur hvað hentar þeirra lík­ama en ég eða ein­hverjir aðrir. Ég er að kenna þeim að taka dálítið völdin aftur og setj­ast í bíl­stjóra­sætið í eigin lífi.“

Hvað með karla? Af hverju kennir Linda ekki líka körlum?

„Ég gæti haft meira en nóg að gera ef ég væri með karl­ana líka. Ég fæ oft fyr­ir­spurnir. Mark­hópur minn er konur. Ég hef unnið með konum alla mína tíð og mér finnst bara best að vinna með konum. Konur eru konum bestar.“

Hér má finna sam­fé­lags­miðla Lindu. Heima­síða: www.lindape.com Instagram er @lindape. Podcast hennar er hér.

Kvenna­grúppa á Facebook er hér.

Hlað­varps­við­talið við hana er hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina