Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Unnusta Daníels í vitnaleiðslum: „Þessi maður á eftir að drepa fleiri ef hann fær ekki lengri dóm“

Unnusta Daníels í vitnaleiðslum: „Þessi maður á eftir að drepa fleiri ef hann fær ekki lengri dóm“
Daníel Eiríks­son, sem lést þann 2. apríl 2021, og Dumitru Calin sem ákærður er fyrir mann­dráp af gáleysi.

„Ég vil ekki hafa það að þessi gaur sé hér inni. Hann er morð­ingi.“

Þetta sagði unnusta Daníels Eiríks­sonar í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í dag.

Daníel lést 2. apríl árið 2021 vegna áverka sem hann hlaut fyrir utan heim­ili sitt að Vindakór í Kópavogi. Dumitru Calin, 25 ára gam­all rúm­enskur karl­maður, er ákærður fyrir að hafa með gáleysi valdið dauða hans og ekki komið manni í nauð til hjálpar. Aðal­með­ferð í mál­inu fór fram í dag.

Lilja Björg, unnusta Daníels, var í upp­námi þegar hún gekk til sætis fyrir vitna­leiðslur. Hún tjáði dóm­ar­anum að hún væri reið. Þau Daníel höfðu nýverið trú­lofað sig þegar hann lést.

Lilja var spurð hvort hún vildi að sak­born­ing­ur­inn viki úr rétt­ar­sal á meðan hún gæfi vitn­is­burð sinn. Að end­ingu sagði hún að sér væri sama þótt hann sæti inni.

Fyrst var Lilja beðin um að lýsa ástandi Daníels nótt­ina áður en atburð­ur­inn átti sér stað, sem og morg­un­inn sem hann hitti Dumitru Calin á bíla­stæð­inu fyrir utan heim­ili þeirra. Hún sagði Daníel hafa dottið í það kvöldið áður. Þau hafi verið búin að vera edrú saman í rúm­lega sjö mán­uði þegar hann hafði fallið.

„Þetta gekk svo vel. Við vorum ótrú­lega ham­ingju­söm. Ást­fangin,“ sagði Lilja.

Hún sagði Daníel hafa sagt sér frá Dumitru og því að hann hafi verið að senda honum hót­anir í skila­boðum. „Hann var edrú þá og vildi bara losa sig frá þessum heimi.“

Var í mikilli neyslu og annarlegu ástandi

Lilja sagði að Daníel hefði farið út með vinum sínum þetta kvöld og fallið. Hún hafi áttað sig á því að hann væri búinn að neyta eit­ur­lyfja og fengið hann til þess að koma heim til sín. „Ég vildi frekar að hann kæmi heim til mín, svo ég gæti passað hann.“

Hún sagði þau hafa ákveðið að hún myndi keyra hann í með­ferð á Vogi um morg­un­inn. Hann hafi strax farið að reyna að útvega sér fleiri efni eftir að hann kom heim. Hún sagði fíkn­ina hafa verið mikla. Daníel hafi ætlað sér að detta ærlega í það áður en hann færi á Vog. Hún sagði hann hafa neytt eit­ur­lyfja í miklu magni þar til hann logn­að­ist út af. Hún hafi sjálf vakið yfir honum alla nótt­ina og ekki ætlað sér að sofna. Eftir að Daníel sofn­aði sagð­ist hún hins­vegar sjálf hafa farið inn í rúm og sofnað í stutta stund, enda orðin afar þreytt. Þetta var í morg­unsárið, ein­ungis nokkrum klukku­tímum áður en hún ætl­aði að fara með Daníel í með­ferð.

Hún sagð­ist hafa vaknað við það að Daníel fór á fætur í ann­ar­legu ástandi. „Hann veit varla hvað hann er að gera.“ Hann hafi verið í sím­anum en hún hafi sagt honum að fara að sofa; að þau væru að fara á Vog eftir þrjár klukku­stundir. Þarna hafi klukkan verið í kringum sex um morg­un­inn.

Miðað við ástandið á Daníel á þessum tíma­punkti sagð­ist Lilja ekki hafa haldið að hann færi að gera eitt­hvað. Að hann gæti það yfir höfuð. Hún sagð­ist aftur hafa sofnað, í þetta sinn í klukku­tíma eða einn og hálfan tíma. Þegar hún hafi vaknað hafi Daníel ekki verið í íbúð­inni. „Ég fékk ein­hverja vonda til­finn­ingu. Ég ætl­aði ekki að sofna.“

Lilja sagð­ist hafa farið út og séð Daníel liggja á göt­unni. Hún sagð­ist ítrekað hafa reynt að ná sam­bandi við hann, talað við hann og tekið í hönd­ina á honum en hann hafi verið með­vit­und­ar­laus. Hún hafi strax séð mikla höf­uð­á­verka og blóð.

Sjúkra­bíll­inn kom stuttu síðar og flutti Daníel á slysa­deild.

Skilur ekki hvernig hann gæti hafa verið ógn

Það tók ber­sýni­lega á Lilju að rifja þennan dag upp og hún felldi tár um mið­bik vitn­is­burð­ar­ins.

„Ég skil ekki hvernig hann á að geta hafa verið ein­hver svaka­leg ógn. Hann var svo rosa­lega dóp­aður og stóð varla í lapp­irnar.“ Lilja sagð­ist ekki einu sinni hafa haldið að hann gæti verið í sím­anum, í því ástandi sem hann var.

„Hann var rugl­aður og ráf­andi um, alltaf að tala um að bæta við einum skammti í við­bót. Alltaf einum skammti í við­bót.“

Verjandi sak­born­ings hafði engar spurn­ingar fyrir Lilju.

Eftir síð­ustu spurn­ingu sækj­anda sagði Lilja að sak­born­ing­ur­inn hefði verið að hóta Daníel í ár áður en hann lést. „Hann fór til hans með skamm­byssu. Þess vegna fór Danni með hagla­byssu, með engin skot í, til þess að hræða hann á móti.“

Lilja sagð­ist vera reið. Hún sagð­ist sjálf hafa farið að hitta sak­born­ing­inn. „Hann man eftir því,“ sagði hún. „Ég skil ekki að menn eins og hann komi inn í landið, lifi á glæpum, lemji fólk og drepi mann­inn minn.“

„Þessi maður á eftir að drepa fleiri ef hann fær ekki lengri dóm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina