Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dumitru neitar sök og segist hafa óttast Daníel: „Stop the car, stop the car!“

Dumitru neitar sök og segist hafa óttast Daníel: „Stop the car, stop the car!“

Í dag fer fram aðal­með­ferð í máli ákæru­valds­ins gegn Dumitro Calin. Hann er sak­aður um mann­dráp af gáleysi og að hafa ekki komið Daníel Eiríks­syni til hjálpar með þeim afleið­ingum að hann lést þann 2. apríl 2021.

Í vitna­leiðslum yfir Dumitru sagð­ist hann hafa átt erindi í Vindakór þennan dag til þess að selja eit­ur­lyf. Hringt hafi verið í hann en hann ekki vitað hver það var sem hringdi; hann hafi aðeins fengið heim­il­is­fang.

Hann segir að fljót­lega eftir að Daníel kom til hans að bílnum hafi hinn síð­ar­nefndi sagt eitt­hvað á þessa leið: „Þú ert þarna frá Rúmeníu, ég man eftir þér.“

Dumitru segir Daníel hafa verið illa við sig og haft í hót­unum við sig um langa hríð. Hann hafi meðal ann­ars brot­ist inn á heim­ili hans, hótað honum og kraf­ist pen­inga og eit­ur­lyfja.

Hann seg­ist hafa orðið hræddur þegar Daníel þekkti hann og viljað forða sér. Hann hafi verið þess full­viss að Daníel ætl­aði sér að ganga í skrokk á honum. Hann sagði jafn­framt að Daníel hefði farið með aðra hönd í vasa sinn og hann hafi ótt­ast það að hann ætl­aði sér að taka upp vopn.


Sagði hann hafa ætlað að hlaupa af stað

Dumitru segir að Daníel hafi haldið með höndum í rúðu bíls­ins, sem var að hluta til skrúfuð niður fyrir þau við­skipti sem áttu að eiga sér stað.

„Stop the car, stop the car, sagði hann. Hann var rosa­lega æstur og reiður og til­finn­ingin var að hann vildi stoppa bíl­inn og berja mig. Ég vildi bara losna við hann og kom­ast i burtu. Ég sagði nei, var hræddur og vildi fara. Ég byrj­aði að gefa í og hann tók með báðum höndum um rúð­una og hélt sér í. Ég byrj­aði að keyra og keyrði kannski 15 til 20 metra með hann hang­andi á rúð­unni. Svo losn­aði hann af rúð­unni og datt í jörð­ina.“

Dumitru seg­ist hafa stoppað og séð Daníel á jörð­inni í bak­sýn­is­spegl­inum. Hann segir Daníel hafa verið að standa upp og gera sig lík­legan til þess að hlaupa af stað á eftir honum aftur. Þá hafi Dumitru forðað sér af vett­vangi. „Ég var bara hræddur og titr­andi,“ sagði hann fyrir dómi í dag.

„Ég sá hann í spegl­inum og það var ekk­ert blóð eða neitt, og ég vissi að hann ætl­aði að hlaupa á eftir bílnum.“

Sak­born­ingur sagð­ist hafa farið heim til sín og beðið hræddur eftir því að Daníel kæmi að finna hann. Hann hafi sent honum skila­boð um að hann myndi ekki selja honum eit­ur­lyf, hann þyrfti að finna ein­hvern annan. „Ég sagði: „Þú varst að reyna að berja mig og ræna mig, ekki greiða fyrir vör­una. Ég kem ekki meira heim til þín. Mér datt ekki í hug að það væri ekki í lagi með hann. Mér er búið að líða rosa­lega illa síðan ég fékk frétt­irnar.“

„Ég sver við börnin mín og fjöl­skyld­una að ég er að segja satt. Ég er mjög leiður yfir því sem gerð­ist. Er búinn að upp­lifa martröð,“ sagði Dumitru.

Segir nánast útilokað að hann hefði getað staðið upp

Sér­fræð­ingur í heila- og tauga­skurð­lækn­ingum, sem gerði aðgerð á Daníel eftir að hann kom á bráða­mót­töku, bar vitni fyrir dómi í dag. Hann lýsti alvar­legum áverkum á höfði og heila Daníels. Hann sagði áverk­ana hafa verið afar dreifða og að blætt hafi frá fleirum en einum stað. Hann sagði að ástand sjúk­lings yrði yfir­leitt alvar­legt í kjöl­far svona áverka. Yfir­leitt á fyrstu sek­úndum eða mín­útum.

Sækjandi spurði þá hvort lík­legt væri að Daníel hefði getað staðið upp eftir að hafa hlotið áverk­ana. Hann sagð­ist ekki telja að svo gæti verið.

„Miðað við útlit áverk­anna finnst mér það nán­ast úti­lokað.“

Verjandi sak­born­ings spurði í kjöl­farið hvort sér­fræð­ing­ur­inn gæti úti­lokað það.

„Nánast. En ekki hund­rað pró­sent. En þetta er mín skoðun með mína þekk­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina