Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Öll áhöfnin fórst með Sjöstjörnunni – 21 barn varð föðurlaust

Öll áhöfnin fórst með Sjöstjörnunni – 21 barn varð föðurlaust

Fyrir nákvæm­lega 49 árum síðan, þann 11. febr­úar 1973, fórst 100 tonna eik­ar­bát­ur­inn Sjö­stjarnan KE 8 frá Keflavík, rétt fyrir utan suð­ur­strönd Íslands. Allir tíu áhafn­ar­með­limir lét­ust í slys­inu.

Báturinn var nýkom­inn úr við­gerð í Færeyjum en þegar hann var staddur í um 100 sjó­mílur aust-suð­austur af Dyr­hóla­hey, barst til­kynn­ing frá skip­stjóra báts­ins, Egil­berti Kol­beins­syni að leki væri komin að bátnum. Þrátt fyrir aftaka­veður á svæð­inu voru skip send án tafar til hjálpar. Það síð­asta sem heyrð­ist frá Eng­il­berti var að allir skip­herr­arnir væru komnir í tvo gúmmí­báta nema hann en að það væri tíma­spurs­mál hvenær bát­ur­inn sykki.

Ein umfangs­mesta leit Íslands­sög­unnar á sjó var gerði í kjöl­farið en leitað var bæði á landi og sjó. Að lokum var það eina sem fannst leifar af gúmmí­báti og lík eins skip­herr­ans bundið fast við. Allir 10 áhafn­ar­með­limir lét­ust, fimm Íslend­ingar og fimm Fær­ey­ingar. Kona skip­stjór­ans, Gréta Þór­ar­ins­dóttir var ein af þeim sem var um borð.

Alþýðu­blaðið birti frétt um leit­ina þann 13. febr­úar, tveimur dögum eftir sjó­slysið. Var frá­sögnin eft­ir­far­andi:

Þungur sjór og frost er Sjö­stjarnan sökk

Þegar blaðið fór í prentun um mið­nætti, hafði enn ekk­ert frétzt til skip­brots­mann­anna 11 af Sjö­stjörn­unni frá Keflavik. Ýtarleg leit var gerð i allan gær­dag og fram á kvöld. Veður var mjög slæmt á þeim slóðum sem Sjö­stjarnan sökk, þungur sjór og frost. Leit átti að halda áfram í nótt, og í dag verður vænt­an­lega leitað til þrautar. Sjö­stjarnan var að koma frá
Færeyjum, þar sem bát­ur­inn hafði verið i við­gerð vegna bruna sem kom upp i káetu er
bát­ur­inn lá í Kefla­vik­ur­höfn í des­em­ber. Um borð voru 10-11 manns, þar af fimm Íslend­ingar, fjórir karl­menn og eig­in­kona skip­stjór­ans. Auk Íslend­ing­anna voru 5-6
Fær­ey­ingar um borð, en þeir höfðu verið ráðnir á bát­inn í vetur. Ekki hafði fengizt á því
stað­fest­ing frá Færeyjum i gær­kvöldi, hvort Fær­ey­ing­arnir væru fimm eða sex. Það var klukkan 14,10 á sunnu­dag­inn að Sjö­stjarnan til­kynnti strand­stöð Land­sím­ans á Höfn í Horna­firði, að vart hefði orðið við leka. Var bát­ur­inn þá staddur djúpt undan landi. Um
100 sjó­milur undan Dyr­hólaey. Var káetan orðin hálf­full af sjó og skip­verjar farnir að und­ir­búa að fara í björg­un­ar­báta. Virðist lek­ann hafa borið brátt að, þvi stuttu áður hafði Sjö­stjarnan til­kynnt stað­ar­á­kvörðun til Til­kynn­inga­skyld­unnar, og var þá ekki vitað betur en allt væri í stakasta lagi.

Um klukkan 15 var vitað til þess að Sjö­stjarnan var sokkin, og að áhöfnin komst í tvo
gúm­björg­un­ar­báta. Heyrðist í neyð­ar­tals­stöðvum þeirra í stuttan tíma eftir að bát­ur­inn sökk, en siðan hefur ekk­ert í bát­unum heyrzt. Stöðin sendir í sífellu, sé allt með felldu.
Á þessum slóðum voru vestan 8-10 vind­stig, er bát­ur­inn fórst, og þungur sjór. Um 30 skip
héldu þegar til leitar, loðnu­veiði­skip, rann­sókn­ar­skip og erlendir tog­arar, auk flug­véla. Leit­ar­veður var mjög slæmt í allan gær­dag og spáð var svip­uðu veðri. Sjö­stjarnan var eik­ar­bátur 100 lestir að stærð. Hann var smíð­aður í Danmörku árið 1964. Hét bát­ur­inn áður Otur. Eigandi er Sjö­stjarnan hf í Reykja­vík, en bát­ur­inn er skrá­settur í Keflavík og var gerður þaðan út.

Ungi mað­ur­inn sem fannst bund­inn við björg­un­ar­bát­inn hét Þór Kjart­ans­son, 26 ára. Var hann sá eini sem fannst af þeim sem fór­ust. Sjö af þeim sem fór­ust voru for­eldrar. Fimm konur misstu eig­in­menn sína, 21 barn varð föð­ur­laust og eitt barn mun­að­ar­laust.

Hjónin Eng­il­bert og Gréta

Nöfn þeirra er lét­ust eru eft­ir­far­andi:

  • Eng­il­bert Kol­beins­son, skip­stjóri (34 ára).
  • Gréta Þór­ar­ins­dóttir, mat­sveinn (27 ára).
  • Þór Kjart­ans­son, stýri­maður (26 ára).
  • Guð­mundur J. Magn­ús­son, fyrsti vél­stjóri (41 árs).
  • Alex­ander Gjöveraa, háseti (38 ára).
  • John Fritz, 2. vél­stjóri (47 ára).
  • Arnfinn Jóensen, háseti (17 ára).
  • Niels Jul Har­ald­sen, háseti (46 ára).
  • Hans Marius Ness, háseti (16 ára).
  • Holberg Bern­hard­sen, háseti (28 ára).
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina