Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meintur brotaþoli Daníels Arnar rýfur þögnina: „Ég fraus bara en gat ekki hætt að gráta“

Meintur brotaþoli Daníels Arnar rýfur þögnina: „Ég fraus bara en gat ekki hætt að gráta“
Daníel Örn Arn­ars­son. Mynd: Reykjavík

„Ég fraus bara, en gat ekki hætt að gráta, ekki fyrir mitt litla líf. Ég var bara með ekka,“ segir kona sem var í ofbeld­is­sam­bandi með vara­borg­ar­full­trúa sem sagði sig nýverið frá störfum vegna ásak­ana.

Steig til hliðar af virðingu fyrir verkalýðs- og stjórnmálabaráttu

Daníel Örn Arn­ars­son, vara­borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins og rit­ari stjórnar Eflingar, sagði sig frá stjórn­mála­þátt­töku og félags­legum störfum á laug­ar­dag vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­of­beldi. Hann var einnig í fram­boði til stjórnar stétt­ar­fé­lags Eflingar fyrir hönd hins nýja Bar­áttu­lista, en dró sig sömu­leiðis úr því.

Daníel Örn greindi sjálfur frá þessu á Facebook-síðu sinni á laug­ar­dag. Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum Mannlífs höfðu ásak­an­irnar borist í hendur Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, borg­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks­ins, sem ræddi málið síðan við Daníel Örn. Hann sagði sig strax frá störfum sínum í kjöl­farið.

Í til­kynn­ingu sinni talar Daníel um ásak­anir en ræðir ekki sér­stak­lega hverjar þær eru eða hvort hann gang­ist við þeim. Þess í stað seg­ist hann hafa ákveðið að stíga til hliðar af virð­ingu fyrir störfum Sós­í­alista­flokks­ins og fyrir bar­áttu verka­fólks fyrir bættum kjörum og aðstæðum.

Mannlíf hefur rætt við mein­tan brota­þola Daníels og hún sam­þykkt það að saga hennar sé birt. Hún kýs að koma fram undir nafn­leynd eins og sakir standa.

„Ég veit að hann veit“

Konan sem um ræðir seg­ist í sam­tali við blaða­mann lítið hafa sofið síð­ast­liðna nótt.

„Ég er búin að vera í ein­hverju svona skrýtnu ástandi, þar sem mig langar ekki að opna neitt um þetta en á sama tíma er ég obsessive að tékka.“

Henni þótti yfir­lýs­ing Daníels takt­laus og hugn­ast ekki að sjónum sé alfarið beint að póli­tískum störfum, án þess að axla ábyrgð eða eiga sam­tal um ásak­an­irnar.

Daníel Örn hefur nú falið eða eytt Facebook-síðu sinni. Stuttu áður birt­ist athuga­semd undir færsl­unni hans sem sagði: „Virki­lega ógeð­fellt mál og mér finnst þú skauta veru­lega fram­hjá þeirri sem á inni afsök­un­ar­beiðni. Efling og Sós­í­alista­flokk­ur­inn eru ekki í sárum eftir þig“

„Það er eng­inn ómissandi,“ segir konan í sam­tali við blaða­mann. „Verka­lýðs­bar­átta og stjórn­mála­bar­átta er ekki að fara að stranda út af einum manni.

Ég veit að það er kannski pínu barns­leg hugsun hjá mér en ég raun­veru­lega bjóst við því að hann myndi taka ábyrgð. Af því að hann er, síð­ast þegar ég vissi, í 12 spora sam­tök­unum.

Líka af því að hann veit. Ég veit að hann veit. Það fór ekk­ert á milli mála. Þetta var ekki á neinu gráu svæði, þetta var bara út fyrir allt.“

Fyrsta kynferðisbrotið í sumarbústað

Konan átti í ást­ar­sam­bandi við Daníel Örn á árunum 2020 og 2021. Þau byrj­uðu saman í upp­hafi árs­ins 2020 en hættu síðan saman í mars sama ár. „Sá partur af sam­band­inu var hér um bil eðli­legur,“ segir hún. Þau byrj­uðu svo aftur saman í sept­em­ber árið 2020 og voru saman þar til í febr­úar árið 2021. Hún segir að það hafi verið í októ­ber árið 2021 sem Daníel Örn hafi brotið á henni kyn­ferð­is­lega í fyrsta sinn.

Þau höfðu farið upp í sum­ar­bú­stað sem Daníel Örn hafði aðgang að, ver­andi vara­borg­ar­full­trúi í Reykja­vík.

„Við fórum í heita pott­inn og drukkum og spjöll­uðum. Ég var undir áhrifum áfengis, ég var orðin mjög ölvuð, og hann var pirr­aður. Það var eins og hann ætl­aði sér að refsa mér fyrir það; að ég væri að vera pirr­andi.“

Hún segir Daníel því næst hafa þröngvað sér á hana og nauðgað henni í enda­þarm, á meðan hún hágrét og bað hann um að hætta.

„Hann lagði mig yfir end­ann á pott­inum, þannig að kant­ur­inn á pott­inum var svona í bring­una á mér. Þetta var svo ógeðs­lega vont. Líka eftir smá tíma – mér var bara illt alls­staðar. Eftir smá stund var ég líka orðin svo hrædd um að ég myndi fara undir vatnið. Þannig að ég var bara að bíða eftir því að þetta væri búið. Þarna fraus ég eig­in­lega bara, þegar ég var búin að átta mig á því að ég gæti óvart, ef ég myndi bakka aðeins, farið undir vatnið. Þannig að ég fraus bara, en ég gat ekki hætt að gráta, ekki fyrir mitt litla líf. Ég var bara með ekka.“

Daginn eftir var henni illt; hún var aum og ringluð. Hún segir að Daníel Örn hafi sagst elska hana og að hann hafi talið henni trú um það að þetta hafi verið frá­bært.

„Honum fannst þetta bara geggjað. Honum fannst held ég eig­in­lega bara betra að ég hafi verið grát­andi.“

Ekki á gráu svæði

„Við stund­uðum alveg kyn­líf sem var í BDSM-átt­ina. En það eru mjög skýr mörk sem liggja þar.“ Hún seg­ist sjálf aldrei hafa upp­lifað óör­yggi í slíku kyn­lífi. „Þarna var ég hins­vegar bara núll pró­sent örugg.“

„Mér finnst svo mik­il­vægt að það komi fram að þetta var ekki á neinu gráu svæði. Þetta var bara ótrú­lega ofbeld­is­full nauðgun. Það voru miklir eft­ir­málar, bæði lík­am­lega og and­lega. Mig langar ekki að hann geri þetta aftur við ein­hverja aðra.“

„Málið yrði fellt“

Hún segir Daníel hafa brotið á sér oftar eftir þetta með sama hætti. „Nokkrum vikum seinna gerð­ist þetta aftur, nema heima hjá honum. Aftur grét ég, bað hann um að hætta og sagði honum að hann væri að meiða mig. Aftur skipti það engu máli. Ég sagði einu sinni við hann að hann yrði að hætta þessu; þetta væri ótrú­lega fucked up og að ég gæti bók­staf­lega bara kært hann fyrir þetta. Hans við­brögð voru sam­stundis að svara, blákalt:

„Ég myndi bara sýna dóm­ar­anum fetlife-ið þitt og málið yrði fellt.“

Fetlife er sam­skipta­mið­ill fyrir BDSM-hneigða, sem og fólk með áhuga á BDSM eða ákveðnum blætum. Í BDSM eru skýrar reglur um sam­þykki og virð­ingu lyk­il­at­riði.

„Hans við­brögð voru strax þau að ég væri hvort eð er svo mikil drusla, vegna þess að ég fíl­aði BDSM, þannig að það skipti engu máli hvað ég segði. Ég mun aldrei gleyma þessu. Það var svo und­ar­leg dýnamík í sam­band­inu okkar og ég var alltaf svo mikið að reyna að þókn­ast honum. Þannig að mér brá en tók þessu svo bara; eins og þetta væri bara góður punktur hjá honum.“

Andlegt ofbeldi ágerðist

Hún segir sam­bandið hafa orðið mjög óheil­brigt eftir því sem leið á. Hann hafi beitt hana and­legu ofbeldi og skil­yrt hana þannig að hún var að eigin sögn orðin afar ringluð.

„Ég var bara undir hælnum á honum. Allt var eftir hans henti­semi. Einhvern tíma vorum við að horfa saman á mynd seint um kvöld og ég sofna yfir mynd­inni. Fyrir mig er það bara frekar eðli­legt. Þegar ég vakna er hann far­inn og svarar mér ekki í marga klukku­tíma og er síðan að refsa mér í nokkra daga fyrir þetta. Hann var bara brjál­aður yfir því að ég skyldi sofna. Þetta hafði gerst nokkrum sinnum og hann varð alltaf reið­ari og reið­ari. Þá kom svona silent treat­ment. Ég var bara þreytt; ég er í fullri vinnu og í skóla.“

„Ég ætla aldrei aftur að vera með svona Stígamótabeyglu“

Hún segir Daníel Örn hafa farið mik­inn í yfir­lýs­ingum um ánægju sína með kyn­líf þeirra.

„Hann var svo ánægður með þetta, því hann var giftur í tíu ár, áður en við byrj­uðum saman. Og fyrr­ver­andi konan hans er ráð­gjafi hjá Stíga­mótum. Hann var alltaf að segja að hann ætl­aði sko aldrei aftur að vera með svona fokk­ing Stíga­móta­beyglu. Hann sagði þetta alltaf: „Ég ætla aldrei aftur að vera með svona Stíga­móta­beyglu. Ég trúi ekki að ég hafi lifað ömur­legu kyn­lífi í tíu ár.“ Hann var svo feg­inn að vera laus úr þeirri prís­und sem það var að eiga konu sem setti mörk.“

Hún seg­ist hafa verið svo hrædd um að eng­inn myndi trúa sér, einmitt vegna þess að hann hafi verið giftur konu í tíu ár sem starf­aði hjá Stíga­mótum og var áber­andi í slíkri umræðu. „Hann bakk­aði hana upp opin­ber­lega.“

Taldi að hún væri verðlaus

Konan sleit sam­band­inu við Daníel Örn í febr­úar árið 2021. „Þá var hann nýbú­inn að vera tek­inn fyrir ölv­un­arakstur og ég sagði bara við hann að ég vildi ekki vera bendluð við svona. Þetta var bara komið út í rugl. Hann var oft að koma hérna heim til mín svo fullur að ég sagði bara að hann yrði að fara. Ég gat ekki hleypt honum inn því ég var bara hrædd við hann. Hann var svartur í aug­unum og ég var hrædd við hann.

Svo hættum við saman og erum ennþá í ein­hverjum sam­skiptum, aðeins. Það var bara búið að skil­yrða mig þannig að ég taldi það að ég væri bara hund­rað pró­sent verð­laus og ætti engan góðan skilið. Hann væri bara full­kom­inn fyrir mig; ég gæti bjargað honum. Eftir að sam­skiptum okkar lauk fór hann inn á Vog. Þá fékk ég, í fyrsta sinn eftir að við byrj­uðum saman, svona pínu­lítið and­rými. Ég fékk tæki­færi til að skoða það sem hafði gengið á.“

„Gangi þér vel með lífið“

Í síð­ustu sam­skipt­unum þeirra á milli svar­aði konan skila­boðum frá Daníel Erni, þar sem hann spurði hana hvað væri að frétta. Í svari sínu reyndi hún að eigin sögn að setja fót­inn niður. Þetta var um tveimur mán­uðum eftir að hún sleit sam­band­inu, þann 28. apríl 2021. Í skila­boð­unum, sem Mannlíf hefur undir höndum, lýsir hún því hvernig henni þyki síð­ustu 7 til 9 mán­uðir lítið annað hafa gert en að brjóta sig niður. Hún hafi verið komin með brotna sjálfs­mynd og fund­ist hún óelsku­leg. „Ég tek sjálf ábyrgð á því hvernig mér hefur liðið en þú hefur óneit­an­lega spilað þátt þar í, þá sér­stak­lega ógeð og hatur á lík­am­anum mínum,“ segir hún í skila­boð­unum. Hún seg­ist í fram­hald­inu hafa ákveðið að taka skref aft­urá­bak til þess að hlúa að sjálfri sér. Hún endar skila­boðin á því að óska honum góðs gengis.

Svar Daníels var eft­ir­far­andi:

„Takk fyrir að vera bara heið­ar­leg og upfront með þetta. Gangi þér vel með lífið“

Önnur kona með svipaða sögu af sama manni

Konan birti fyrstu frá­sögn sína nafn­laust í bar­áttu­hópi á Facebook og í öðrum stuttu síðar. Í kjöl­farið hefur hún kom­ist í sam­band við aðra konu sem hefur svip­aða sögu að segja af Daníel Erni og hefur gefið leyfi sitt fyrir því að það komi fram hér. Sú kona seg­ist vera í sál­fræði­vinnu við að vinda ofan af ofbeld­inu.

Í athuga­semd undir færslu hennar í öðrum Facebook-hópnum skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrrum for­maður Eflingar og sú sem leiðir hinn nýja Bar­áttu­lista, sem Daníel Örn var í kjöri fyrir: „Ég trúi þér.“

Blaða­maður hafði sam­band við Daníel Örn til að gefa honum tæki­færi til þess að tjá sig um ásak­an­irnar. „Já, nei takk,“ sagði Daníel Örn um leið og blaða­maður hafði kynnt sig, og skellti því næst á. Hann fékk sömu­leiðis spurn­ingar í skila­boðum, sem hann hefur ekki svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi