Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ríkissaksóknari Namibíu leitar aðstoðar Interpol við að hafa upp á þremur Íslendingum

Ríkissaksóknari Namibíu leitar aðstoðar Interpol við að hafa upp á þremur Íslendingum

Sak­sókn­ari lagði fram ósk um aðstoð Interpol í Hæsta­rétti í Windhoek, höf­uð­borg Namibíu í vik­unni. Málið snýr að þeim Ingvari Júl­í­us­syni, Agli Helga Árnasyni og Aðal­steini Helga­syni en sak­sókn­ari vill að þeir beri vitni um atriði rann­sókn­ar­innar, sam­kvæmt frétt All­gemeine Zeitung í Namibíu.

Menn­irnir stýrðu allir eða komu að stjórnun fyr­ir­tækja Samherja í Namibíu. Aðal­steinn og Egill Helgi voru fram­kvæmda­stjórar Samherja í Namibíu. Egill Helgi er ákærður vegna starfa sinna fyrir Esju Holding og Mermaria Seafood Namibia. Ingvar var fjár­mála­stjóri og er ákærður vegna starfa fyrir Saga Seafood, Esja Invest­ment og Heinaste Invest­ments.

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu hefur farið þess að leit við Interpol að alþjóða­lög­reglan aðstoði við að hafa upp á þessum þremur Íslend­ingum vegna rann­sókn­ar­innar á Sam­herj­a­skjöl­unum. Þre­menn­ing­arnir hafa farið fram á að fá að bera vitni að utan og að þurfa ekki að fara til Namibíu í þeim erinda­gjörðum en sak­sókn­ari seg­ist bjart­sýnn á að menn­irnir verði færðir til Namibíu.

Sak­sókn­ari í Namibíu gaf út ákæru á hendur mönn­unum í fyrra, sem og fram­sals­beiðni til íslenskra stjórn­valda en henni var hafnað enda fram­selja stjórn­völd ekki íslenska rík­is­borg­ara.

Sak­sókn­ari segir yfir­völd í Namibíu hafa meira en næg sönn­un­ar­gögn í hönd­unum til að rétt­læta aðkomu Interpol og segir Íslend­ing­ana þrjá ekki hafa lagt neitt fram sem sýni annað. Hún segir þá nú reyna allt hvað þeir geti til að afmá spor sín og sann­anir. Samherji sé ekki lengur með neina íslenska starfs­menn í land­inu.

Hún bætir því við að Ingvar Júl­í­us­son, full­trúi mann­anna, hafi neitað að upp­lýsa hvar, hvenær og hvernig hann hafi fengið umboð mann­anna til þess að óska eftir því að bera vitni utan­lands frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina