Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk óveður: „Í Kópa­vogi fuku bílar um eins og eld­spýtu­stokkar“

Íslensk óveður: „Í Kópa­vogi fuku bílar um eins og eld­spýtu­stokkar“

Árið 1981 gekk stormur yfir landið sem fékk nafnið Engi­hjalla­veðrið. Á­stæða þess var að í Engi­hjall­anum í Kópa­vogi mátti sjá bíla takast á loft og fjúka um svæðið. Storm­ur­inn olli miklu tjóni á bíla­stæðum við blokk­irnar en talið er að þær hafi átt sinn þátt í að skapa snarpar vind­hviður.

Tveir menn lét­ust í Vest­manna­eyjum en þeir voru um borð í bátnum Heima­ey. Brot kom í bát­inn og þá tók út. Þá fauk kirkja af grunni sínum í Saur­bæ í Dölum og lenti á fé­lags­heim­ili sem var við hlið hennar.

Ómar Ragnars­son tjáði sig um ó­veðrið og hafði meðal ann­ars þetta að segja:

„Vind­ur­inn komst í 93 hnúta á Reykja­víkur­flug­velli en það sam­samar 46 m/sek sem er 14 metrum yfir mörkum fár­viðris. Mér er minnis­stætt hve miklu mun­aði að ég missti flug­vél­arnar mínar tvær út í busk­ann vegna þess að vind­hrað­inn var tvö­falt meiri en þurfti til að feykja þeim hvort eð var. En nafnið Engi­hjalli er í margar huga bundið við þetta veður vegna þess að við götu með því nafni aust­ast í Kópa­vogi fuku bílar um eins og eld­spýtu­stokkar.“

Engi­hjalla­veðrið er nefnt eftir göt­unni Engi­hjalla í Kópavogi eins og fyrr segir, en þar birt­ist það í öllu sínu veldi, við háar blokkir sem þar standa. Bílar sem stóðu á bíla­stæði við blokk­irnar hreyfð­ust margir hverjir úr stað, eða öllu heldur hrein­lega fuku. Þak­plötur þeytt­ust af hús­unum og þutu hjá gluggum eins og risa­stór rak­véla­blöð, eins og því var lýst á sínum tíma.

„Það var ekki stætt hérna á milli húsa. Hvið­urnar virt­ust ganga mest hérna á milli húsa og hér fuku bíl­arnir bara eins og hrá­viður,“ sagði Guðjón Ein­ars­son, þegar frétta­maður RÚV bað hann um að lýsa veðr­inu kvöldið áður.

„Maður sá ósköp lítið. Hann stóð þarna og svo var hann kom­inn hingað,“ sagði annar íbúi í Engi­hjalla við frétta­mann dag­inn eftir ofsa­veðrið.

Það hefur gengið á ýmsu hérna í gær­kvöldi?
„Já, þetta var allt vit­laust, alveg brjálað. Það flugu hérna járn­plötur fram­hjá glugg­unum á átt­undu hæð­inni,“ sagði íbúi.

Þá skemmd­ust flug­vélar sem stóðu á Reykja­vík­ur­flug­velli, þrjár inni í flug­skýli og fuku jafn­vel á hvolf á flug­hlað­inu. Á Víf­ils­stöðum var mikið tjón þegar þök fuku og fleiri skemmdir urðu.

Kirkjan á Stað­ar­hóli í Saurbæ í Dölum færð­ist af grunni sínum og hefði eflaust farið lengra ef félags­heim­ilið Tjarn­ar­lundur hefði ekki verið í veg­inum.

Á bæjum víða á vest­an­verðu land­inu varð mikið tjón, úti­hús eyðilögð­ust og garð­yrkju­bændur fóru margir hverjir illa út úr veð­ur­hamnum þegar rúður í gróð­ur­húsum þeirra splundr­uð­ust, jafn­vel allar sums staðar.

Mikið fjár­hags­legt tjón varð vegna veð­urs­ins, en mest varð þó tjónið þegar tveir skip­verjar á Heimaey VE fór­ust þegar bát­inn rak upp í Þykkva­bæj­ar­fjöru.

Óveður sem hafa sett mark sitt á Íslandssöguna

Í gegnum árin hafa hin ýmsu ó­veður skollið á land­inu og sum þeirra valdið gríð­ar­legu tjóni.

Storm­ur­inn sem gekk yfir landið 10. des­em­ber 2019 var einn sá versti í manna minnum. Þá sér­stak­lega í huga þeirra sem bjuggu á Vest­fjörðum og á Norður­landi. Einnig gekk mikið á í Vest­manna­eyjum og á Suður­nesjum. Til marks um kraft óveð­urs­ins var í fyrsta sinn not­ast við rauðar merk­ingar til að vara við hætt­unni sem storm­ur­inn gæti skapað. Meðal ann­ars lagði varð­skip að bryggju í Dalvík til að íbúar þar gætu fengið aðgang að raf­magni.

En það allra versta átti sér stað 3. febr­úar 1991 en talið er að skemmd­irnar hafi hlaupið á millj­örðum króna.

Ó­veðrið árið 1991

Tjón varð á fjölda bygg­inga í ó­veðr­inu og mátti sjá heilu þökin fjúka af húsum. Bátur sökk, þök fuku af fjár­húsum, bátur þeytt­ist á land og brotn­aði og einnig fauk hænsna­kofi með tólf hænum.

Fjöldi farar­tækja skemmd­ust og mikið tjón varð á gróðri þegar tré rifn­uðu upp með rótum og þökur flett­ust af túnum. Annað af lang­bylgju­möstr­unum á Vatns­enda­hæð hrundi, sumar­bú­staður í Önundar­firði fauk á haf út í heilu lagi og í Hruna­manna­hreppi splundrað­ist fjár­hús. Í Vest­manna­eyjum og í Kefla­vík þurfti að flytja fólk úr í­búðar­húsum sínum og koma því í öruggt skjól.

Lög­regla- og slökkvi­liðs­menn, björg­unar­sveitir og aðrir sjálf­boða­liðar lögðu sig víða í mikla hættu við að bjarga verð­mætum en talið er að tjónið hafi kostað að þá­virði meira en einn millj­arð króna.

Ó­veðrið árið 2003

Þann 29. des­em­ber það ár skall á mikið óveður á suð­vest­ur­horni lands­ins og náði upp á Snæ­fells­nes. Það færð­ist síðan norður- og austur yfir landið líkt og kom fram í Frétta­blað­inu þann 30. des­em­ber. Mikil og stöðug snjó­koma gerði það að verkum að margir öku­menn festu bíla sína í snjó á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og voru björg­un­ar­sveitir kall­aðar út þar og á Akranesi til að aðstoða öku­menn.

Skömmu fyrir hádegi mynd­uð­ust miklar og langar bílaraðir og sátu fjöl­margir þeirra fastir. Í Frétta­blað­inu kom fram að verst hafi ástandið verið í úthverfum borg­ar­innar og til dæmis hafi öll umferð um nýja brú í Graf­ar­holti stöðvast í nokkra klukku­tíma vegna ófærðar.

Ó­veðrið árið 2012

Af­taka­veður gekk yfir landið þann 2. nóv­em­ber árið 2012 og slös­uð­ust margir vegna þess.

Veðrið var verst á Suður­landi frá Eyja­fjöllum að Vatna­jökli og var þar víða raf­magns­laust um tíma­bil.

Tjón vegna veð­urs­ins var gríðar­legt og var fjöldi björg­unar­sveitar­manna að störfum við erf­iðar að­stæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina