Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kaupir bara notuð og umhverfisvæn föt

Kaupir bara notuð og umhverfisvæn föt

„Við höfum ekki verið með Covid-sjúk­linga vegna sér­greinar okkar en auð­vitað finnur man fyrir far­aldr­inum. Við höfum til dæmis stundum tekið sjúk­linga frá öðrum deildum þegar það þarf fleiri pláss fyrir sjúk­linga með Covid. Það finna allir fyrir því gríð­ar­lega mikla álagi sem er á spít­al­anum þessa dag­ana,“ segir hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Þuríður Skarp­héð­ins­dóttir.

„Ég vinn á heila-, tauga- og bækl­un­ar­skurð­deild­inni á Land­spít­al­anum í Fossvogi,“ segir hún í sam­tali við Frétta­blaðið.

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Þuríður Skarp­héð­ins­dóttir leit­ast við að vera umhverf­is­væn í fata­kaupum og kaupir næstum öll sín föt notuð. Hún fylgist lítið með tísku en hefur gaman af því að velta klæðn­aði fyrir sér og gengur ein­fald­lega í fötum sem henni finnst fal­leg og klæða hana vel.

Kaupir bara notuð og umhverfisvæn föt

„Nú til dags reyni ég að kaupa öll fötin mín í hringrás­ar­versl­unum og fötin sem ég kaupi notuð eru yfir­leitt ekki mjög dýr. Upp­á­halds versl­an­irnar mínar eru Extra­loppan í Smára­lind­inni og Verzlanahöllin á Lauga­vegi. Svo er ég líka í mörgum hópum á Facebook þar sem fólk er að selja notuð föt og hef keypt mjög margar af bestu flík­unum mínum þar,“ segir Þuríður. „Það eina sem ég á erfitt með að kaupa notað eru buxur, en legg­ings kaupi ég oft­ast á ethic.is, sem selur umhverf­is­vænni flíkur.

Þuríður segir að und­an­farin ár hafi hún hall­ast sífellt meira að því að klæð­ast legg­ings og of stórum peysum, helst not­uðum, og bætir við í léttum tón að það hljóti að vera merki um að hún sé að verða mið­aldra.

Í upp­eldi mínu var lögð mikil áhersla á umhverf­is­vernd, sem er aðal­á­stæðan fyrir áhuga mínum á not­uðum flíkum. „Fast-fas­hion“ brans­inn er fárán­lega óum­hverf­is­vænn og mér hefur reynst ótrú­lega auð­velt að finna fal­legar flíkur á net­inu og í hringrás­ar­versl­unum,“ segir Þuríður. „Ég er reyndar heppin að vera í mjög algengri skó­stærð og nota stærðir sem oft­ast er eitt­hvað til af í versl­un­unum, en það góða við hringrás­ar­versl­anir er að þar getur fólk af öllum stærðum og gerðum selt fötin sín og keypt föt.

Mér finnst það skipta miklu máli að nýta notuð föt. Ef ég kaupi eitt­hvað sem ég geng svo ekk­ert í þá gef ég það alltaf áfram í Rauða kross­inn og oft hef ég keypt eitt­hvað sem er alveg ónotað í hringrás­ar­versl­unum. Ég hætti nán­ast alveg að kaupa föt á vef­síðum eins og Asos og svo fram­vegis árið 2018 til þess að reyna að vera umhverf­is­vænni og ég reyni að forð­ast „fast-fas­hion“ versl­anir eins og heitan eld­inn,“ útskýrir Þuríður. „Ég er líka með app í sím­anum sem heitir „Good on you“, þar sem fata­merkjum er gefin ein­kunn varð­andi umhverf­is­vernd og annað og ég mæli með því.“

Skemmtilegt að pæla í fötum

Þuríður hefur verið að sækja meira í þægi­legar peysur að und­an­förnu.

„Ég veit ekki hvort það teng­ist álag­inu út af far­aldr­inum beint, en ég er farin að nota og kaupa þær meira. Þær eru hent­ugar bæði heima fyrir og í dag­legu amstri,“ segir hún.

Þuríður seg­ist ekki hafa mik­inn áhuga á tísku­heim­inum í sjálfu sér, en að henni finn­ist mjög skemmti­legt að pæla í föt­unum sem hún og aðrir klæða sig í.

„Ég horfi til dæmis mikið á í hvernig skóm fólk gengur þegar ég á að vera að læra á Þjóð­ar­bók­hlöð­unni og fæ líka oft inn­blástur frá ein­hverjum sem gengur fram hjá mér á Lauga­veg­inum,“ segir hún.

„Ég var mjög fók­useruð á vin­tage tísku frekar lengi en á sama tíma keypti ég aðra hverja flík í H&M og Primark eins og ekta kaupóður Íslend­ingur. En und­an­farin ár er ég byrjuð að hall­ast frekar að of stórum peysum (helst not­uðum) við legg­ings, eins og mið­aldra konan sem ég er að verða.

Ég er yfir­leitt í fötum sem mér finnst fal­leg og klæða mig vel (að mínu mati, ekki mömmu). Ég hef alltaf sagt að ég sé „trend-setter“ þegar kemur að klæða­burði en vin­kona mín vill meina að ég sé bara í ljótum fötum sem eru svo óvænt í tísku sirka tveimur árum seinna,“ segir Þuríður létt.

Heimild:

Rit­stjórn. 2022, 20. jan­úar. Auðvelt að finna fal­legar not­aðar flíkur. Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina